Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Qupperneq 16
16 sport Helgarblað 21. júlí 2017 Það mátti sjá tár í augum kvennalandsliðsins í fótbolta á þriðjudag þegar liðið lék sinn fyrsta leik á EM í Hollandi. Andstæðingurinn frá Frakk- landi átti að rúlla yfir okkar stelp- ur sem voru á öðru máli, hetju- leg barátta virtist ætla að duga til þegar Frakkland fékk vítaspyrnu þar sem Amandine Henry sýndi gríðarleg klókindi og Elín Metta Jensen féll í gryfjuna og vítaspyrna var dæmd. Úr spyrnunni skoraði franska liðið og eftir sátu íslensku stelpurnar með sárt ennið, Elín Metta átti erfitt með tilfinningar sínar og grét að leik loknum. Allt var skilið eftir á vellinum en upp- skeran var ekki nein. Verða það gleðitár næst? Íslenska liðið á leik á morgun þegar liðið mætir Sviss í Doetinchem en bæði lið eru með bakið upp við vegg, tapi íslenska liðið leiknum er liðið ekki með örlögin í sínum höndum og getur nánast farið að huga að heimferð. Sviss tapaði fyr- ir Austurríki í fyrsta leiknum, óvænt tap en Sviss hefur á að skipa mjög öflugu liði. Ísland var með Sviss í riðli í undankeppni HM 2015 en þar var á brattann að sækja, ís- lenska liðið tapaði þá heimaleikn- um 2-0 og leiknum í Sviss 3-0. Það er því ljóst að verkefnið er erfitt en með sama baráttuanda og íslenska liðið sýndi gegn Frakklandi eru liðinu allir vegir færir. 12 maðurinn í stúkunni Ekkert lið fyrir utan heimamenn í Hollandi státar af því að vera með jafn marga stuðningsmenn á Evrópumótinu í Hollandi, íslensk- ir stuðningsmenn voru vel á fjórða þúsund í Hollandi á þriðjudag og studdu stelpurnar til dáða. Það er þekkt stærð í íþróttum að stuðn- ingsmenn geta gefið liðum mikið og hafa allar stelpurnar talað um það hversu miklu máli stuðningur getur skipt. ,,Það var ótrúlega gam- an að finna stuðninginn og orkuna í stúkunni, ég held að þetta hafi gefið okkur nokkur auka prósent. Svona stuðningur skiptir máli,“ sagði Gló- dís Perla Viggósdóttir varnarmaður liðsins og einn allra besti leikmað- ur landsliðsins. Hægt að setja spurningarmerki við þjálfarann Freyr Alexandersson kaus það að fara með fimm framherja á Evrópumótið í Hollandi og var lítið hægt að gagnrýna það á þeim tíma- punkti, það vakti því mikla athygli hjá mörgum þegar miðjumað- urinn Dagný Brynjarsdóttir byrj- aði sem fremsti leikmaður liðsins gegn Frakklandi. Freyr er því með sex leikmenn í hópnum sem hann treystir til að spila sem fremsti maður, í 23 manna hóp í jafn stuttu móti og Evrópumótið er það helst til of mikið og því er hægt að spyrja sig að því hvort þjálfarinn sé með nógu gott jafnvægi í hópnum. Frábær frammistaða að mati þjálfarans Þrátt fyrir tapið var Freyr Alex- andersson stoltur af frammistöðu liðsins þegar rætt var við hann í vikunni. ,,Efst í huga mínum eft- ir þennan leik er frábær frammi- staða, við vorum sterkar í taktík. Nærveran og töffaraskapurinn í liðinu flottir, ég var ánægður með þetta. Á þessari samfélagsmiðla- öld þá fær maður viðbrögðin hratt og fólkið heima í stofu fann það í gegnum sjónvarpið, ég var ánægð- ur með þetta. Það eru punktar sem við hefðum getað gert betur, við erum alveg meðvituð um það og við hefðum átt að gera betur oft og tíðum á boltann. Fyrirgjafir voru ekki alveg nógu góðar, við skilum inn tveimur sem hefðu getað gef- ið eitthvað. Dagný Brynjarsdóttir á eitt færi þar sem hún á að klára, hún er það góð í þessu að hún á að skora. Ég horfði á leikinn í rút- unni á leiðinni heim, brosið á fólk- inu í stúkunni var líka skemmtilegt. Það er greinilega gaman í Hollandi enda veðrið á Íslandi algjör við- bjóður.“ Vilja stelpurnar vera áfram með í partíi? Á morgun er leikur sem íslenska liðið má ekki tapa, gegn Sviss, jafn- tefli heldur liðinu á floti og sig- ur kemur liðinu í fína stöðu fyr- ir síðasta leikinn gegn Austurríki. „Við þurfum að passa skyndisókn- ir frá Sviss og það eru einstaklingar þarna sem við getum ekki gefið tíma á boltann. Við þurfum að sjá til þess að við stjórnum leiknum með varnarleik eða sóknarleik, við viljum helst að þær verði með bolt- ann. Þær eru fyrst og fremst frábært skyndisóknarlið, það er hægt að lesa í það hvað ég vil gera. Þetta er í okkar höndum, sigur á móti Sviss og þá eru örlögin í okkar hönd- um í Rotterdam. Tap kemur ekki til greina, við erum að fara að spila með Sviss og örlögin geta verið í okkar höndum eftir þann leik. Vilj- ið þið fara heim næsta miðvikudag eða vera áfram með í þessu partíi? Þetta er ekki flókið.“ n n EM byrjaði með svekkjandi tapi n Geta stelpurnar komið til baka? Forsetinn styður við stelpurnar Guðni Th. Jóhannesson er sýnilegur á mótinu og var á meðal stuðningsmanna Íslands í leiknum. Á miðvikudag gaf hann sér svo tíma til þess að snæða með leikmönnum liðsins en forsetinn er mikill íþróttaáhugamaður og hughreysti stelpurnar eftir svekkjandi tap á þriðjudag. Guðni talaði fyrir því fyrir leik að þjóðin sameinaðist. „Auðvit- að er margt sem sundrar okkar og margt sem við getum rifist um og margt sem við getum haft áhyggjur af, við eigum að geta leyft okkur að sameinast þegar landslið okkar er að keppa á erlendum vettvangi. Sama hvaða íþrótt er eða kyn, við eigum að njóta þess að vera saman.“ Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Mynd Sigtryggur Ari Verða það gleðitár næst?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.