Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Qupperneq 48
4 Matarvagnar Helgarblað 21. júlí 2017KYNNINGARBLAÐ
Tuddinn er margróm-aður grillbíll sem selur eina bestu borgara
landsins, og þótt víðar væri
leitað. Borgararnir eru úr
fyrsta flokks nautakjöti sem
kemur beint frá býlinu Hálsi í
Kjós. Þar sér eigandi Matar-
búrsins og Tuddans, Þórarinn
Jónsson, um búskap og elur
stærðar nautgripi af Gall-
oway-kyni. Um er að ræða
holdagripi sem heimsþekktir
eru fyrir einstaklega bragð-
gott og meyrt kjöt.
„Nautin fóðra ég eingöngu
á grasi og heyi, en rannsókn-
ir hafa sýnt fram á að kjöt
af grasöldum nautgripum
er gífurlega næringarríkt,
stútfullt af CLA og Omega 3
fitusýrum og innihalda fjórum
sinnum meira E-vítamín en
ella. Þannig er kjötið af slíku
nauti sambærilegt við kjötið
af villtum laxi,“ segir Þórarinn.
Því mætti segja að ham-
borgararnir frá Tuddanum
séu ekki síður góðir fyrir heils-
una en bragðlaukana.
Fullkominn borgari
„Hinn staðlaði Tudda-borgari
er 130 gramma hamborgari
með salati, rauðlauk, tómat,
góðum feitum osti, stund-
um reyktum cheddar-osti
og tvenns konar sósum sem
við lögum sjálf eftir uppskrift
eiginkonu minnar, Lísu Boije,
sem er hinn helmingurinn
af Tuddanum og rúmlega
það. Annars vegar er reykt
tómatsósa sem gefur góðan
og reyktan keim. Hins vegar
er klassísk sinneps-majónes
dressing sem lyftir borgar-
anum upp í hæstu hæðir.
Sósurnar seljum við einnig í
Matarbúrinu,“ segir Þórarinn.
Hamborgarinn er sömuleiðis
afrakstur margra mánaða
rannsóknarvinnu Lísu sem
lauk á því að vel völdum mat-
gæðingum og vinum hjón-
anna var boðið til heilmikillar
hamborgaraveislu. Voru
menn sammála um ótvíræða
yfirburði þeirrar samsetn-
ingar sem einkennir Tudda-
borgarann og varð hann því
fyrir valinu.
Tuddinn er alls staðar
Grillvagninn Tudda er hægt
að panta fyrir ýmiss konar
viðburði og má þar á með-
al nefna að Tuddinn hefur
séð um mat fyrir brúðkaup,
afmæli og vinnustaðagleði.
„Bíllinn vekur alltaf jafnmikla
kátínu enda bjóðum við upp
á hágæða skyndibita sem
hentar við langflest tækifæri.
Við höfum verið pantaðir í
veislur um allt Suðurland.
Bæði höfum við verið í Gríms-
nesi og svo höfum við farið
til Grindavíkur. Því eru í raun
engin sérstök takmörk sett
hvar við getum verið. Annars
er Tuddanum aðallega lagt
hér í Kjósinni svona dagsdag-
lega en við förum líka mjög
mikið um Hafnarfjörð og
víðar um höfuðborgarsvæð-
ið. Um daginn vorum við á
Matarmarkaðnum í Hörpunni
og vöktum mikla lukku,“ segir
Þórarinn.
Tuddann má panta í veislur
og aðra gleði með því að
hringja í síma 897-7017 eða
senda netpóst á tuddinn@
hals.is Nánari upplýsingar má
nálgast á Facebook-síðunni
Tuddinn. Þar má einnig fylgj-
ast með ferðum Tuddans.
Grillbíll sem bragð er að
TUddiNN: