Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 45
KYNNING
„Búðin verður barmafull
af mjög skemmtilegum og
krassandi vörum“
Valgeirsbakarí, Hólagötu 17, Ytri-NjarðVík
Jón Árilíusson og starfsfólk hans í Val-geirsbakaríi í Njarðvík
er í óða önn að undirbúa
ljósanæturhelgina. „Hillurnar
í Valgeirsbakaríi svigna und-
an mjög skemmtilegum og
krassandi vörum og ætlum
við hreykin að taka á móti
fólki um helgina og sýna því
afraksturinn af puðinu,“ segir
jón.
í dag er Valgeirsbakarí
verslun með brauðmeti og
tertur. en kaffihús verður
opnað á staðnum fljótlega.
jón Árilíusson er eigandi
kökulistar sem keypti Val-
geirsbakarí árið 2015 en
bakaríið hefur starfað í 47
ár og er mikilvægur þáttur í
bæjarlífinu í reykjanesbæ.
„Þetta hefur gengið framar
björtustu vonum og ég þreyt-
ist ekki á að segja frá því að
suðurnesjamenn eru einstakt
fólk. góðir viðskiptavinir og
mikill náungakærleikur ríkj-
andi. Hefur okkur verið tekið
afskaplega vel hér.“
eitt af sérkennum köku-
listar og Valgeirsbakarís eru
súrdeigsbrauðin sem hafa
notið fádæma vinsælda. Þar
koma við sögu aldagamlar
aðferðir í brauðbakstri þar
sem ekkert ger er notað við
framleiðsluna. Þetta er lang-
tíma hefunarbrauð.
„Við verðum með nýjungar
í þeim á ljósanótt sem eru
steinbökuð súrdeigsbrauð
með kanill og rúsínum og
einnig steinbökuð tómata-
brauð og partíbrauð,“ segir
jón og heldur áfram að telja
upp sitthvað af kræsingunum
sem í boði verða:
„Við verðum með skemmti-
lega flóru af girnilegum tert-
um til að setja á kaffiborðið.
Meðal nýjunga er skyrterta
með hindberjahlaupi. Þá
verður okkar sívinsæla núg-
gat- og skógarberjaterta,
sem og súkkulaðimousse með
kirsuberjabragði og gana-
súkkulaðibotni og valhnetu-
marensbotni. Fjölmargar
aðrar girnilegar og frumlegar
tertur verða á boðstólum.“
aðrar nýjungar er tart-
arskeljar með jarðarberja-
fyllingu og sítrónu- og
mintutartar. „síðan verðum
við með margar tegundir
af frönskum makkarónum
ásamt svo öllu hinu góð-
gætinu okkar,“ segir jón.
Valgeirsbakarí er staðsett
að Hólagötu 17 í Ytri-Njarðvík.
um ljósanæturhelgina verð-
ur afgreiðslutíminn lengdur
og verður opið frá kl. 7 til
18 föstudag, laugardag og
sunnudag.
„Við óskum öllum gleðilegr-
ar ljósanæturhelgar um leið
og við bjóðum alla hjartan-
lega velkomna í Valgeirsbak-
arí þar sem borðin svigna
undan kræsingum og góður
andi mun svífa yfir vötnun-
um,“ segir jón. aðspurður
segir hann að það sé alltaf
geysilega mikið að gera á
ljósanótt og hann komi til
með að bæta við heilmiklum
aukamannskap til að anna
fjöldanum sem mun leggja
leið sína í bakaríið.