Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 16
16 sport Helgarblað 28. júlí 2017 K vennalandsliðið hefur lok- ið keppni á Evrópumótinu í Hollandi, liðið fór með miklar væntingar inn í mótið og var liðið talað mikið upp. Freyr Alexandersson þjálf- ari liðsins fór þar fremstur í flokki, hann talaði um að liðið stefndi á að fara upp úr riðlinum og eftir það væri stutt í úrslitaleikinn. Ljóst er eftir mótið að lítil innistæða var fyrir slíku, liðið skoraði aðeins eitt mark í þremur leikjum og fór liðið heim með skottið á milli lappana. Naflaskoðun er nauðsynleg hjá þjálfarateymi liðsins og mörgum af lykilmönnum liðsins sem féllu á prófinu. Langt er í land ef þetta lið ætlar sér einhverja hluti aftur á stórmóti. Íslenska liðið byrjaði á erfið- um leik gegn Frakklandi þar sem liðið tapaði með einu marki, víta- spyrna sem mörgum fannst um- deild var það sem skipti á milli. Strax eftir fyrsta leik var farið í það að kenna öðrum um, dómaran- um í leiknum var kennt um tap- ið. Leikmenn fóru því með það hugarfar inn í næsta leik að úr- slit síðasta leiks væru ekki liðinu að kenna, þrátt fyrir þá stað- reynd að liðið hélt bolta afar illa og var ekki oft líklegt í leiknum. Í leiknum gegn Sviss sem var ann- ar leikur liðsins var aftur farið í það að bölva dómaranum í stað þess að líta í eigin barm, öllu öðru en frammistöðu liðsins var kennt um. Í síðasta leiknum gegn Austur ríki á miðvikudag fékk svo liðið skell, liðið var eins og höfuð- laus her á leið í orustu. Að litlu var að keppa en heiðurinn var í boði, heiður íslenska liðsins situr eftir í Rotter dam. Freyr lærir ekki af mistökum Ekki er nokkur maður í vafa um að Freyr Alexandersson þjálfari liðsins hefur getu og hæfileika til að ná mjög langt sem þjálfari, hann á þó margt eftir ólært og eitt af því að er að kenna ekki alltaf öðru en sjálfum sér og liðinu um þegar illa fer. Þegar Freyr þjálfaði Leikni í Pepsi deild karla sumar- ið 2015 var það stærsti galli hans að kenna alltaf öðrum um þegar illa fór, slíkt hugarfar smitað- ist inn í lið Leiknis á þeim tíma sem var á köflum gott lið. Brekk- an var hins vegar alltaf stór þegar liðið tapaði því öllu öðru en frammistöðu liðsins var kennt um. Slíkt hið sama einkenndi Frey á Evrópumótinu í Hollandi og það smitaðist inn í hópinn í Hollandi sem datt í þá gryfju að horfa ekki í eigin barm heldur kenna hlutum sem ekki var hægt að breyta um. Ekki meiðslum að kenna Nokkrir leikmenn sem höfðu spilað stórt hlutverk í lands- liðinu duttu út í aðdraganda mótsins vegna meiðsla, þar má nefna Elísu og Margréti Láru Viðarsdætur en báðar meidd- ust alvarlega. Dóra María Lár- usdóttir datt svo út vegna meiðsla en hún hefði verið í aukahlut- verki á mótinu þó vissulega hefði hún getað skipt máli utan vallar sem reyndur leikmaður. Elísa var veikur hlekkur í íslenska lands- liðinu fram að meiðslum henn- ar og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og aðrar sem komu inn í henn- ar stöðu styrktu leik liðsins, Mar- grét Lára hefði verið stórt skarð að fylla fyrir nokkrum árum en í aðdraganda mótsins og á síðasta ári sást að hún var meira vanda- mál í leik liðsins heldur en styrk- ur, ein af ástæðum þess að Freyr valdi að breyta um leikkerfi frá undankeppninni og inn í mótið var til að halda Margréti inni á vellinum. Hún hafði ekki lengur hlaupagetu að spila sem fremsti maður í liði, hún gat ekki pressað og mörkunum var farið að fækka. Í stað þess að halda sig við kerfið sem virkaði reyndi Freyr að breyta kerfinu fyrir gamla hetju, Mar- grét var dragbítur fyrir liðið en á vandamálinu þorði Freyr ekki að taka, þegar Margrét meiddist