Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Síða 32
Smáhlutirnir Skapa
Sjarmann í rýminu
Hrefna Daníelsdóttir, betur þekkt sem Hrefna Dan, er mörgum kunn úr blogg-
heimum en hún hefur skrifað um
hvers konar lífsstílstengd mál í
nokkur ár, undanfarið á vefnum
trendnet.is. Hrefna býr ásamt eigin-
manni sínum, Páli Gísla Jónssyni, og
þremur dætrum í fallegu einbýlishúsi
á Akranesi. Fjölskyldan flutti í húsið
í mars á þessu ári en undirbúningur-
inn var aðallega fólginn í því að mála
allt hátt og lágt og skipta um gólfefni.
Hrefna, sem starfar á fasteignasölu
og stundar löggildingarnám á því
sviði, segist mjög áhugasöm um
innanhússhönnun en í framtíðinni
hyggst hún nýta sér áhugann í
tengslum við starfið. „Ég gæti jafnvel
hugsað mér að leggja stund á nám
við innanhússhönnun. Fyrir mér eru
það litlu hlutirnir sem breyta öllu í
rýminu og skapa sjarmann.“
Nýtt líf á nýjum stað
Hrefna er óhrædd við að breyta til
heima hjá sér en það gerir hún helst
með því að skipta skrautmunum út
og færa þá á milli herbergja. „Mér
finnst mjög gaman að gefa hlutun-
um nýtt líf, á nýjum stað í húsinu.
Ég til dæmis færi plönturnar mínar
oft á milli herbergja. Það sama gildir
um púða og þessháttar. Það eru smá-
hlutirnir eða skrautmunirnir sem
gera rýmin svo falleg. Þeir skapa
sjarmann í herbergjunum. Það er
svo auðvelt að breyta litapallettunni
bara með því að bæta við einum
púða og mynd í svipuðum litum.
Einn bleikur púði getur alveg breytt
allri ásýndinni.“ Hrefna segist aðal-
lega fá hugmyndir þegar hún kemur
á önnur heimili en snjallsímaforritið
Instagram er einnig uppspretta hug-
mynda. „Þá slæ ég inn myllumerki
í leitarstrenginn og skoða svo það
sem kemur upp,“ segir hún og bætir
við að myndabankinn Pinterest hafi
einnig komið sér mjög vel þegar
þau hjónin voru að koma sér fyrir í
húsinu.
Verið óhrædd við liti, ekki festast í hvítu
Spurð að því hvað heilli hana mest
í innanhússhönnun um þessar
mundir segist Hrefna mikið fyrir
að breyta og bæta við litum, bæði á
veggjum og í skrautmunum. „Mér
finnst litir æðislegir. Flestir eru
með allt hvítt eða grátt heima hjá
sér en maður á að vera óhræddur
við að poppa stemninguna upp
með öðrum litum. Svo verður
maður að vera óhræddur við að
mála veggina. Ekki festast í hvítu.
Það er svo magnað hvað hægt er
að gera fyrir rýmin með fallegum
litum,“ segir hún og bætir við að
henni finnist einnig mikilvægt að
heimili séu persónuleg og í takt við
þarfir íbúanna. „Þetta er til dæmis
auðvelt að gera með skemmti-
legum ljósmyndum af fjölskyldu
og vinum. Ég er mjög dugleg að
láta prenta myndir sem ég hef
birt á Instagram og svo skreyti ég
heimilið með þeim,“ segir Hrefna
og bendir á að slíka prentþjónustu
sé meðal annars hægt að kaupa á
vefnum printem.is.
innlit
Birta heimsótti lífsstílsbloggarann Hrefnu Dan
Skreytir
með
Skófatnaði
Hrefna segir
suma skó of fal-
lega til að fela
inni skáp og því
notar hún þá
líka sem skraut
ef svo ber
undir. Plakatið
er frá íslenska
hönnunarmerk-
inu Scintilla og
líkt og í flestum
herbergjum
hússins eru
plöntur í svefn-
herberginu.