Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Síða 68
44 menning - SJÓNVARP
Sjónvarpsdagskrá
RÚV Stöð 2 Sjónvarp Símans
Helgarblað 1. september 2017
Sunnudagur 3. september
07.00 KrakkaRÚV
07.01 Kioka
07.08 Nellý og Nóra
07.15 Sara og önd
07.22 Klingjur
07.34 Hæ Sámur
07.41 Begga og Fress
07.53 Póló
07.59 Kúlugúbbarnir
08.22 Úmísúmí
08.45 Mói
08.56 Söguhúsið
09.03 Millý spyr
09.10 Letibjörn og læmingj-
arnir
09.17 Drekar
09.40 Undraveröld Gúnda
09.52 Klaufabárðarnir
10.05 Vísindahorn Ævars
10.15 Frakkland - Ísland
(EM karla í körfubolta)
12.55 Eldhugar íþróttanna
13.20 Slóvenía - Grikkland
(EM karla í körfubolta)
15.10 Walt Disney
Heimildarmynd um Walt
Disney sem byggði upp
eitt mesta stórveldi
skemmtanaiðnaðarins.
Disney-samsteypan
hefur ekki aðeins sópað
að sér fleiri Óskarsverð-
launum en nokkur önnur
heldur fundið upp nýtt
listform í kvikmyndum
og hannað skemmti-
garða sem eiga engan
sinn líka.
16.00 Menningin - saman-
tekt
16.20 Í fullorðinna manna
tölu
17.05 Alheimurinn
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar
18.25 Basl er búskapur
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Loforð (1:4)
Ný íslensk þáttaröð
fyrir alla fjölskylduna.
Hanna og Baldur eru
ósköp venjulegir krakkar
í Reykjavík. Lífið tekur
stakkaskiptum þegar
foreldrar þeirra ákveða
að skilja.
20.15 Sögustaðir með Einari
Kárasyni
20.45 Poldark
21.45 Christopher Jefferies
missir æruna
22.50 Bless, tungumál
(Adieu au langage)
Frönsk kvikmynd eftir
Jean-Luc Godard. Gift
kona og einhleypur
karlmaður eiga í leyni-
legu ástarsambandi og
hundur flækist úr borg í
sveit. Árstíðirnar líða og
leiðir þeirra liggja sundur
og saman á ný. Myndin
hlaut verðlaun á kvik-
myndahátíðinni í Cannes
2014. Leikarar: Héloïse
Godet, Kamel Abdelli og
Richard Chevallier. Atriði
í myndinni eru ekki við
hæfi barna.
23.55 Útvarpsfréttir í
dagskrárlok
07:00 Strumparnir
07:25 Waybuloo
07:45 Grettir
08:00 Ævintýraferðin
08:10 Kormákur
08:20 Blíða og Blær
08:45 Pingu
08:50 Tommi og Jenni
09:15 Kalli kanína
09:40 Lína langsokkur
10:05 Lukku láki
10:30 Ninja-skjaldbökurnar
10:55 Friends
12:00 Nágrannar
13:45 Friends
14:10 The X Factor 2017
15:15 Hið blómlega bú
15:50 Út um víðan völ
16:25 Feðgar á ferð
16:55 Hvar er best að búa
17:40 60 Minutes (
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Sportpakkinn
19:10 World of Dance
19:55 Landhelgisgæslan
20:20 The Loch
21:05 The Sinner
spennuþættir með
Jessicu Biel og Bill
Pullman sem fjallar um
unga móður sem glímir
við óútskýrða og tilvilj-
anakennda ofbeldisfulla
hegðun sem hún og aðrir
sem þekkja til kunna
engin skil á.
21:50 X Company
22:35 60 Minutes
23:20 Suits
00:10 The Sandham
00:55 Broadchurch
01:45 Broadchurch
03:25 James White
Dramatísk mynd frá
2015. Utanfrá séð
mætti halda að hinn
rótlausi James White,
sem er á þrítugsaldri, sé
haldin einhvers konar
sjálfseyðingarhvöt og
virðingarleysi gagnvart
sjálfum sér og öðrum.
Innra með sér er hann
hins vegar góð persóna
sem þráir að koma lífi
sínu á réttan kjöl. Þegar
móðir hans, Gail, byrjar
að færast hraðar og
hraðar nær dauðanum
vegna banvæns og
ólæknandi sjúkdóms.
04:50 100 Code
Hörkuspennandi þættir
sem gerast í Stokkhólmi
en þegar ungar konur
finnast látnar eftir að
hafa verið myrtar á
hrottalegan hátt er
rannsóknarlögreglu-
maðurinn Tommy
Conley fengin að láni frá
New York til að aðstoða
lögregluna í Stokkhólm
til þess að leysa þessa
glæpi.
06:20 Friends
06:00 Síminn + Spotify
08:00 Everybody Loves
Raymond
08:20 King of Queens
08:45 King of Queens
09:05 How I Met Your
Mother
09:50 The McCarthys
10:15 Speechless
10:35 The Office
11:00 The Voice USA
12:30 Survivor
13:15 Playing House
13:40 Million Dollar Listing
14:25 No Tomorrow
15:10 The Muppets
15:35 Rules of
Engagement
16:00 The Odd Couple
16:25 Everybody Loves
Raymond
16:50 King of Queens
17:15 How I Met Your
Mother
17:40 Hvíti kóalabjörninn
19:05 Friends with Benefits
19:30 This is Us
20:15 Doubt
Lögmannadrama af
bestu gerð. Lögmaður
felur fyrir umbjóðanda
sínum, heillandi skurð-
lækni, sem er sakaður
um hrillilegt morð á
kærustu sinni fyrir 24
árum.
