Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Síða 36
2 Hvíl í friði Helgarblað 1. september 2017KYNNINGARBLAÐ
Prentstofan Hvíta Örkin, sem er til húsa á Hótel Natura (Hótel Loftleið-
um) við Reykjavíkurflugvöll,
veitir almenna prentþjón-
ustu af ýmsu tagi en hefur
skapað sér mikla sérstöðu
við hönnun og framleiðslu
sálmaskráa fyrir útfarir.
Hvíta örkin er þekkt fyrir afar
vönduð vinnubrögð á þessu
sviði, sem og þjónustu sem er
í senn persónuleg, nærgætin
og afar sveigjanleg.
„Það er misjafnt hvað
fólk vill hafa mikil afskipti af
hönnun sálmaskrárinnar.
Sumir hafa ekki áhuga á að
lesa yfir áður en prentað er,
en þá biðjum við presta eða
organista að gera það. En
aðrir eru nákvæmari og vilja
fá að sjá hvað þeir eru að
fá og þá bjóðum við fólki að
koma til okkar og það sest
hérna við tölvuna hjá mér á
meðan ég er að brjóta um,“
segir Ögmundur Kristinsson,
annar eigenda fyrirtækisins.
Blaðamaður hefur á orði
að þetta hljómi sem mjög
persónuleg þjónusta:
„Já, vissulega. Þetta eru
auðvitað viðkvæmar að-
stæður og oft kemur fólk
hingað í sorg, eðli málsins
samkvæmt. Við kappkost-
um að vinna af nærgætni
og útbúum sálmaskrárnar
þannig að fólk viti hvað það
er að fá hjá okkur og það sjái
hvernig prentgripurinn mun
líta út í kirkjunni, því oft líta
hlutir öðruvísi út á tölvuskjá
en á prenti. Það er í sjálfu sér
ekki gleðiefni en þó ánægju-
leg staðreynd að vegna okkar
vinnubragða og viðmóts
leitar fólk til okkar aftur. Það
er lífsins gangur að margir
þurfa á þjónustu sem þessari
að halda oftar en einu sinni
og okkur þykir vænt um að
fólk treysti okkur fyrir þess-
um vandasömu verkefnum á
erfiðum stundum.“
Þó að Hvíta Örkin sé stað-
sett vestarlega í Reykjavík
vinnur fyrirtækið þessi verk-
efni fyrir fólk um allt land: „Við
fáum mikið af verkbeiðnum
utan af landi. En fólk í viðkom-
andi byggðarlagi hefur þá
einhvern tíma séð sálmaskrá
frá okkur við útför og hefur
þess vegna samband þegar
það þarf á þessari þjónustu
að halda. Þannig hefur orð-
sporið breiðst út. Þegar við
erum búin að tala við prestinn
eða organistann á viðkom-
andi stað er sálmaskráin lesin
yfir og við sendum pdf-skjal
á milli. Af því að við erum við
Reykjavíkurflugvöll sendum
við þetta stundum með flugi
eða, sem er algengara, að
einhver aðstandandi sem
ætlar að vera við útförina,
kemur við og tekur sálma-
skrána,“ segir Ögmundur.
Þegar sálmaskrár eru
prentaðar vegna útfara á
höfuðborgarsvæðinu sjá
starfsmenn Hvítu Arkarinnar
hins vegar sjálfir um að koma
efninu til viðkomandi útfarar-
stofu til að tryggja að það
lendi ekki í rangri kirkju.
Ögmundur mælir með
því að fólk sé tímanlega í að
panta prentun sálmaskrár.
„Við gerum okkur grein fyrir
því að þessi verk eru oft með
seinni skipunum. Í dag er til
dæmis útför klukkan 13 sem
við gerðum sálmaskrá fyrir í
morgun af því að hún var ekki
tilbúin fyrr. Við erum yfirleitt
alltaf síðastir í röðinni, fólk er
seint til vegna þess að það
þarf að huga að svo mörgu
við undirbúning útfararinn-
ar. Við björgum alltaf öllu og
stökkvum til hingað á kvöldin
eða um helgar ef þarf.“
Prentsmiðjan var áður
í eigu Flugleiða (sem síðar
varð Icelandair) en núverandi
eigendur keyptu hana árið
1993. Prentsmiðjan vinnur
mikið fyrir Icelandair og held-
ur netfanginu prentstofan@
icelandair.is. Eigendur eru
tveir, Ögmundur Kristinsson
og Hjalti Valur Helgason. Auk
þeirra starfa á stofunni Jón
Arason og Ólafur Bergmann.
Sem fyrr segir er Hvíta Örkin
staðsett á Hótel Loftleiðum
við Reykjavíkurflugvöll og að-
gengi að stofunni er gott.
Heimasíða er
www.hvitaorkin.is og
símanúmer: 551-0255.
Prenta sálmaskrár fyrir útfarir
HVÍtA ÖRKIN
Skemmuvegi 48, 200 Kópavogi 557 6677 shelgason@shelgason.is shelgason.is
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán-fim 9-18
Föstudaga 9-17
Laugardaga 10-14
SENDUM FRÍTT
UM ALLT LAND