Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 16
16 sport Helgarblað 28. júlí 2017
K
vennalandsliðið hefur lok-
ið keppni á Evrópumótinu
í Hollandi, liðið fór með
miklar væntingar inn í
mótið og var liðið talað mikið
upp. Freyr Alexandersson þjálf-
ari liðsins fór þar fremstur í flokki,
hann talaði um að liðið stefndi á
að fara upp úr riðlinum og eftir
það væri stutt í úrslitaleikinn. Ljóst
er eftir mótið að lítil innistæða var
fyrir slíku, liðið skoraði aðeins eitt
mark í þremur leikjum og fór liðið
heim með skottið á milli lappana.
Naflaskoðun er nauðsynleg hjá
þjálfarateymi liðsins og mörgum
af lykilmönnum liðsins sem féllu
á prófinu. Langt er í land ef þetta
lið ætlar sér einhverja hluti aftur á
stórmóti.
Íslenska liðið byrjaði á erfið-
um leik gegn Frakklandi þar sem
liðið tapaði með einu marki, víta-
spyrna sem mörgum fannst um-
deild var það sem skipti á milli.
Strax eftir fyrsta leik var farið í það
að kenna öðrum um, dómaran-
um í leiknum var kennt um tap-
ið. Leikmenn fóru því með það
hugarfar inn í næsta leik að úr-
slit síðasta leiks væru ekki liðinu
að kenna, þrátt fyrir þá stað-
reynd að liðið hélt bolta afar illa
og var ekki oft líklegt í leiknum. Í
leiknum gegn Sviss sem var ann-
ar leikur liðsins var aftur farið í
það að bölva dómaranum í stað
þess að líta í eigin barm, öllu
öðru en frammistöðu liðsins var
kennt um. Í síðasta leiknum gegn
Austur ríki á miðvikudag fékk svo
liðið skell, liðið var eins og höfuð-
laus her á leið í orustu. Að litlu var
að keppa en heiðurinn var í boði,
heiður íslenska liðsins situr eftir í
Rotter dam.
Freyr lærir ekki af mistökum
Ekki er nokkur maður í vafa um
að Freyr Alexandersson þjálfari
liðsins hefur getu og hæfileika
til að ná mjög langt sem þjálfari,
hann á þó margt eftir ólært og eitt
af því að er að kenna ekki alltaf
öðru en sjálfum sér og liðinu um
þegar illa fer. Þegar Freyr þjálfaði
Leikni í Pepsi deild karla sumar-
ið 2015 var það stærsti galli hans
að kenna alltaf öðrum um þegar
illa fór, slíkt hugarfar smitað-
ist inn í lið Leiknis á þeim tíma
sem var á köflum gott lið. Brekk-
an var hins vegar alltaf stór þegar
liðið tapaði því öllu öðru en
frammistöðu liðsins var kennt
um. Slíkt hið sama einkenndi Frey
á Evrópumótinu í Hollandi og það
smitaðist inn í hópinn í Hollandi
sem datt í þá gryfju að horfa ekki
í eigin barm heldur kenna hlutum
sem ekki var hægt að breyta um.
Ekki meiðslum að kenna
Nokkrir leikmenn sem höfðu
spilað stórt hlutverk í lands-
liðinu duttu út í aðdraganda
mótsins vegna meiðsla, þar má
nefna Elísu og Margréti Láru
Viðarsdætur en báðar meidd-
ust alvarlega. Dóra María Lár-
usdóttir datt svo út vegna meiðsla
en hún hefði verið í aukahlut-
verki á mótinu þó vissulega hefði
hún getað skipt máli utan vallar
sem reyndur leikmaður. Elísa var
veikur hlekkur í íslenska lands-
liðinu fram að meiðslum henn-
ar og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
og aðrar sem komu inn í henn-
ar stöðu styrktu leik liðsins, Mar-
grét Lára hefði verið stórt skarð
að fylla fyrir nokkrum árum en í
aðdraganda mótsins og á síðasta
ári sást að hún var meira vanda-
mál í leik liðsins heldur en styrk-
ur, ein af ástæðum þess að Freyr
valdi að breyta um leikkerfi frá
undankeppninni og inn í mótið
var til að halda Margréti inni á
vellinum. Hún hafði ekki lengur
hlaupagetu að spila sem fremsti
maður í liði, hún gat ekki pressað
og mörkunum var farið að fækka.