svo rétt fyrir mót gat Freyr ekki breytt um kerfi enda hafði hann æft lítið annað síðust mánuði. Það sem Freyr getur horft til að íslenska liðinu vantaði öflugan sóknar- mann en Harpa Þorsteinsdóttir sem er lang besti framherji liðsins eignaðist barn í upphafi árs og gat því ekki tekið þátt í undirbúningi iðsins framan af ári, Harpa kom inn á Evrópumótið en alir sem horfðu á leiki liðsins sáu að Harpa var langt því frá að vera í standi til að spila á meðal þeirra bestu. Með Hörpu í 2016 formi hefði landsliðið verið öflugra, öðrum leikmönnum liðsins mistókst að fylla skarð Hörpu og það reyndist blóðugt. Lykilmenn stóðu sig ekki Lykilmenn íslenska liðsins brugð- ust á ögurstundu, leikmenn sem höfðu borið liðið uppi í síðustu undankeppni fundu ekki taktinn í Hollandi. Þar er hægt að nefna Söru Björk Gunnarsdóttir, Dag- nýju Brynjarsdóttir, Guðbjörgu Gunnarsdóttir og Hallberu Guð- ný Gísladóttir. Um er að ræða alla mikilvægustu hlekki landsins, ekki er hægt að gagnrýna Ingi- björgu Sigurðardóttir, Öglu Maríu Albertsdóttir eða Sigríði Láru Garðarsdóttir. Þær komu aldrei við sögu í undankeppni Íslands og höfðu því enga reynslu af keppn- isleikjum með liðinu, Fanndís Friðriksdóttir og Sif Atladóttir geta labbað í burtu af mótinu með höf- uðið hátt. Þær lögðu allt í sölurn- ar og sýndu að þær eiga í fullu tréi við bestu leikmenn heims. Ítarleg naflaskoðun nauðsynleg Eftir mót sem þetta er mikilvægt fyrir landsliðið að setjast niður og gera upp það sem er búið og horfa síðan fram á veginn, nafla- skoðun er nauðsynleg hjá þjálf- arateyminu og fara yfir allt ferl- ið af mótinu og læra af mistökum sínum. Freyr og þjálfarateymið þarf að skoða allt ferlið, voru það mistök að taka ekki æfingarleik á þeim tveimur vikum sem liðið var saman fram að móti? Voru það mistök að tala upp liðið og getu þess, það er hollt og gott að seta sér háleit markmið en það er mikilvægt að hægt sé að ná þeim. Voru það mistök að fara úr 4-3-3 leikkerfinu sem kom liðinu inn á mótið yfir í 3-4-3 kerfið sem spilað var í Hollandi? Var eðlilegt hvern- ig liðið fór út til Hollands, liðið fór út sem þjóðhetjur í stað þess að koma heim sem slíkar. Reynt var að gera hlutina eins og þeir voru hjá strákunum fyrir ári síðan en hlutirnir voru tilgerðarlegir í stað þess að vera eðlilegir. Það er hægt að fara langt á hugarfari og bar- áttu en íslenska liðinu vantar leik- menn sem geta og þora að halda bolta og leikmenn sem ráða við að spila á miklum hraða, of fáir ís- lenskir leikmenn geta það í dag. Er Freyr rétti maðurinn fyrir landsliðið? Eðlilegt er eftir svona mót og slakan árangur að velta því fyr- ir sér hvort Freyr sé rétti maður- inn fyrir liðið, liðið náði betri ár- angri á EM í Svíþjóð fyrir fjórum árum síðar þar sem liðið tók fjög- ur stig í riðli sínum og komst upp úr honum. Freyr hefur sýnt fína takta með liðið en þegar reyndi á fór hann fram úr sér, er það líka eðlilegt að vera með þrjá leik- menn í byrjunarliði í fyrsta leik á stórmóti sem ekki höfðu spil- að alvöru landsleik? Freyr þarf að setjast niður með KSí og sjá hvort ekki sé hægt að laga hlutina og bæta úr því sem miður fór og stefna á Heimsmeistaramótið árið 2019. n Hart barist Stelpurnar reyndu á köflum sitt besta en það dugði ekki til, liðið á langt í land með að vera á meðal þeirra bestu. n Íslenska liðið kemur heim með skottið á milli lappanna n Mikil vonbrigði HörMung Í Hollandi Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Niðurstaða sem erfitt er að kyngja Íslensku stelpurnar voru þungt hugsi á EM í Hollandi þar sem ekkert gekk upp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.