Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 20
20 umræða Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurvin Ólafsson ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur Guðjónsson aðstoðarritstjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. aðalnúmer: 512 7000 auglýsingar: 512 7050 ritstjórn: 512 7010 fréttaskot 512 70 70 Heimilisfang Kringlan 4-12, 4. hæð 103 Reykjavík Sandkorn Helgarblað 28. júlí 2017 Þ jóðkirkjan á nokkuð und- ir högg að sækja og það er eins og þjónar kirkj- unnar viti sumir hverjir ekki hvernig bregðast eigi við. Þeir ættu þó að standa keikir. Stundum kann að virðast sem almennt áhugaleysi ríki um störf þeirra en svo er þó ekki. Til þeirra er leitað varðandi stærstu viðburði í lífi fólks. Prestar þjóð- kirkjunnar skíra einstaklinga, ferma, gifta og þegar kemur að hinni óumflýjanlegu brottför úr þessum heimi tala þeir yfir moldum okkar. Enn tíðkast að kalla til presta þegar hörmuleg- ir atburðir gerast og með litl- um fyrrvara er boðað til minn- ingastunda í kirkjum þar sem fjölmenni kemur saman. Þar er presturinn, eins og svo oft á lífsleið hans, í hlutverki sálu- sorgara. Einstaklingur sem er í starfi þar sem talin er mikil þörf fyrir hann á gleði- og sorgar- stundum er að vinna mikilvæg verk. Prestar eiga að starfa eft- ir kærleiksboðskap Krists og það eiga þeir ekki bara að gera við þægilegar aðstæður, heldur einnig við þær slæmu og óþægi- legu. Þeir geta ekki vikið sér undan og sagt: Mér kemur þetta ekki við. Prestar kunna guðs- orðið betur en við hin, en verða líka að vera tilbúnir að berjast í nafni þess. Biskup Íslands, Agn- es M. Sigurðardóttir, gerir sér grein fyrir þessu. Íslenska þjóðkirkjan hlýtur að láta sig varða um aðstæður þeirra flóttamanna sem hing- að leita í neyð. Agnes M. Sig- urðardóttir hefur ítrekað talað máli þeirra og hvatt til þess að Ísland skoði aðild sína að Dyfl- innarreglugerðinni og ef ekki sé hægt að segja sig frá henni þá eigi að minnsta kosti að túlka hana rúmt. Nýlega steig biskup svo fram á ritvöllinn og beindi því til stjórnvalda að leyfa afg- anskri fjölskyldu að setjast að á landinu. Agnes hefur legið undir ámæli fyrir að tala máli flótta- manna og jafnvel hefur því verið haldið fram að þarna sé biskup rækilega að fara út fyrir vald- svið sitt. Vitanlega er ekki svo. Illa væri komið fyrir biskupi landsins ef hann væri farinn að gleyma kristnum kærleiksboð- skap. Í skrifum sínum og ræð- um vitnar Agnes einmitt iðulega í orð frelsarans. Í nýjustu grein sinni rifjaði hún upp þessi orð Krists: „Því hungraður var ég og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég og þér hýstuð mig.“ Útlendingaandúð fyrirfinnst því miður hér á landi í allt of miklum mæli og hefur eink- um beinst að múslimum. Það er hlutverk kirkjunnar að tala máli mannúðar og náungakær- leika, og ekki síst í umræðum um flóttamenn og útlendinga. Það hefur Agnes M. Sigurðar- dóttir gert af miklum skörungs- skap. Sem betur fer hafa margir prestar landsins tekið und- ir áherslur hennar. Þeir mættu samt vera enn fleiri. n Kærleiksboðskapur biskups Margrét Erla Maack – kjarninn.is Ein eltið og pervert­ arnir finna sína leið Tómas Guðbjartsson læknir – DV Gísli Marteinn Baldursson – eyjan.is Við erfiðar aðstæður sýna menn hvað í þá er spunnið Engum hópi á Íslandi hefur verið þjónað betur en bílaeigendum síðustu 60 árin Myndin Herðubreið Landsmenn hafa notið einmuna veðurblíðu í liðinni viku. Það gerðu líka þessir tveir göngugarpar sem klifu fjallið Herðubreið og slógu upp búðum í gíg sem þar er á toppnum. Gígurinn státar öllu jöfnu ísilögðu vatni í fagurbláum lit. Mynd siGTryGGur ari Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „ Illa væri komið fyr­ ir biskupi lands­ ins ef hann væri far­ inn að gleyma kristnum kærleiks boðskap. Nýleg skoðanakönnun MMR um fylgi stjórnmálaflokkanna er enn ein staðfesting þess að litlu flokkarnir í stjórnarsamstarfinu, Viðreisn og Björt framtíð, eigi ekki framtíð fyrir sér í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Könnun- in var allnokkur sigur fyrir Flokk fólksins sem virðist eiga hljóm- grunn meðal þjóðarinnar. Öðru- vísi er háttað með Sósíalistaflokk Gunnars smára Egilssonar en sam- kvæmt könnunum er ekki nokk- ur áhugi meðal þjóðarinnar á honum. Líklegt hlýtur að teljast að hann deyi drottni sínum. Úr herbúðum Flokks fólksins heyrð- ist á dögunum að formaðurinn inga sæland væri að íhuga funda- herferð um landið og leitaði að þungavigtarfólki sem vildi slást með í för og kynna málstaðinn. inga á uppleið Framsókn í dvala Innan Framsóknarflokksins segja menn nú að ríki lognið á undan storminum. Flokksþing verður í vetur og stefnir í átök og uppgjör fylkinga þeirra sigurðar inga Jó- hannssonar og sigmundar davíðs Gunnlaugssonar. Á milli stend- ur varaformaðurinn Lilja dögg alfreðsdóttir og reynir að miðla málum. Í logninu hreyfist fylgi flokksins lítt upp á við í könnun- um þótt ríkisstjórnin glími við fáheyrðar óvinsældir. Viðreisn vill Gísla Martein Fjölmiðlamaðurinn og borgar- fulltrúinn fyrrverandi, Gísli Mart- einn Baldursson, heldur málstað sínum í skipulagsmálum ákaft fram og af ástríðu. Hefur hann með sér eindrægna stuðnings- menn, en sömuleiðis ákafan hóp andstæðinga sem segja hann vera í stríði gegn einkabílnum. Áberandi er að málflutning- ur Gísla Marteins fer ákaflega í taugarnar á mörgum sjálfstæðis- mönnum sem undra sig á því að þeirra gamli borgarfulltrúi sé nú orðinn einn helsti hugmynda- fræðingur vinstri meirihlutans. Sagt er að Viðreisn reyni nú ákaft að fá Gísla Martein í framboð, en hann mun áhugalítill um það þótt borgarmálin séu honum jafnhugleikin og raun ber vitni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.