Morgunblaðið - 20.04.2017, Blaðsíða 44
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 110. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Hví senda giftir menn slík …
2. Andlát: Ármann Ármannsson
3. Foodco kaupir Kaffivagninn
4. Sérsveitin eflir búnaðinn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hammondhátíð Djúpavogs hefst í
dag og stendur til og með 23. apríl.
Hátíðin er nú haldin í tólfta sinn en
hún var fyrst haldin árið 2006.
Meðal þeirra sem fram koma á há-
tíðinni í ár eru Emmsjé Gauti, Dikta,
Mugison, Langi Seli & skugganir og
Föstudagslögin. Tónleikar fimmtu-
dags, föstudags og laugardags fara
fram á Hótel Framtíð en loka-
tónleikarnir á sunnudaginn verða
haldnir í Djúpavogskirkju.
Morgunblaðið/Ómar
Hammondhátíð
Djúpavogs í 12. sinn
Danski bassaleikarinn og tón-
skáldið Richard Andersson flutti til
Íslands fyrir fjórum árum til að kynna
sér menningu og tónlistarsenu
landsins og tengdist fljótlega öðru
tónlistarfólki, þ.á m. saxófónleik-
aranum Óskari Guðjónssyni og
trommuleikaranum Matthíasi Hem-
stock. Þeir hafa upp frá því starfað
saman undir nafninu Richard And-
ersson NOR og eru nú á tónleikaferð
um landið en tilefnið er útgáfa fyrstu
hljómplötu tríósins. Í kvöld kl. 20
leikur tríóið í Hofi á Akureyri.
Þaðan er förinni heitið til
Siglufjarðar, tónleikar
haldnir þar í Alþýðuhús-
inu annað kvöld og 22.
apríl leikur tríóið á
Jazzhátíð Garða-
bæjar. Seinustu
tónleikar ferð-
arinnar verða svo
haldnir 23. apríl í
Bryggjunni
kaffihúsi í
Grindavík.
Richard Andersson
NOR fagnar plötu
Á föstudag Hæg vestlæg eða breytileg átt, en norðvestan 8-13
m/s austast á landinu. Stöku él vestantil en annars víða bjart. Hiti
kringum frostmark norðaustan til en annars 2 til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Heldur hægari og vestlægari. Gengur í norð-
læga átt norðan til með éljum er líður á daginn, en úrkomulítið á A-
og SA-landi. Þíða með suður- og vesturströndinni.
VEÐUR
Deildarmeistarar FH fögn-
uðu naumum sigri gegn Aft-
ureldingu í gærkvöld þegar
undanúrslit Íslandsmóts
karla í handbolta hófust. FH
vann 28:27 eftir að Aftur-
eldingu tókst ekki að nýta
tvær síðustu sóknir sínar í
leiknum. Valsmenn unnu af-
ar sannfærandi sigur gegn
Fram í Safamýri, 31:23.
Vinna þarf þrjá leiki til að
komast í úrslitarimm-
una. »2
FH og Valur skrefi
nær úrslitarimmu
„Ég er viss um að leikir Stjörnunnar
og Gróttu verða spennandi en reikna
ekki með eins miklu af leikjum Fram
og Hauka einfaldlega þar sem ég hef
ekki mikla trú á Haukaliðinu um þess-
ar mundir. Þótt Haukar hafi burstað
okkur í Val í deildarkeppninni þá finnst
mér eitthvað
vanta hjá
Haukum,“
segir
Kristín
Guð-
mundsdóttir,
handknatt-
leikskona úr
Val, um und-
anúrslit Ís-
landsmóts-
ins sem
hefjast í
dag.
»1, 4
Býst við að annað ein-
vígið verði spennandi
Juventus og Mónakó komust í gær-
kvöld áfram í undanúrslit Meist-
aradeildar Evrópu í knattspyrnu. Þau
verða í hattinum þegar dregið verður
á morgun, ásamt Atlético og Real
Madrid. Juventus sló Barcelona út án
þess að fá á sig mark í tveimur leikj-
um en Börsungar hafa skorað flest
mörk allra liða í fimm sterkustu
landsdeildum Evrópu í vetur. »3
Juventus hélt hreinu
gegn besta sóknarliðinu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Snapchat-vinsældirnar til að ná til
krakkanna, vera fyrirmynd þeirra
og talsmaður. Ég segir krökkunum
frá reynslu minni og hvernig er
best að takast á við vandamálin.
