Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Qupperneq 20
20 umræða Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurvin Ólafsson ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur Guðjónsson aðstoðarritstjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. aðalnúmer: 512 7000 auglýsingar: 512 7050 ritstjórn: 512 7010 fréttaskot 512 70 70 Heimilisfang Kringlan 4-12, 4. hæð 103 Reykjavík Sandkorn Helgarblað 21. júlí 2017 Barátta Viðreisnar Jón Steinar Gunnlaugsson – pressan.is Inga Sæland – ruv.is Það á ekki að skattleggja fátækt, það er bara þjóðarskömm. Ég mun aldrei láta hótanir um bit úr snákagryfjum þeirra hindra mig í að segja það opinberlega sem ég tel þörf á að segja. Fjárfestingarleið Seðlabank- ans hefur réttilega verið til um- ræðu undanfarna daga, enda ljóst að margt sterkefnað fólk gat nýtt sér leiðina og fengið krón- ur með ríflegum afslætti og fjár- fest hér á landi. Einn þeirra sem nýtti sér þessa leið er Jónas Hagan Guðmundsson sem gert hef- ur sig gildandi að undanförnu sem stór hluthafi í Kviku banka. Hann keypti krónur fyrir evrur fyrir 187 milljónir í október 2013 á genginu 210. Gengið núna er ríflega 120 krónur, svo líklegt er að gengishagnaður af þessum viðskiptum sé um 70 milljón- ir króna, sem verður að teljast nokkuð gott. Innan Kviku banka er eftir því tekið að Jónas er hluthafi af gamla skólanum og hefur sterkar skoðanir á mönnum og málefn- um. Þykir augljóst að hann ætli sér stærri hluti innan bankans, sem er einmitt um þessar mundir að sameinast fjármálafyrirtækinu Virðingu. Ákafur fjárfestir Hið fræga viðskiptatímarit Frjáls verslun er nú til sölu. Börn fjár- málaráðherrans, Benedikts Jó- hannessonar, hafa tekið við fjöl- miðlafyrirtækinu Heimi af föður sínum og rekstrarstaða þess var þannig að nauðsynlegt var að rifa seglin og selja titla. Það hefur nú verið gert með sölu á Iceland Review og ýmsum ferðabækling- um, en enn hefur ekki fundist kaupandi að Frjálsri verslun og ekki víst hvenær eða hvort fleiri tölublöð komi út undir ritstjórn hins reynda blaðamanns, Jóns G. Haukssonar. Innan Sjálfstæðisflokksins hafa ýmsir áhyggjur af stöðu flokks- ins fyrir komandi borgarstjórnar- kosningar. Horfa ýmsir í því sam- bandi til alþingiskonunnar Hildar Sverrisdóttur, sem er einmitt fyrr- verandi borgarfulltrúi og hefur vakið athygli fyrir skeleggan mál- flutning. Hildur mun hins vegar áhugalítil um málið og staðráð- in í að láta til sín taka á vettvangi landsmálanna. Horft til Hildar Frjáls verslun til sölu Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Myndin Drangur í Brennisteinsöldu Nú streymir göngufólk á hálendið sem aldrei fyrr til að berja augum fagra fjallasýn og njóta útiveru og stórbrotinnar náttúru landsins. Hér er horft yfir Brennisteinsöldu ofan Landmannalauga. Í fjarska má sjá Jökulgilkvíslina og Tungnaá. MynD BrynJa KrIStInSDóttIr E kki verður annað séð en að ráðherrar Viðreisnar séu í baráttuhug og ætli ekki að sitja lengur þegjandi und- ir ásökunum um að vera tagl- hnýtingar Sjálfstæðisflokksins. Um leið er eins og Björt framtíð sé orðin hálflömuð af meðvirkni í ríkisstjórnarsamstarfi þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er hið ráð- andi afl. Hið kæfandi faðmlag íhaldsins er að ganga af Bjartri framtíð dauðri. Viðreisn virð- ist ekki ætla að kjósa sér sömu örlög baráttulaust. Fjármálaráðherrann, Bene- dikt Jóhannesson, talar fyrir því að krónunni sé kastað, enda sé hún óútreiknanleg og leiði til óstöðugleika. Hvað skyldi Bjarni frændi segja við þessu? Ætli við vitum það nú ekki. Þorgerð- ur Katrín Gunnarsdóttir sjávar- útvegsráðherra vill að útgerðin borgi sanngjarnt gjald fyrir afnot af fiskveiðiauðlindinni. Hún sér ekkert athugavert við nýboð- aða hækkun veiðigjalda og lét hafa eftir sér að útgerðarmönn- um hefði verið fullljóst að veiði- gjöld myndu hækka á milli ára og bætti við að þeir hlytu að hafa lagt fyrir peninga til að greiða skattinn. Já, kannski hefur út- gerðin lagt fjármuni til hliðar í stað þess að greiða sér himin- háan arð. Eins og búast mátti við kveinkaði hinn óstöðvandi grátkór útgerðarinnar sáran undan orðum sjávarútvegsráð- herra, en treystir líklega um leið á að huggun sé að finna í örmum íhaldsins í ríkisstjórninni. Ekki er líklegt að þessar hug- myndir ráðherranna tveggja komi til framkvæmda í ríkis- stjórn sem Sjálfstæðisflokkurinn leiðir. Þar er rík áhersla lögð á að vernda sérhagsmuni út- gerðarinnar. Einnig er þar ríkj- andi áberandi tryggð við hinn óstöðuga gjaldmiðil. Líklegt er að áhrifamenn í Sjálfstæðis- flokki taki þann pól í hæðina að líta á orð ráðherranna sem hvert annað brölt sem hægt sé að um- bera um tíma en grípi síðan fast í taumana fari ráðherrarnir að gera sér grillur um framkvæmd- ir. Fjármálaráðherra og sjávarút- vegsráðherra tala í sjálfu sér ekki fyrir vonlausum málstað. Það gæti verið æskilegt að kasta jafn óstöðugum gjaldmiðli og krón- unni og vitaskuld getur útgerðin greitt hærri veiðigjöld. En það er ekki mikil von um að slíkt komi til framkvæmda í ríkisstjórn sem Sjálfstæðisflokkurinn leiðir. Bar- átta Viðreisnar er virðingarverð um leið og hún virðist fyrirfram töpuð. Með Sjálfstæðisflokkinn í öndvegi eru engar líkur á að rík- isstjórnin muni gera umtals- verðar breytingar á fiskveiði- stjórnunarkerfinu, hvað þá breyta gjaldmiðli landsins. Satt best að segja virðist hún held- ur ekki líkleg til að jafna kjör landsmanna og styrkja stöðu þeirra sem höllum fæti standa. Nema svo afar ólíklega vilji til að áherslur litlu flokkanna í rík- isstjórninni fari að skipta Sjálf- stæðisflokkinn einhverju máli. n „Hið kæfandi faðmlag íhalds- ins er að ganga af Bjartri framtíð dauðri. Viðreisn virðist ekki ætla að kjósa sér sömu örlög baráttulaust MynD SIGtryGGur arI MynD SIGtryGGur arI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.