21:00 Law & Order: Special
Victims Unit
21:45 Elementary
22:30 House of Lies
23:00 Damien.
23:45 Queen of the South
00:30 The Walking Dead
01:15 The Good Fight
02:00 Taken
02:45 Happyish
03:15 Law & Order: Special
04:00 Elementary
Sherlock Holmes og
Dr. Watson leysa flókin
sakamál í New York
borg nútímans.
04:45 House of Lies
05:15 Damien (8:10)
Spennuþáttaröð um
ungan mann sem
kemst að því að hann
er ekki eins og fólk er
flest. Margir muna
eftir Damien Thorn sem
var andsetinn krakki í
myndinni The Omen
sem sló í gegn árið
1976. Núna er Damien
orðinn fullorðinn og
alveg grunlaus um
hin djöfullegu öfl sem
umlykja hann. Aðal-
hlutverkin leika Bradley
James (Merlin), Barbara
Hershey og Megalyn
Echikunwoke.
Beðið eftir spennunni
P
oldark er á kominn aftur
á skjáinn hjá RÚV. Veri
hann velkominn! Það
verður að segjast eins
og er að atburðarásin í fyrstu
þáttunum er ekki verulega
spennandi. Það fór samt smá
hrollur um mann þegar gamla
konan, Agatha frænka, einn
sterkasti karakter þessa mynda-
flokks, sagði myrkri röddu að
bölvun hvíldi yfir nýfæddum
syni Elísabetar. Í þáttum eins
og þessum boða svoleiðis spár
ekki gott. Það flækir málið svo
verulega að svo virðist sem Ross
Poldark sé faðir drengsins, en
ekki eiginmaður Elísabetar,
hinn illi George. Hvað gerist ef
George fer að gruna að svo sé?
Hann er ekki maður sem ber
harm sinn í hljóði heldur lætur
hefndina tala.
Maður bíður eftir að spenn-
an taki völdin í Poldark og það
hlýtur að gerast. Á meðan svo er
ekki hefur maður vissa ánægju
af að fylgjast að lífsbaráttu að-
alpersónanna. Vonandi fer samt
ekki fyrir þessum þáttum eins
og svo mörgum að þeir verða
svo langdregnir að maður finn-
ur fyrir þreytu. Það á til dæmis
við um Spilaborg þar sem sagan
er dregin svo á langinn að sú
hugsun verður áleitin hvort ekki
fari að líða að síðustu þáttaröð.
Maður getur ekki eytt mörgum
árum af ævi sinni í áhorf á þátt
sem virðist ætla að verða enda-
laus. n
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Við tækið „Vonandi fer samt
ekki fyrir þessum
þáttum eins og svo
mörgum að þeir verða
svo langdregnir að maður
finnur fyrir þreytu.
Tuttugu árum seinna
B
æði RÚV og Stöð 2 sýndu
heimildamynd um Díönu
prinsessu nú þegar 20 ár eru
liðin frá sviplegum dauða
hennar. Allan ágústmánuð hafa
breskar sjónvarpsstöðvar sýnt
myndir um konuna sem er enn í
hugum fólks prinsessa fólksins. Í
heimildamyndinni sem RÚV sýndi
var meðal annars rætt við ættingja
og vini Díönu.
Þarna voru mörg góð viðtöl.
Sterkust voru viðtölin við syni henn-
ar, Vilhjálm og Harry, sem eru áber-
andi lausir við hroka og yfirlæti
og virðast hafa hlýja nærveru sem
kóngafólk skortir svo oft. Slíkt fólk
er yfirleitt ekki mikið fyrir að faðma
fólk og snerta það, eins og Díana átti
svo auðvelt með. Bræðurnir voru
stundir klökkir þegar þeir töluðu
um fráfall móður sinnar. Það hvílir
greinilega einnig þungt á þeim að
fjölmiðlar hundeltu Díönu hvert
sem hún fór og reyndu jafnvel að
espa hana upp til að ná myndum af
henni í uppnámi. Ljót er svo sagan
af því hvernig þeir þreyttust ekki á
að taka myndir af henni þar sem
hún var deyjandi í bílflaki í undir-
göngum í Parísarborg. Harry prins
var nálægt því að komast í uppnám
þegar hann talaði um það. Þetta
var falleg mynd sem gaf trúverð-
uga mynd af konu sem var sannar-
lega ekki gallalaus og ekki alltaf
hamingjusöm en kunni um leið að
gleðjast og átti afar auðvelt með að
sýna öðrum hlýju og góðvild.
Sama kvöld og myndin var sýnd
á RÚV sýndi fréttastofan Sky mynd-
ir af því þegar bræðurnir komu að
Kensingtonhöll til að leggja blóm
við hlið hallarinnar og skoðuðu
um leið myndir og skilaboð sem al-
menningur hafði komið þar fyrir.
Þetta gerðu prinsarnir 20 árum eftir
að hafa verið harmi slegnir á sama
stað. Þá eins og nú skoðuðu þeir
blómahafið og lásu skilaboð sem
þar voru í minningu prinsessu sem
fólki þótti og þykir enn svo afskap-
lega vænt um. n
Prinsessa fólksins
er ekki gleymd
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Við tækið
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu
þjónustu
okkar á
Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS