Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Qupperneq 53
Helgarblað 21. júlíww 201x KYNNING
Býr til sinn eigin ís
Við gerum ísinn sjálfir, bæði í Ögurhvarfi og á Selfossi, og það er
enginn með þennan ís nema
við. Við erum með alvöru
rjómaís, mjög góðan, og
síðan erum við með þenn-
an gamla, kalda ís, sem er
vatnskenndur, en hann er
mjög vinsæll hjá unga fólk-
inu,“ segir Jón Magnússon,
eigandi Skalla í Ögurhvarfi.
Ísinn hefur ávallt verið
aðalsmerki Skalla og stend-
ur alltaf fyrir sínu og nýtur
alltaf jafnmikilla vinsælda.
„Ef það bara rétt glittir í
sólina þá bókstaflega fyllist
allt hérna, sólin fyllir alla
lífsgleði og allir vilja fá sér
ís,“ segir Atli Jónsson, sonur
Jóns Magnússonar. Þeir
feðgar reka Skalla í Ögur-
hvarfi. Skalli er líka á Sel-
fossi, þar eru aðrir eigendur
en náið samstarf er á milli
staðanna og á Selfossi er
sami góði Skallaísinn einnig
búinn til frá grunni á staðn-
um. Skalli er líka vinsæll
vegna mikils úrvals góðra
skyndirétta og er í senn
veitingastaður og ísbúð.
Íssalan tekur mikinn kipp
á sumrin, ekki síst ef sést
til sólar, eins og fyrr segir.
Girnilegur, fjölbreyttur og
ferskur nammibar spillir þar
ekki fyrir.
Skalli á sér langa sögu og
hóf starfsemi sem sjoppa
og ísbúð í Lækjargötu árið
1973. Það voru í raun nem-
endur í Menntaskólanum í
Reykjavík sem gáfu staðn-
um nafn:
„Í Lækjargötu var sjoppa
áður en Skalli var opnaður
en hana rak sköllóttur mað-
ur. Menntaskólakrakkarnir
töluðu um að kíkja á skalla
þegar þeir fóru í þá sjoppu
og þar með varð nafnið til,“
segir Atli.
Eins og mörg góð fyrir-
tæki hvílir Skalli á gömlum
grunni en þróast jafnframt í
takt við tímann og er sívin-
sæll. Sem fyrr segir er Skalli
á tveimur stöðum, í Ögur-
hvarfi 2 í Kópavogi og á
Austurvegi 46 á Selfossi.
Á báðum stöðunum er ís-
inn aðalsmerkið en fjölbreytt
úrval góðra skyndibita nýtur
einnig mikilla vinsælda.