Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 40
PersónuleikaPróf:
Hvaða stíg velur þú?
í lífinu stöndum við alltaf frammi fyrir valmöguleikum, ýmist tveimur eða fleiri. Hvaða möguleika við veljum markar svo næstu skref í lífsins gangi.
Persónuleikaprófið hér lofar því að segja manni hvaða leið maður er á í lífinu og hvaða skref maður ætti næst að taka. svona próf eru alltaf
skemmtileg og iðulega skemmtilegri en „hvaða ananas er ég?“ sem Facebook býður oft upp á, en engu að síður á maður ekki að fara í einu
og öllu eftir slíkum prófum. Komdu þér fyrir á góðum stað, skoðaðu myndirnar og veldu þér stíg og lestu svo um hvort að valið lýsir þér og
þínum aðstæðum.
Stígur 1 Þú ert blíður og góður persónuleiki og þú býrð yfir ákveðinni
óskhyggju. Þú kannt að meta fegurð og líður best þegar þú ert í
kringum uppáhaldshlutina þína. Hefðir og fortíð skipta þig miklu
máli. Val á stígnum sem er blómum prýddur, sýnir að þér líkar að
taka lífinu rólega og þú kannt að meta litlu hlutina í lífinu, en þú býrð
engu að síður yfir ævintýraþrá. Eitthvað nýtt er á leiðinni til þín og
þó að þú kunnir að meta öryggi, muntu fagna breytingunum. Líkt og
blóm sem springur út, munt þú einnig blómstra. Þó að þú sért rólegur
persónuleiki, láttu rödd þína heyrast oftar. Núna er rétti tíminn til að
segja frá því sem þú hefur haldið fyrir þig.
Stígur 2 Þú gleðst yfir nýjum ævintýrum, nýjum tilfinningum og nýrri
reynslu. Þú ert hugrakkur og opinn og þér líkar ekki við að standa í
einhverjum leikum. Þú ert sterkur persónuleiki og kemur vel fyrir þig
orði. Þú ert tryggur og trúr og myndir aldrei svíkja vini þína. Val á grýtta
stígnum sýnir að þú hefur gaman af áskorunum og þér er sama þó að á
brattann sé að sækja. Þú hefur trú á að eitthvað gott bíði þín á toppnum
og það er rétt hjá þér. Haltu áfram að sækja á brattann og þú verður ekki
fyrir vonbrigðum. Þú ert alveg að komast þangað. Hugrekki þitt er styrkur
til þeirra sem eru í kringum þig, en láttu þá sjá mýkri hliðar þínar líka. Þið
þurfið á því að halda.
Stígur 3 Þér finnst gaman að taka
þér tíma, hugsa um hlutina og
velta upp öllum möguleikum. Þú
spyrð spurninga og leitar svara.
Þú tekur stundum rangar ákvarð
anir, en þér er alveg sama. Sumir
óttast þögn og hið óþekkta, en
ekki þú, þú dafnar þar. Val á grófa
stígnum gefur til kynna að þú
sért innhverfur og leitandi. Lífið
er eitt stórt ævintýri hjá þér. En
stígurinn hverfur og við sjáum
ekki fyrir enda hans. Það er kom
inn tími til að marka ákveðna
braut og virkja athyglisgáfu
þína. Róleg orka þín er jafnframt
krafturinn þinn og forvitni þín er
góð, en leyfðu öðrum stundum
að vera með. Þú munt njóta þess
meira en þú heldur.
Stígur 4 Þú ert duttlungafullur einstaklingur með mikinn húmor.
Þú dregst að öllu sem er áberandi og einstakt og líf þitt er litríkt.
Þú ert ástríðufullur og glaðlegur einstaklingur, og til í smávegis
drama. Þú ert með mikla útgeislun, sem heillar þá sem eru ná
lægt þér. Val á stígnum með trjáhimninum yfir sýnir að þú leitar
upp á við, frekar en í áttina sem þú ert að fara. Það er eitthvað
á leiðinni til þín, þannig að horfðu líka fram á við, af og til. Þú
ert hræddur við að takast á við það, en það er ekkert að óttast.
Hlutirnir eru aldrei eins slæmir og þú heldur. Fólk fær orku
frá gleði þinni og útgeislun, en sýndu því að þú getur líka verið
alvarlegur.
Stígur 5 Þú ert afslappaður og góður einstakl
ingur. Þú ert auðmjúkur og einlægur, og það
er erfitt að æsa þig upp. Þú ert fljótur að fyrir
gefa og gleyma, og jafnvel fljótari að brosa.
Þegar aðrir stressa sig yfir smámunum, ert
þú bara slakur. Val á stígnum í haustlitunum
sýnir að þú ert að fara í gegnum breytinga
tíma. Þú munt fljótlega komast að því að þeir
eru góðir. Það eru beygjur og sveigjur á leið
þinni, en þú býrð yfir jafnvægi og ræður við
þær. Rólyndi þitt og hlýja getur hjálpað þeim
sem eru í kringum þig. Kenndu þeim hvernig
á að sleppa taki á hlutunum.
Stígur 6 Þú ert rólegur og hugsandi
einstaklingur, sem býr yfir djúp
um tilfinningum. Þú kýst einveru,
þó að þú sért ekki á móti góðum
félagsskap. Þú ert viðkvæmur, býrð
yfir samkennd og geislar af ein
lægni. Val á dimma stígnum sýnir
að þú þráir skjól og vernd og þú ert
vanur að ferðast einn. Þó að þú sért
ekki vanur að ganga í ljósinu, bíður
það eftir þér við enda stígsins. Ekki
vera hræddur við það. Þú munt að
lagast breytingunni og finna fegurð
í henni. Veröld þín er falleg, þannig
að bjóddu fólki inn af og til. Það er
kominn tími til að skína.