Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 2
2 Helgarblað 28. júlí 2017fréttir Spurning vikunnar Hræðist þú jarðskjálfta? „Nei, ekkert sérstaklega. Það væri kannski annað mál ef ég ætti heima í Hveragerði." Sindri Hrafn Stefánsson „Já, ef hann er kraftmikill. Ég hef einu sinni verið inni í húsi í sterkum jarðskjálfta. Það var fyrir um það bil 40 árum og þá varð ég nokkuð hrædd." Elín Park „Já, ég er dauðhrædd við jarðskjálfta. Það fer samt eftir því hvar maður er. Uppi á efri hæð er ömurlegt en niðri á jörðu er ég rólegri." Ásbjörg Poulsen „Ekki beint. Þeir koma og maður bara tekur því." Eyrún Jörgensen Frá munaðarleysingja- hæli til Bessastaða Læðan Títa tekur við keflinu á Bessastöðum eftir hundakúnstir frá árdögum lýðveldisins Þ ann 1. ágúst næstkom- andi er eitt ár liðið frá því að Guðni Th. Jóhannesson tók við embætti forseta Ís- lands, sá sjötti í röðinni. Eins og gera mátti ráð fyrir hefur Guðni komið með nýjar áherslur í starf forsetaembættisins. Hann er í góðu sambandi við landsmenn gegnum Facebook-síðu embættis- ins og þá hefur alþýðleg framkoma hans unnið hug og hjörtu landans. Það var einmitt slíkt atvik sem er kveikjan að þessari umfjöllun. Blaðamaður DV varð vitni að því þegar forsetinn burðaðist með tvo stóra poka af kattasandi út úr Kringlunni. Það vita nefnilega fæstir að hinn nýi forseti og fjölskylda hans innleiddu stórkostlega byltingu á Bessastöðum. Í fyrsta skipti frá því að Bessastaðir urðu aðsetur forseta Íslands ræður köttur þar nú ríkjum eftir nær samfelldar hundakúnstir frá upphafi lýðveld- isins. Fyrir rúmum ellefu árum heim- sóttu Guðni og Rut, dóttir hans, Kattholt. Stúlkan féll þar fyrir lítill snjóhvítri læðu sem hlaut nafnið Afrótíta, með t-i. Nafnið var þó fljótlega stytt í Títa. Í samtali við Fréttablaðið í aðdraganda forseta- kosninganna í fyrra sagði Guðni: „Títa ræður öllu á heimilinu og le yfir okkur að gista í húsinu. Það er mikill drottningarbragur yfir henni og hún vill fá þá virðingu sem henni finnst hún eiga skilið.“ Í því ljósi verður að teljast lík- legt að hin aldna læða sé hæst- ánægð með hinn nýja íverustað á Bessastöðum sem loks hæfir kon- unglegri tign hennar. Títa hefur risið úr örbirgð upp í hæsta þrep íslenska gæludýrasamfélags og sendir sjálfan forsetann í kaup- staðarferð til þess að hún geti ör- ugglega gengið örna sinna. Sveinn Björnsson Sveinn fékk hið vandasama hlut- verk að móta embætti forseta frá grunni. Hann hélt ekki eiginlegt gæludýr á Bessastöðum í valdatíð sinni en kom þó upp myndarlegu kúabúi við Bessastaði. Ásgeir Ásgeirsson Ásgeir og eiginkona hans, Dóra Þórhallsdóttir, fengu sér hund á Bessastaði og hlaut hann nafnið Kátur. DV hefur engar upplýsingar um hverrar tegundar Kátur var en líkur eru leiddar að því að hann hafi verið íslenskur alþýðuhundur af blendingskyni. Kristján Eldjárn Á fyrsta kjörtímabili Kristjáns fékk hann hreinræktaðan íslensk- an fjárhund að gjöf frá Ívari Eske- lund, forstjóra Norræna hússins. Hundinn keypti Ívar af Sigríði Pétursdóttur á Ólafsvöllum sem oft hefur verið nefnd verndari ís- lenska fjárhundsins. Tegundin var í útrýmingarhættu þegar Sigríður hóf ræktunarstarf sitt með ör- fáa hunda. Starf hennar varð til þess að íslenska fjárhundinum var bjargað frá útrýmingarhættu og veitti Ólafur Ragnar Grímsson henni riddarakross fyrir störf sín árið 2008. Hundurinn sem Krist- ján fékk að gjöf hlaut nafnið Sám- ur og var hann í sérstöku uppá- haldi hjá Ingólfi Eldjárn, yngsta syni forsetahjónanna. Vigdís Finnbogadóttir Vigdís var kosin forseti Íslands sumarið 1980 og tók við emb- ættinu þann 1. ágúst. Hún gegndi embættinu í fjögur kjörtímabil. Þannig vildi til að áðurnefndur Sámur varð eftir á Bessastöðum þegar Kristján Eldjárn og fjöl- skylda hans fluttu þaðan. Sám- ur varð því fyrsti formlegi starfs- maður forsetaembættisins af dýrakyni. Slíkt þekkist víða er- lendis og má sem dæmi nefna köttinn Larry sem fluttist inn í Downingstræti 10 árið 2011 þegar David Cameron var for- sætisráðherra. Hann þjónar nú Theresu May og hefur starfstit- ilinn „Yfirmaður músaveiðiráðu- neytisins“. Bessastaða-Sámur hlaut hinsvegar ekk ert formlegt starfsheiti og hann geispaði gol- unni á fyrsta kjörtímabili Vigdísar. Ólafur Ragnar Grímsson Ólafur Ragnar og seinni eig- inkona hans, Dorrit Moussai- eff, héldu hund á Bessastöð- um og leituðu ekki langt yfir yfir skammt þegar kom að nafn- giftinni. Hundurinn var nefnd- ur Sámur eins og forveri hans á Bessastöðum. Af og til var minnst á Sám í fjölmiðlum í valdatíð Ólafs en hápunktur- inn var líklega þegar umræður um lögheimili Dorritar og skatt- greiðslur báru hæst. Þá var for- setafrúin spurð að því hvort hún hygðist flytja af landi brott en þá sagðist hún ekki geta yfirgefið Sám: „Ég sakna Sáms meira en Ólafs,“ sagði Dorrit kankvís við það tilefni. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Dorrit og Sámur Sámur er afar hændur að Dorrit Hefðarköttur Læðan Títa Guðni Th. Jóhannesson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.