Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.2006, Qupperneq 4

Freyr - 01.05.2006, Qupperneq 4
STARFSEMI BÍ Yfirlit um starfsemi Bændasamtaka íslands 2005 Bændasamtök íslands voru stofnuð í ársbyrjun 1995 með sameiningu Búnaðarfélags íslands og Stéttar- sambands bænda. Grunneiningar samtakanna eru annars vegar 13 búnaðarsambönd, sem eru þverfag- leg landshlutasamtök bænda, og hins vegar 12 samtök einstakra búgreina. HLUTVERK Bændasamtökin gegna fjölþættu hlutverki sem fagleg hagsmunasamtök allra bænda í landinu. Meðal helstu verkefna þeirra eru: • Að vera málsvari bændastéttarinnar og beita sér fyrir bættum kjörum hennar • Að taka þátt í að móta stefnu í málefnum bænda og landbúnaðarins í heild • Að veita forystu leiðbeiningaþjónustu á sem flestum sviðum landbúnaðar og standa fyrir margvíslegri útgáfustarfsemi, fræðslu og faglegri þróun • Að vinna að hvers konar framförum í landbúnaði er varða ræktun, tækni, rekstur og gæðamál • Að vera stjórnvöldum til ráðuneytis • Að hafa með höndum framkvæmd mála er Alþingi eða ríkisstjórn felur þeim STJÓRN OG STARFSFÓLK Æðsta vald samtakanna er í höndum Bún- aðarþings sem kemur saman einu sinni á ári. Það er nú skipað 49 fulltrúum sem kosnir eru til þriggja ára í senn. Frá búnað- arsamböndunum eru 29 en 20 frá bú- greinasamböndunum. Kjörtímabil núverandi stjórnar er frá Bún- aðarþingi 2004 til Búnaðarþings 2007. Kosningar til Búnaðarþings fara fram nú í ár. Stjórnin er þannig skipuð: Haraldur Benediktsson bóndi, Vestri-Reyni, formaður Gunnar Sæmundsson bóndi, Hrútatungu, 1. varaformaður Sveinn Ingvarsson bóndi, Reykjahlíð, 2. varaformaður Guðmundur Jónsson bóndi, Reykjum Jóhannes Sigfússon bóndi, Gunnarsstöðum Sigríður Bragadóttir bóndi, Síreksstöðum Sigurbjartur Pálsson bóndi, Skarði Framkvæmdastjóri er Sigurgeir Þorgeirsson. I árslok 2005 var alls skipað í 52,75 stöðu- gildi hjá Bændasamtökum (slands og skipt- ust þau þannig: Félagssvið 6,0 Ráðgjafarsvið 13,35 - Byggingaþjónusta Bl 0,9 - Nautastöð BÍ 4,0 Útgáfu- og kynningarsvið 5,3 Tölvudeild 12,7 Yfirstjórn, fjármál og skrifstofa 10,5 Samtals 52,75 STARFSEMI BÆNDASAMTAKANNA Bændasamtökin skiptast í fimm starfssvið, tvö megin verkefnasvið, félagssvið og ráð- gjafarsvið og þrjár stoðdeildir, útgáfu- og kynningarsvið, tölvudeild og fjármál og skrifstofu. Bændasamtökin eiga aðild að ýmsum stjórnum og nefndum á sviði landbúnaðar- mála og taka þátt í margháttuðu erlendu samstarfi. FÉLAGSSVIÐ Hlutverk félagssviðs er í meginatriðum fjór- þætt: Stjórnsýsluverkefni Félagssvið sér m.a. um framkvæmd ýmissa laga og reglugerða sem Bændasamtökun- um eru falin samkvæmt ákvæðum í þeim. Einnig hefur verið gerður samningur við Landbúnaðarstofnun um að BÍ sjái um framkvæmdahlið verkefna sem færðust til stofnunarinnar frá B( þann 1. janúar 2006. Öll ákvarðanataka um réttindi og skyldur er þó á hendi Landbúnaðarstofnunar. Fyrst og fremst er hér um að ræða framkvæmd á FREYR 05 2006 mjólkursamningi, sauðfjársamningi og samningi um starfsskilyrði garðyrkjunnar sem og að halda greiðslumarksskrár og handhafaskrár. Einnig fer félagssvið með framkvæmd ákveðinna verkefna sem falla undir lög um búfjárhald og fleira, sbr. samn- ing við Landbúnaðarstofnun. Kjaramál Annað meginhlutverk félagssviðs er umsjón ýmissa hagfræðilegra verkefna. Sem dæmi má nefna undirbúning við gerð búvöru- samninga og að taka saman og greina upp- lýsingar um þróun verðlags búvara og af- komu bænda. Félagssvið býr þessar upplýs- ingar einnig til útgáfu í Hagtölum landbún- aðarins, Frey og víðar í samvinnu við útgáfu- og kynningarsvið. Þé koma ýmsar ályktanir Búnaðarþings um kjaramál til vinnslu hjá fé- lagssviði. Alþjóðamál Hluti af starfi félagssviðs eru alþjóðasam- skipti og öflun upplýsinga um landbúnaðar- mál á erlendri grund. ísland á aðild að mið- stjórn Norrænu bændasamtakanna (NBC) og hefur notið góðs af því samstarfi á ýmsa lund. Einnig er fylgst með þróun og gerð al- þjóðasamninga um viðskipti með búvörur einkum á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofn- unarinnar (WTO). Félagsleg málefni Fjórði þátturinn snýr að ýmsum félagslegum málum, svo sem tryggingamálum, réttinda- málum gagnvart ríkinu, útdeilingu á pen- ingum vegna aksturskostnaðar dýralækna og fleiru. Einnig starfar á sviðinu lögfræð- ingur sem sinnir ráðgjöf til stjórnar, bænda og starfsmanna þegar upp koma álitaefni við framkvæmd stjórnsýsluverkefna. Ráðu- nautur í lífrænum búskap og landnýtingu er einnig starfandi við félagssvið. Skipting stöðugilda (gróflega áætluð) í lok árs 2005 var eftirfarandi: • Alþjóðamál: 0,75 stöðugildi • Félagsleg málefni: 1,0 stöðugildi • Kjaramál: 1,0 stöðugildi • Stjórnsýsluverkefni: 2,25 stöðugildi • Sviðsstjóri: 1,0 stöðugildi Forstöðumaður félagssviðs er Erna Bjarnadóttir.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.