Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Side 44
Hauskúpuförðun
– Hrein list
Skapar listaverk alla daga, ekki bara á hrekkjavöku
Mér var boðið í Hall-oweenpartí í október 2015, með stuttum
fyrirvara og var því ekki með bún-
ing tilbúinn,“ segir Davis í viðtali
við Allure. Hún ákvað því að farða
helming andlitsins sem hauskúpu
og vakti förðunin mikla athygli
og aðdáun og var hún mynduð
stanslaust allt kvöldið. Á sama tíma
var Davis að opna Instagram-síðu
og var því upplagt að gera hana
að „hugmyndabanka“ fyrir slíka
förðun, þar sem hún birtir myndir,
myndbönd og leiðbeiningar. Hún
meira að segja kallar sjálfa sig
gælunafninu The Skulltress.
„Ég valdi að tileinka síðuna
hauskúpum, sem hentar líka vel þar
sem arfleifð mín er mexíkósk og
ensk. Ég er líka heilluð af hvernig
hauskúpur eru framsettar í tísku,
listum og húðflúrum.“
Davis, sem búsett er í London,
er lærður förðunarfræðingur, hefur
starfað við fagið í 15 ár og sér núna
um hárgreiðslu- og förðunardeild
Þjóðaróperu Englands. Vinnan við
hvert listaverk tekur um sex til tíu
klukkutíma með öllu tilheyrandi:
ljósmyndun, eftirvinnslu, póstun á
samfélagsmiðla og frágangi.
Kíktu á Instagram-síðuna
hennar, the_wigs_and_makeup_
manager, þar sem sjá má
förðunarlistaverk, sem helguð eru
hauskúpum.
Á Instagram-síðu förðunarfræðingsins Vanessa Davis má finna hrein listaverk í förðun.
Hún helgar síðuna hauskúpuförðun og hún er ekki bundin við hrekkjavökuna, heldur
má finna eitthvað nýtt á hverjum degi.„Ég bjó mínar tvær uppáhalds-
farðanir til vegna þess að ég
elska að nota liti og aukahluti saman
til að breyta andlitinu og bæta við
mismunandi formum og áferð. Ég
er heilluð af því hvernig ljósið fell-
ur á beinabygginguna og hvernig
má magna og ýkja förðunina með
Swarovski kristöllum, pallíettum og
stóru skrauti.
Uppáhalds
Davis á sér
tvær uppáhalds
farðanir. Önnur
er þessi hér.