Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Page 33
„Ég til
dæmis færi
plönturnar
mínar oft á milli
herbergja. Það
sama gildir um
púða og þess
háttar. Það eru
smáhlutirnir eða
skrautmunirnir
sem gera rýmin
svo falleg.
Listaverk og Ljósmyndir
Takið eftir því hvernig myndahillan
er máluð í sama lit og veggirnir.
„Ég sá þetta einmitt á Pintrest og
spreyjaði svo bara hillurnar í sama
lit og vegginn. Á hillunum eru
myndir af okkur fjölskyldunni og svo
eru þarna listaverk eftir stelpurnar
mínar og eitt eftir sjálfa mig frá því
að ég var lítil stelpa.“ MYNDIR BB
skiLaboðaveggur
fjöLskyLdunnar
Snoturt lítið eldhúsrými og
öllu haganlega komið fyr-
ir. Kringlótta borðið er úr
IKEA en stólarnir fylgdu
húsinu. Hrefna málaði þá
og puntaði með gæru-
skinni sem hún keypti í
Bauhaus. Járnamottan
fyrir ofan borðið er hins
vegar smíðaverk eftir
eiginmanninn sem málaði
grindina og klippti til.
„Þetta er skilaboðaveggur
fjölskyldunnar. Boðskort,
fallegar áminningar sem
við útbúum fyrir hvert ann-
að, ljósmyndir og þess
háttar.“
með gott
auga fyrir
smáatriðum
Hrefna Dan hefur
næmt fegurðar-
skyn og fer létt
með að fegra og
breyta stemningu
í herbergjum með
lítilli fyrirhöfn.
hjarta heimiLisins „Mér finnst mikilvægt að anddyrið sé fallegt og taki vel á
móti fólki sem kemur inn. Þetta er eiginlega hjarta heimilisins,“ segir Hrefna. Stiga-
handriðið var áður ljósrautt en til að kalla fram fegurðina í handverkinu völdu þau
dökka, glansandi akrýlmálningu. Spegilinn var keyptur í Esja Decor.
svart undir súð Baðherbergið er undir súð og veggirnir, gólfið og baðkarið eru
máluð í sama svarta litnum sem heitir Black Decor og fæst hjá Slippfélaginu. „Vaska-
borðið er stofuskápur úr IKEA sem við gerðum að baðskáp. Það var enginn skápur
sem heillaði mig svo við leystum þetta bara svona,“ segir húsfreyjan útsjónarsama.
settu fiLmu á innréttinguna Hjónin fóru ódýru leiðina þegar kom að því að taka eldhúsið í gegn. Þau keyptu svarta filmu með viðaráferð í Bauhaus og fengu svo
félaga sinn til að „filma“ innréttinguna eftir kúnstarinnar reglum. „Allt í allt kostaði efnið eitthvað í kringum fimmtán þúsund krónur og við erum mjög ánægð með útkomuna.“