Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Page 36
SmoothieS: bráðhollir, fljótgerðir og fallegir Smoothies eru hinn fullkomni morgunmatur. Rétt samsettir eru þeir bráðhollir og ljúffengir, auk þess að vera fljótlegir að útbúa. Matcha er japanskt grænt te, sem er margfalt öflugara en hefð-bundin græn te. Það er stútfullt af andoxunarefnum, en virku efnin í þeim eru flavoníð sem ver frumur líkamans og vinnur gegn öldrun og catecin sem talið er hefta útbreiðslu krabbameinsfruma, lækka blóðþrýsting, halda blóðsykurmagni stöðugu og draga úr líkum á blóðtappa og flúor sem ver gegn tannskemmdum. Þessi smoothie er því ekki bara þrusuhollur, heldur góður líka. Uppskrift (fyrir fjóra) Innihald: 1 ½ bolli kókosvatn 2 bollar spínat 1 frosinn banani 2 teskeiðar Matcha-grænt te 1 bolli ísmolar Allt sett í blandara eða matvinnsluvél og maukað saman. Uppskrift (fyrir tvo ) Innihald: 1 ½ bolli frosin jarðarber 1 bolli frosin rifsber 1 appelsína, rifin 1 ½ bolli kókosmjólk 2 meðalstórar gulrætur, saxaðar 1 lítil rófa, skræld Allt sett í blandara eða matvinnsluvél og maukað saman. Regnbogasmoothies eru ekki flóknari samsetn- ingar en aðrir, en tölu- vert tímafrekari og því kannski tilvalið að skella í þá við sérstök tilefni, en ekki á virkum degi þegar maður er á hraðferð. Innihald: Rautt lag 1 frosinn banani ½ bolli grísk jógúrt ½ bolli frosin rifsber ½ bolli frosin jarðarber smá vatn til að blanda Appelsínugult lag 1 frosinn banani ½ bolli grísk jógúrt ½ bolli frosnar ferskjur 1 lítil appelsína ¼ bolli frosið mangó smá vatn til að blanda Gult lag 2 frosnir bananar ½ bolli grísk jógúrt 1 bolli frosinn ananas smá vatn til að blanda Grænt lag 2 frosnir bananar ½ bolli grísk jógúrt 1 lúka spínat 1 bolli frosinn ananas smá vatn til að blanda Blátt lag 2 frosnir bananar ½ bolli grísk jógúrt 1 bolli frosinn ananas skvetta af bláum matarlit smá vatn til að blanda Fjólublátt lag 1 frosinn banani ½ bolli grísk jógúrt 1 bolli frosin berja- blanda smá vatn til að blanda Ljósfjólublátt lag 1 frosinn banani ½ bolli grísk jógúrt ½ bolli rifin rófa 1 bolli frosin jarðarber eða rifsber Leiðbeiningar: Hráefni fyrir hvert lag fyrir sig sett í blandara eða matvinnsluvél og mauk- að saman. Blandarinn þrifinn og hráefni fyrir næsta lag blönduð saman og svo koll af kolli. Rauða blandan sett í hátt glas, næsta lag sett ofan á og svo koll af kolli. Afgangs ávöxt- um raðað á tannstöngul eða rör og sett ofan á glasið til skreytingar. BLeIkuR oG BRáðhoLLuR Jarðar-ber, rifsber og appelsínur eru blandan hér. GRænn oG GómsætuR Kókosvatn og Matcha grænt te eru uppistaðan hér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.