Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 2
2 Helgarblað 28. júlí 2017fréttir
Spurning vikunnar Hræðist þú jarðskjálfta?
„Nei, ekkert sérstaklega. Það væri kannski annað mál ef
ég ætti heima í Hveragerði."
Sindri Hrafn Stefánsson
„Já, ef hann er kraftmikill. Ég hef einu sinni verið inni í
húsi í sterkum jarðskjálfta. Það var fyrir um það bil 40
árum og þá varð ég nokkuð hrædd."
Elín Park
„Já, ég er dauðhrædd við jarðskjálfta. Það fer samt eftir
því hvar maður er. Uppi á efri hæð er ömurlegt en niðri á
jörðu er ég rólegri."
Ásbjörg Poulsen
„Ekki beint. Þeir koma og maður bara tekur því."
Eyrún Jörgensen
Frá munaðarleysingja-
hæli til Bessastaða
Læðan Títa tekur við keflinu á Bessastöðum eftir hundakúnstir frá árdögum lýðveldisins
Þ
ann 1. ágúst næstkom-
andi er eitt ár liðið frá því
að Guðni Th. Jóhannesson
tók við embætti forseta Ís-
lands, sá sjötti í röðinni. Eins og
gera mátti ráð fyrir hefur Guðni
komið með nýjar áherslur í starf
forsetaembættisins. Hann er í
góðu sambandi við landsmenn
gegnum Facebook-síðu embættis-
ins og þá hefur alþýðleg framkoma
hans unnið hug og hjörtu landans.
Það var einmitt slíkt atvik sem er
kveikjan að þessari umfjöllun.
Blaðamaður DV varð vitni að því
þegar forsetinn burðaðist með
tvo stóra poka af kattasandi út úr
Kringlunni.
Það vita nefnilega fæstir að
hinn nýi forseti og fjölskylda hans
innleiddu stórkostlega byltingu
á Bessastöðum. Í fyrsta skipti frá
því að Bessastaðir urðu aðsetur
forseta Íslands ræður köttur þar
nú ríkjum eftir nær samfelldar
hundakúnstir frá upphafi lýðveld-
isins.
Fyrir rúmum ellefu árum heim-
sóttu Guðni og Rut, dóttir hans,
Kattholt. Stúlkan féll þar fyrir lítill
snjóhvítri læðu sem hlaut nafnið
Afrótíta, með t-i. Nafnið var þó
fljótlega stytt í Títa. Í samtali við
Fréttablaðið í aðdraganda forseta-
kosninganna í fyrra sagði Guðni:
„Títa ræður öllu á heimilinu og
le yfir okkur að gista í húsinu. Það
er mikill drottningarbragur yfir
henni og hún vill fá þá virðingu
sem henni finnst hún eiga skilið.“
Í því ljósi verður að teljast lík-
legt að hin aldna læða sé hæst-
ánægð með hinn nýja íverustað á
Bessastöðum sem loks hæfir kon-
unglegri tign hennar. Títa hefur
risið úr örbirgð upp í hæsta þrep
íslenska gæludýrasamfélags og
sendir sjálfan forsetann í kaup-
staðarferð til þess að hún geti ör-
ugglega gengið örna sinna.
Sveinn Björnsson
Sveinn fékk hið vandasama hlut-
verk að móta embætti forseta frá
grunni. Hann hélt ekki eiginlegt
gæludýr á Bessastöðum í valdatíð
sinni en kom þó upp myndarlegu
kúabúi við Bessastaði.
Ásgeir Ásgeirsson
Ásgeir og eiginkona hans, Dóra
Þórhallsdóttir, fengu sér hund á
Bessastaði og hlaut hann nafnið
Kátur. DV hefur engar upplýsingar
um hverrar tegundar Kátur var en
líkur eru leiddar að því að hann
hafi verið íslenskur alþýðuhundur
af blendingskyni.
Kristján Eldjárn
Á fyrsta kjörtímabili Kristjáns
fékk hann hreinræktaðan íslensk-
an fjárhund að gjöf frá Ívari Eske-
lund, forstjóra Norræna hússins.
Hundinn keypti Ívar af Sigríði
Pétursdóttur á Ólafsvöllum sem
oft hefur verið nefnd verndari ís-
lenska fjárhundsins. Tegundin var
í útrýmingarhættu þegar Sigríður
hóf ræktunarstarf sitt með ör-
fáa hunda. Starf hennar varð til
þess að íslenska fjárhundinum
var bjargað frá útrýmingarhættu
og veitti Ólafur Ragnar Grímsson
henni riddarakross fyrir störf sín
árið 2008. Hundurinn sem Krist-
ján fékk að gjöf hlaut nafnið Sám-
ur og var hann í sérstöku uppá-
haldi hjá Ingólfi Eldjárn, yngsta
syni forsetahjónanna.
Vigdís Finnbogadóttir
Vigdís var kosin forseti Íslands
sumarið 1980 og tók við emb-
ættinu þann 1. ágúst. Hún gegndi
embættinu í fjögur kjörtímabil.
Þannig vildi til að áðurnefndur
Sámur varð eftir á Bessastöðum
þegar Kristján Eldjárn og fjöl-
skylda hans fluttu þaðan. Sám-
ur varð því fyrsti formlegi starfs-
maður forsetaembættisins af
dýrakyni. Slíkt þekkist víða er-
lendis og má sem dæmi nefna
köttinn Larry sem fluttist inn
í Downingstræti 10 árið 2011
þegar David Cameron var for-
sætisráðherra. Hann þjónar nú
Theresu May og hefur starfstit-
ilinn „Yfirmaður músaveiðiráðu-
neytisins“. Bessastaða-Sámur
hlaut hinsvegar ekk ert formlegt
starfsheiti og hann geispaði gol-
unni á fyrsta kjörtímabili Vigdísar.
Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar og seinni eig-
inkona hans, Dorrit Moussai-
eff, héldu hund á Bessastöð-
um og leituðu ekki langt yfir
yfir skammt þegar kom að nafn-
giftinni. Hundurinn var nefnd-
ur Sámur eins og forveri hans
á Bessastöðum. Af og til var
minnst á Sám í fjölmiðlum í
valdatíð Ólafs en hápunktur-
inn var líklega þegar umræður
um lögheimili Dorritar og skatt-
greiðslur báru hæst. Þá var for-
setafrúin spurð að því hvort hún
hygðist flytja af landi brott en þá
sagðist hún ekki geta yfirgefið
Sám: „Ég sakna Sáms meira en
Ólafs,“ sagði Dorrit kankvís við
það tilefni. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Dorrit og Sámur Sámur er
afar hændur að Dorrit
Hefðarköttur Læðan Títa
Guðni Th. Jóhannesson