Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Page 37
Christopher NolaN Leikstjórinn Christopher Nolan skrifar jafnframt handrit myndar-innar og er annar framleiðanda hennar. Dunkirk er tíunda mynd hans í fullri lengd og á meðal fyrri mynda hans má nefna Batman-þríleikinn, Memento og Interstellar. Hafa myndir Nolan jafnan fengið góðar viðtökur og dóma, verið tilefndar til og unnið til verðlauna og ratað inn á fjölda topplista víðs vegar um heiminn. tom harDy Breski leikarinn og framleiðandinn leikur nú í þriðju mynd Nolan, hinar eru inception (2010) og the Dark Knight rises (2012). Hardy kom fyrst fram á hvíta tjaldinu 2001 í mynd Ridley Scott Black hawk Down og var tilnefndur til Óskarsverðlauna sem besti leikari í auka- hlutverki fyrrir the revenant (2015). Fulltrúar yNgri KyNslóðariNN ar Nýliðarnir í leikarahópnum og fremstir meðal yngri leikara myndar- innar eru Fionn Whitehead, sem leikur a ðalhlutverkið, aneurin Barnard og har ry styles, sem reynir nú fyr- ir sér á nýju sviði, en hann er söngvari hljó msveitarinnar one Direction. Til gamans má geta þess að það láðist að spyrja Styles þegar hann var ráðinn hvo rt hann væri syndur, sem var forsenda fyrir hlutverk myndarinnar. Sem betur fer er hann það, en hann hefur sagt þ að í viðtökum að það sé engu að síður ver ulega þreytandi og krefjandi að vera í tökum í vatni í langan tíma fullklæ ddur. eggert KetilssoN CilliaN murphy Írski leikarinn leikur nú í fimmtu myndinni undir leikstjórn Nolan, hinar eru inception (2010) og the Dark Knight trílógían (2005-2012). Murphy hefur leikið jöfnum höndum á sviði og í kvikmyndum, bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum og hefur verið tilnefndur og unnið til verðlauna í heimalandinu bæði fyrir leik á sviði og í sjónvarpi. marK rylaNCe Breski leikarinn er einn virtasti sviðsleikarinn í heimalandi sínu og hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir hlutverk sín á sviði , í sjónvarpi og í kvikmyndum. Hann vann meðal annars Bafta og Óskarsverðlaun fyrir kvikm yndina Bridge of spies 2015. Bíóleikur: Við gefum miða á Dunkirk Sambíóin sýna sannsögulega stórmynd um stríðsátök og sigra Það eina sem þú þarft að gera til að eiga kost á miðum á Dunkirk er að senda tölvupóst með nafni þínu og símanúmeri á ragna@ dv.is fyrir 25. júlí næstkomandi. Vinningshafar verða látnir vita með tölvupósti fyrir hádegi þann 26. júlí og geta sótt miða sína á skrifstofu DV. Dunkirk er sýnd í Sambíó- unum Álfabakka, Egilshöll og Kringlunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.