Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Side 45

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Side 45
KYNNING „Búðin verður barmafull af mjög skemmtilegum og krassandi vörum“ Valgeirsbakarí, Hólagötu 17, Ytri-NjarðVík Jón Árilíusson og starfsfólk hans í Val-geirsbakaríi í Njarðvík er í óða önn að undirbúa ljósanæturhelgina. „Hillurnar í Valgeirsbakaríi svigna und- an mjög skemmtilegum og krassandi vörum og ætlum við hreykin að taka á móti fólki um helgina og sýna því afraksturinn af puðinu,“ segir jón. í dag er Valgeirsbakarí verslun með brauðmeti og tertur. en kaffihús verður opnað á staðnum fljótlega. jón Árilíusson er eigandi kökulistar sem keypti Val- geirsbakarí árið 2015 en bakaríið hefur starfað í 47 ár og er mikilvægur þáttur í bæjarlífinu í reykjanesbæ. „Þetta hefur gengið framar björtustu vonum og ég þreyt- ist ekki á að segja frá því að suðurnesjamenn eru einstakt fólk. góðir viðskiptavinir og mikill náungakærleikur ríkj- andi. Hefur okkur verið tekið afskaplega vel hér.“ eitt af sérkennum köku- listar og Valgeirsbakarís eru súrdeigsbrauðin sem hafa notið fádæma vinsælda. Þar koma við sögu aldagamlar aðferðir í brauðbakstri þar sem ekkert ger er notað við framleiðsluna. Þetta er lang- tíma hefunarbrauð. „Við verðum með nýjungar í þeim á ljósanótt sem eru steinbökuð súrdeigsbrauð með kanill og rúsínum og einnig steinbökuð tómata- brauð og partíbrauð,“ segir jón og heldur áfram að telja upp sitthvað af kræsingunum sem í boði verða: „Við verðum með skemmti- lega flóru af girnilegum tert- um til að setja á kaffiborðið. Meðal nýjunga er skyrterta með hindberjahlaupi. Þá verður okkar sívinsæla núg- gat- og skógarberjaterta, sem og súkkulaðimousse með kirsuberjabragði og gana- súkkulaðibotni og valhnetu- marensbotni. Fjölmargar aðrar girnilegar og frumlegar tertur verða á boðstólum.“ aðrar nýjungar er tart- arskeljar með jarðarberja- fyllingu og sítrónu- og mintutartar. „síðan verðum við með margar tegundir af frönskum makkarónum ásamt svo öllu hinu góð- gætinu okkar,“ segir jón. Valgeirsbakarí er staðsett að Hólagötu 17 í Ytri-Njarðvík. um ljósanæturhelgina verð- ur afgreiðslutíminn lengdur og verður opið frá kl. 7 til 18 föstudag, laugardag og sunnudag. „Við óskum öllum gleðilegr- ar ljósanæturhelgar um leið og við bjóðum alla hjartan- lega velkomna í Valgeirsbak- arí þar sem borðin svigna undan kræsingum og góður andi mun svífa yfir vötnun- um,“ segir jón. aðspurður segir hann að það sé alltaf geysilega mikið að gera á ljósanótt og hann komi til með að bæta við heilmiklum aukamannskap til að anna fjöldanum sem mun leggja leið sína í bakaríið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.