Þeir eru mjög áhugasamir og það
koma margir til mín eftir fyr-
irlestrana eða hafa samband í
gegnum samfélagsmiðlana og leita
ráðlegginga. Ég tala bara út frá
minni reynslu svo ég mæli alltaf
með því að þau tali við fagaðila eða
foreldra sína, við fólk sem þau
treysta,“ segir Aron Már.
Hann leggur mikla áherslu á að
fólk sé óhrætt við að tjá tilfinn-
ingar sínar. „Ég líki þessu alltaf við
aðrar mannlegar þarfir eins og að
borða, sofa, pissa og kúka. Ef þú
heldur í þér í marga daga hlýtur
eitthvað slæmt að gerast, en um
leið og þú loksins ferð á klósettið
líður þér svo miklu betur á eftir.
Þetta er alveg það sama, ein af
grunnþörfum okkar er að tjá til-
finningar.“
Það er í himnalagi að gráta
Aron Már að-
stoðar ungt fólk
með Allir gráta
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Allir gráta Aron Már Ólafsson er formaður félagasamtakanna Allir gráta og þekktur sem snapparinn Aronmola.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Það alast svo margir strákar upp
við karlmennskuhugmyndina, að
þeir eigi að vera karlmenn og ekki
gráta. En ég er að reyna að snúa
því við og segja ungu fólki að það
sé í himnalagi að gráta og viður-
kenna að það þjáist af þunglyndi
eða kvíða eða líði illa,“ segir Aron
Már Ólafsson, formaður félaga-
samtakana Allir gráta. Hann stofn-
aði samtökin í desember ásamt
kærustu sinni, Hildi Skúladóttur,
og góðum vini, Orra Gunnlaugs-
syni. Er markmið þeirra að opna
umræðuna um þunglyndi og kvíða
á meðal barna og unglinga og þá
sérstaklega karlmanna.
Fann þörf í gegnum Snapchat
Aron Már er leiklistanemi og
þekktur sem Snapchat-stjarnan Ar-
onmola en hann er með yfir 30 þús-
und fylgjendur á Snapchat og um
13 þúsund á Instagram. Það var
einmitt í gegnum Snapchat sem
hann fann þörfina fyrir verkefni
eins og Allir gráta. „Ég hef verið
með Snapchat-aðgang í tæp tvö ár
sem Aronmola, það byrjaði sem
grín en síðasta haust opnaði ég fyr-
ir umræðu um sjálfan mig. Ég vildi
segja fólki sem væri að takast á við
vanlíðan að það væri ekki eitt í því.
Ég hef gengið í gegnum mikla erf-
iðleika eftir að ég missti systur
mína árið 2011, ég opnaði mig um
það og sagði hvað ég gerði til að
takast á við þunglyndið og til að
komast yfir það. Það voru mikil
viðbrögð við þessu vídeói og út frá
því spratt hugmyndin að Allir
gráta. Ég vildi taka þetta lengra og
nýta krafta samfélagsmiðlana,“
segir Aron Már.
Boltinn fór fljótt að rúlla og frá
áramótum hefur Aron Már haldið
fyrirlestra í grunn- og framhalds-
skólum. „Mig langaði til að nota
vefsíðunni www.allirgrata.is.
Aron Már segir að ut-
anaðkomandi nefnd muni velja
bestu umsóknirnar. Fjár-
magnið sem er nú í styrkt-
arsjóðnum kom með söfn-
un sem fór fram í gegnum
Snapchat Arons Más í des-
ember, þá söfn-
uðust 2,5 millj-
ónir. Nú eru
þau að selja
nælur til fjár-
öflunar og þá
taka þau einn-
ig á móti frjáls-
um framlögum inn á reikning nr.
528-14-404866 kt. 5612160530.
Stuðla að bættu geðheilbrigði
STYRKTARSJÓÐUR ALLIR GRÁTA
Styrktarsjóður Allir gráta hefur
opnað fyrir umsóknir í fyrsta
sinn og er umsóknarfrestur
fram til 1. júní. Sjóðurinn
styrkir verkefni einstaklinga
og hópa sem stuðla að
bættu geðheilbrigði barna
og unglinga á Íslandi. Verk-
efnin geta ver-
ið af öllum
toga. Sótt er
um þá upphæð
sem þarf til að
framkvæma
verkefnið en
hámarks-
úthlutun er ein milljón til hvers
verkefnis. Hægt er að sækja um á