Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 36
SmoothieS: bráðhollir,
fljótgerðir og fallegir
Smoothies eru hinn fullkomni morgunmatur. Rétt samsettir eru þeir bráðhollir og ljúffengir, auk
þess að vera fljótlegir að útbúa.
Matcha er japanskt grænt te, sem er margfalt öflugara en hefð-bundin græn te. Það er stútfullt
af andoxunarefnum, en virku efnin í þeim
eru flavoníð sem ver frumur líkamans og
vinnur gegn öldrun og catecin sem talið er
hefta útbreiðslu krabbameinsfruma, lækka
blóðþrýsting, halda blóðsykurmagni stöðugu
og draga úr líkum á blóðtappa og flúor sem
ver gegn tannskemmdum.
Þessi smoothie er því ekki bara þrusuhollur, heldur góður líka.
Uppskrift (fyrir fjóra)
Innihald:
1 ½ bolli kókosvatn
2 bollar spínat
1 frosinn banani
2 teskeiðar Matcha-grænt te
1 bolli ísmolar
Allt sett í blandara eða matvinnsluvél
og maukað saman.
Uppskrift (fyrir tvo )
Innihald:
1 ½ bolli frosin jarðarber
1 bolli frosin rifsber
1 appelsína, rifin
1 ½ bolli kókosmjólk
2 meðalstórar gulrætur, saxaðar
1 lítil rófa, skræld
Allt sett í blandara eða matvinnsluvél og maukað
saman.
Regnbogasmoothies eru
ekki flóknari samsetn-
ingar en aðrir, en tölu-
vert tímafrekari og því
kannski tilvalið að skella
í þá við sérstök tilefni, en
ekki á virkum degi þegar
maður er á hraðferð.
Innihald:
Rautt lag
1 frosinn banani
½ bolli grísk jógúrt
½ bolli frosin rifsber
½ bolli frosin jarðarber
smá vatn til að blanda
Appelsínugult lag
1 frosinn banani
½ bolli grísk jógúrt
½ bolli frosnar ferskjur
1 lítil appelsína
¼ bolli frosið mangó
smá vatn til að blanda
Gult lag
2 frosnir bananar
½ bolli grísk jógúrt
1 bolli frosinn ananas
smá vatn til að blanda
Grænt lag
2 frosnir bananar
½ bolli grísk jógúrt
1 lúka spínat
1 bolli frosinn ananas
smá vatn til að blanda
Blátt lag
2 frosnir bananar
½ bolli grísk jógúrt
1 bolli frosinn ananas
skvetta af bláum matarlit
smá vatn til að blanda
Fjólublátt lag
1 frosinn banani
½ bolli grísk jógúrt
1 bolli frosin berja-
blanda
smá vatn til að blanda
Ljósfjólublátt lag
1 frosinn banani
½ bolli grísk jógúrt
½ bolli rifin rófa
1 bolli frosin jarðarber
eða rifsber
Leiðbeiningar: Hráefni
fyrir hvert lag fyrir sig
sett í blandara eða
matvinnsluvél og mauk-
að saman. Blandarinn
þrifinn og hráefni fyrir
næsta lag blönduð
saman og svo koll af
kolli. Rauða blandan sett
í hátt glas, næsta lag
sett ofan á og svo koll
af kolli. Afgangs ávöxt-
um raðað á tannstöngul
eða rör og sett ofan á
glasið til skreytingar.
BLeIkuR oG BRáðhoLLuR Jarðar-ber, rifsber og appelsínur eru blandan hér.
GRænn oG GómsætuR Kókosvatn
og Matcha grænt te eru uppistaðan hér.