Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 9
Helgarblað 28. júlí 2017 fréttir 9
báðu mig afsökunar og sögðu að
þeim þætti þetta leiðinlegt. Mér
fannst erfitt að heyra að þeir trúðu
mér ekki en síðan fannst mér
mjög þægilegt að fá afsökun frá
þeim. Það var mjög góð afsökun.“
Erfitt að horfa í augu fólks
„Ég ætlaði að komast í gegnum
þetta sjálf en svo hrundi ég niður.
Frænka mín hjálpaði mér mikið,“
segir stúlkan og brosir til frænku
sinnar sem situr við hlið hennar
við borðið. „Ég á mjög erfitt með
samskipti við fólk en það er betra
núna. Hann reyndi að drepa mig.
Hann sagði það við mig, að hann
ætlaði að drepa mig. Hvernig
hann horfði á mig, í augun á mér,
eftir það hef ég ekki getað horft í
augun á fólki, og hef ekki enn þá
getað það.“
Hún heldur áfram:
„Fyrst vildi ég ekki aðstoð, ætl-
aði að fara í gegnum þetta sjálf.
Þetta hefur gerst áður hjá mér en
ekki svona hrottalega. Ég ætlaði
að fara í gegnum þetta sjálf en það
reyndist mér síðan of erfitt.“
Hún fékk aðstoð á BUGL og
þar hitti hún sálfræðing sem hef-
ur aðstoðað hana mikið. Með-
ferðin fer þannig fram að stúlkan
teiknar eða föndrar á meðan hún
svarar spurningum. Sú aðferð
hefur gengið vel.
Fékkstu sjálfsvígshugsanir eftir
þetta eða gerðir þú tilraun til að
svipta þig lífi?
„Nei, þegar þetta gerðist, hugs-
aði ég hversu mikið mig langaði
að lifa,“ svarar hún. „Eina sem ég
hugsaði þarna er, ég er að fara að
deyja. Ég hugsaði hvað mig lang-
aði að gera í lífinu, þannig að ég
hef ekki hugsað þannig því ég var
mjög nálægt dauðanum.“
Þú hugsaðir um alla hlutina
sem þú áttir eftir að gera og það
sem þú áttir eftir að sjá?
„Já, og fjölskylduna mína og
vini mína.“
Á Tinder
Elvar hefur skráð sig á Tinder.
Tinder er vinsælasta stefnumóta-
forrit heims. Þar geta notendur átt
í samskiptum og spjallað. Þann
30. júní sendi Elvar stúlku skila-
boð og vildi kynnast henni nánar,
sendi henni svokallað „Superli-
ke“ en þegar það er gert fær hinn
aðilinn strax skilaboð um að mik-
ill áhugi á nánari kynnum sé fyr-
ir hendi.
„Ég vil að stelpur leggi andlitið
á minnið og passi sig á honum,“
segir stúlkan. „Á Tinder er fullt af
stúlkum sem vita ekki hvað hann
hefur gert.“
Varst þú sátt við upphaflega
dóminn?
„Ég var rosalega ánægð með
dóminn sjálfan. Ég bjóst ekki við
svona þungum dómi en svo eftir
um það bil ár, kemur hann bara
út. Það skil ég ekki. Það er ekki
neitt. Mér líður svolítið eins og ég
sé í fangelsi en ekki hann.“
Önnur stúlka hefði kannski ekki
lifað
Stúlkan segir að Stígamót hafi
hjálpað henni mikið. Hún fór þó
aðeins í einn tíma. Það sé hins
vegar langur biðlisti og ekki auð-
velt að komast að.
„Ég talaði við eina konu hjá
Stígamótum sem sagði að ef
þetta hefði ekki verið ég, þá hefði
þetta verið einhver önnur,“ seg-
ir stúlkan og heldur áfram eftir
stutta þögn. „Ég er meira ánægð
að þetta hafi komið fyrir mig því
ég lifði þetta af. Ef það hefði ver-
ið einhver önnur, ekki nógu sterk
og hann hefði drepið hana. Hún
sagði að ef þetta hefði ekki ver-
ið ég, hefði þetta verið önnur því
að hann var bara búinn að plana
þetta. Ég skildi þetta betur eftir
að ég fór í Stígamót.“
Hver er þín draumaniður-
staða?
„Ef það er möguleiki að koma
honum í annað hverfi, sem væri
hvorki nálægt mér eða hinni
stelpunni. Bara sem lengst frá
okkur,“ svarar hún. „Þannig að ég
geti gengið um hverfið og farið
með litla bróður minn í sund.“ n
„Núna er ég
hætt að
fara ein út. Ef ég
fer, þá reyni ég að
fara með einhverj-
um.
„Finnst hann
búinn að
gera nóg til að ég
ætti að fá nálg-
unarbann.
Sterkir
í Stálinu í
yfir 45 ár