Í stað þess að halda sig við kerfið
sem virkaði reyndi Freyr að breyta
kerfinu fyrir gamla hetju, Mar-
grét var dragbítur fyrir liðið en á
vandamálinu þorði Freyr ekki að
taka, þegar Margrét meiddist svo
rétt fyrir mót gat Freyr ekki breytt
um kerfi enda hafði hann æft lítið
annað síðust mánuði. Það sem
Freyr getur horft til að íslenska
liðinu vantaði öflugan sóknar-
mann en Harpa Þorsteinsdóttir
sem er lang besti framherji liðsins
eignaðist barn í upphafi árs og gat
því ekki tekið þátt í undirbúningi
iðsins framan af ári, Harpa kom
inn á Evrópumótið en alir sem
horfðu á leiki liðsins sáu að Harpa
var langt því frá að vera í standi
til að spila á meðal þeirra bestu.
Með Hörpu í 2016 formi hefði
landsliðið verið öflugra, öðrum
leikmönnum liðsins mistókst að
fylla skarð Hörpu og það reyndist
blóðugt.
Lykilmenn stóðu sig ekki
Lykilmenn íslenska liðsins brugð-
ust á ögurstundu, leikmenn sem
höfðu borið liðið uppi í síðustu
undankeppni fundu ekki taktinn
í Hollandi. Þar er hægt að nefna
Söru Björk Gunnarsdóttir, Dag-
nýju Brynjarsdóttir, Guðbjörgu
Gunnarsdóttir og Hallberu Guð-
ný Gísladóttir. Um er að ræða alla
mikilvægustu hlekki landsins,
ekki er hægt að gagnrýna Ingi-
björgu Sigurðardóttir, Öglu Maríu
Albertsdóttir eða Sigríði Láru
Garðarsdóttir. Þær komu aldrei
við sögu í undankeppni Íslands og
höfðu því enga reynslu af keppn-
isleikjum með liðinu, Fanndís
Friðriksdóttir og Sif Atladóttir geta
labbað í burtu af mótinu með höf-
uðið hátt. Þær lögðu allt í sölurn-
ar og sýndu að þær eiga í fullu tréi
við bestu leikmenn heims.
Ítarleg naflaskoðun nauðsynleg
Eftir mót sem þetta er mikilvægt
fyrir landsliðið að setjast niður
og gera upp það sem er búið og
horfa síðan fram á veginn, nafla-
skoðun er nauðsynleg hjá þjálf-
arateyminu og fara yfir allt ferl-
ið af mótinu og læra af mistökum
sínum. Freyr og þjálfarateymið
þarf að skoða allt ferlið, voru það
mistök að taka ekki æfingarleik
á þeim tveimur vikum sem liðið
var saman fram að móti? Voru
það mistök að tala upp liðið og
getu þess, það er hollt og gott að
seta sér háleit markmið en það er
mikilvægt að hægt sé að ná þeim.
Voru það mistök að fara úr 4-3-3
leikkerfinu sem kom liðinu inn á
mótið yfir í 3-4-3 kerfið sem spilað
var í Hollandi? Var eðlilegt hvern-
ig liðið fór út til Hollands, liðið fór
út sem þjóðhetjur í stað þess að
koma heim sem slíkar. Reynt var
að gera hlutina eins og þeir voru
hjá strákunum fyrir ári síðan en
hlutirnir voru tilgerðarlegir í stað
þess að vera eðlilegir. Það er hægt
að fara langt á hugarfari og bar-
áttu en íslenska liðinu vantar leik-
menn sem geta og þora að halda
bolta og leikmenn sem ráða við
að spila á miklum hraða, of fáir ís-
lenskir leikmenn geta það í dag.
Er Freyr rétti maðurinn fyrir
landsliðið?
Eðlilegt er eftir svona mót og
slakan árangur að velta því fyr-
ir sér hvort Freyr sé rétti maður-
inn fyrir liðið, liðið náði betri ár-
angri á EM í Svíþjóð fyrir fjórum
árum síðar þar sem liðið tók fjög-
ur stig í riðli sínum og komst upp
úr honum. Freyr hefur sýnt fína
takta með liðið en þegar reyndi á
fór hann fram úr sér, er það líka
eðlilegt að vera með þrjá leik-
menn í byrjunarliði í fyrsta leik
á stórmóti sem ekki höfðu spil-
að alvöru landsleik? Freyr þarf
að setjast niður með KSí og sjá
hvort ekki sé hægt að laga hlutina
og bæta úr því sem miður fór og
stefna á Heimsmeistaramótið
árið 2019. n
Hart barist Stelpurnar reyndu á köflum
sitt besta en það dugði ekki til, liðið á langt
í land með að vera á meðal þeirra bestu.
n Íslenska liðið kemur heim með skottið á milli lappanna n Mikil vonbrigði
HörMung Í Hollandi
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Niðurstaða sem erfitt er að kyngja
Íslensku stelpurnar voru þungt hugsi á EM
í Hollandi þar sem ekkert gekk upp.