Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 62
38 menning Helgarblað 28. júlí 2017 Vikan í menningarlífinu 4201 íslenskur bíógestur sá seinni-heimsstyrjaldarmyndina Dunkirk um síðustu helgi sem var langvinsælasta mynd helgar- innar í kvikmyndahúsum lands- ins. Það er stjörnuleikstjórinn Christoper Nolan sem leikstýrir þessari sögulegu mynd sem fjall- ar um flótta innikróaðra breskra og franskra hermanna frá Dun- kirk í Frakklandi og yfir Ermar- sund. Vinsælast í bíó Dunkirk Vinsælast á Spotify Ég vil það Lagið Ég vil það með söngvaran- um Chase og rapparanum JóaPé er vinsælasta lagið á íslenska Spotify sem 6920 manns hlusta á daglega, rétt á und- an laginu sem mest er streymt í veröldinni, Despacito. Hinn átján ára Chase Anton Hjaltested er rísandi stjarna og greindi tónlistar- vefmiðillinn Albúmm frá því á dögunum að hann hefði fengið boð um að taka upp nýtt efni í hljóðveri bandaríska tónlistar- mannsins Pharrell Williams. „Mig langaði að pósta hérna smá- vegis um gróskuna í íslensku teknói þessa daganna. Það hafa fjölmargar útgáfur litið dagsins ljós á síðustu vikum, og þá er ég að tala um vínylút- gáfur. Í gær komu út tvær útgáfur á vegum Thule Records. Annars vegar "Exiles" með COLD og "W" með Waage. Fyrir viku síðan kom út fyrsta útgáfan á splunkunýrri útgáfu X/OZ, sem teknóhetjan Exos rekur. Um er að ræða safn- skífuna "Invisible Limits" með Exos, Bjarki, Ruxpin og fleirum. Útgáfan bbbbbb hefur verið ansi iðin við kolann undanfarið. Sú útgáfa er rekin af Bjarka Rúnari, sem átti eitt af teknólögum ársins árið 2016. Á árinu 2017 hafa komið út útgáfur með Bjarki, Vol- ruptus og fleirum. FALK Records útgáfan hafa verið óhræddir við að fara ótroðnar slóðir - og er um að ræða tilraunakenndari hlið- ar teknósins. Nú fyrir u.þ.b viku síðan kom út 12" þar sem lista- mennirnir Fascia og Decanter I.S deila sitthvorri hliðinni. Á Raf- tónar kom út 12" með Kid Sune, þar sem um er að ræða popp- væna teknótónlist. Hingað til er ég einungis að benda á íslenskar útgáfur hjá íslenskum útgáfufyr- irtækjum. Það yrði auðvelt að búa til aðra langloku um íslenskar út- gáfur á erlendum útgáfufyrirtækj- um, en læt það bíða betri tíma. Mér finnst einfaldlega magnað að 2017 er einungis hálfnað og út- gáfa á íslensku teknó hefur sjald- an verið svona öflug.“ Jónas Þór Guðmundsson, vakti athygli á gróskunni í íslensku teknói á umræðuhóp tónlistar- áhugafólks, Þrumur í þokunni, á Facebook. Umræðan G ervigreind og sjálfvirkni- væðing er að taka yfir æ fleiri svið samfélagsins og nú vinna nokkrir ís- lenskir listamenn í samstarfi við erlenda kollega sína að því að sjálfvirknivæða listaheim- inn. Hópurinn sem kallar sig HARD-CORE vinnur að því að þróa sýningarstjóra framtíðar- innar, vélmennið ASAHI sem skipuleggur listasýningar upp á eigin spýtur, velur sýningarrými og listaverk úr gagnagrunni sín- um og staðsetur þau eftir lög- málum handahófsins frekar en fagurfræðilegum smekk. HARD-CORE stefnir á að verða hátæknisprotafyrirtæki í anda Apple og fyrirtækja Elons Musk en á sama tíma má segja að það sé performatíft lista- verk, sem prófar sig áfram með vinnuaðferðir og rými list- heimsins, á sama tíma og það leikur sér með fagurfræði há- tækninnar, skoðar takmarkan- ir mannlegs fegurðarsmekks og svo framvegis. DV hafði uppi á einum af stofnendum þessa dularfulla listahóps, myndlistarmannin- um Sæmundi Þór Helgasyni, og spurði hann út í verkefnið. Vildu engan sýningarstjóra „HARD-CORE er alþjóðlegur hópur sem kom fyrst saman í Amsterdam árið 2011 þar sem við vorum að læra saman í Riet- veld Academy. Við vorum öll að vinna að með stafræna myndlist í einhverjum mæli og fannst ekki vera mikill skilningur á þannig list í skólanum. Þetta var upphaflega ekki hugsað sem listahópur held- ur vildum við hittast utan skóla til að dýpka umræðurnar um verk- in okkar, sem okkur fannst ekki nægileg í skólanum. Við kölluð- um þetta „hardcore session“ vegna þess hversu langar og in- tensífar umræðurnar voru,“ út- skýrir Sæmundur. „Þegar við höfðum kynnst verkum hvert annars svona vel langaði okkur að fara að sýna saman. Í kjölfarið byrjuðu þessar pælingar um hvernig við gætum sett sýningar saman. Við þekktum enga sýningarstjóra og vildum raunar ekkert með þá hafa. Viðhorfið okkar var að listamenn Sýningarstjóri framtíðarinnar verður sjálfvirkt vélmenni n Listahópurinn HARD-CORE þróar nýja tækni í sýningarstjórn n Í framtíðinni mun vélkúratorinn ASAHI 4.0 halda sýningar á eigin spýtur Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is „Það er kannski eitthvað trúarlegt við það að allir séu jafnir fyrir vélmenninu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.