Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Qupperneq 46
Helgarblað 21. júlí 2017 KYNNING
Líkami & Boost er versl-un sem selur hágæða fæðubótarefni og ýmsar
íþróttavörur. Verslunin er
staðsett í Sporthúsinu við
Ásbrú í Reykjanesbæ, nán-
ar tiltekið að Flugvallarbraut
701, og hefur auk þess rekið
öfluga vefverslun frá því í fyrra.
Uppistaðan í vöruúrvalinu eru
hin frægu fæðubótarefni SCI-
MX sem njóta mikilla vinsælda
hjá keppnisfólki í fitness og
skyldum greinum en henta líka
vel almenningi, eða öllu fólki
sem vill komast í gott form og
viðhalda því.
SCI-MX nýtur afar mikillar
virðingar og vinsælda sem
hágæðafæðubótarefni en
varan er framleidd í Bretlandi.
Öll fæðubótarefni og drykkj-
ar- og matvörur sem Líkami &
Boost selur eru framleiddar í
Evrópu, undir evrópskum lög-
um, sem tryggir bæði að varan
sé skaðlaus og jafnframt lögleg
á Íslandi, en þar sem reglur
um efnisinnihald og skammta-
stærðir eru aðrar í Banda-
ríkjunum en í Evrópu hafa
komið upp vandamál varðandi
bandarískar vörur hér á landi.
Fyrirtækið Líkami & Boost
hefur verið starfandi í núver-
andi mynd frá árinu 2013 en
var í mörg ár þar á undan hluti
af fyrirtækinu Líkami & Lífsstíll.
Fyrirtækið er með stóran og
afar traustan hóp viðskipta-
vina sem kemur aftur og aftur:
„Það er ástæðan fyrir því að
við gátum leyft okkur að starfa
án vefverslunar svona lengi
en við opnuðum vefversl-
unina fyrst síðasta sumar.
Mest af okkar veltu kemur frá
endurteknum viðskiptum við
fastakúnnahóp hér á svæðinu
en við erum með afar trygga
viðskiptavini sem nota okkar
vörur aftur og aftur,“ segir Ægir
Þór Lárusson, annar eigenda
fyrirtækisins, en hann rekur
það í samvinnu við eiginkonu
sína, Ágústu Guðnýju Árna.
Boost-bar er í versluninni í
Sporthúsinu og vinsælt er að
láta blanda fyrir sig drykki eftir
æfingar, en svo eru vitanlega
margir sem birgja sig upp af
þessum hágæðaefnum og
blanda drykkina sína heima.
Ægir segir að ýmiss konar
íþróttahópar sem tengjast
starfsemi Sporthússins noti
vörurnar einnig mikið:
„Við erum í samstarfi við
stóra íþróttahópa hér og má
þar nefna Superform-hópinn
sem tengist samnefndu nám-
skeiði sem kennt er í Sporthús-
inu. Superform heldur árlega
áskorendakeppni í Sporthúsinu
og síðast seldist þátttaka í
keppnina upp á klukkutíma,
alls 100 sæti. Þetta er allt fólk
sem notar vörurnar frá okkur.
Hin þekkta fitness-íþróttakona,
Freyja Sigurðardóttir, sem
var stærsta nafnið í fitness-
heiminum upp úr aldamótum,
kaupir einnig mikið af okkur og
er líklega okkar stærsti einstaki
kaupandi.“
Stór og glæsileg vefverslun með
gjaldfrjálsri heimsendingu
Það liggur í augum uppi að
vörur sem njóta svona mikillar
tryggðar notenda hljóta að
eiga erindi til fleiri. Með opn-
un vefverslunar á heimasíðu
Líkama & Boost, likamiogboost.
is, er að finna öfluga vefverslun
með fjölbreyttu og áhugaverðu
úrvali. Auk fæðubótarefnanna
margrómuðu er þar að finna
ýmsar gagnlegar og skemmti-
legar íþróttavörur.
Einfalt og þægilegt er að
ganga frá viðskiptum
á vefnum og varan er
síðan send hvert á land
sem er, án
endurgjalds,
gegn því að
keypt sér
fyrir 5.000
krónur eða
meira.
Líkami
& Boost
Flugvallar-
braut 701,
Reykjanes-
bæ Sími:
571-7001
Heimasíða
og vefversl-
un: lika-
miogboost.
is Face-
booksíða:
www.face-
book.com/
likamiog-
boost/
Framúrskarandi fæðubótarefni
og íþróttavörur
LÍKAMI & BooSt, HjÁ SpoRtHúSINU Í REYKjANESBÆ