Freyr - 01.05.2006, Qupperneq 19
BÚNAÐARÞING
Ara Teitssonar um að finna aðrar leiðir til að
rétta hlut þessa hóps. Hann ræddi síðan arð
af hótelunum á sl. ári og taldi lítið koma í
hlut Bændasamtakanna. Hann gerði kröfu
um það að hótelin yrðu rekin a.m.k. með
300 milljóna króna hagnaði. Hann vék síð-
an að tillögu Jóns Gíslasonar og lýsti sig al-
farið andvígan því að taka þetta mál fyrir
með þessum hætti án umsagnar hlutaðeig-
andi aðila.
JÓN BENEDIKTSSON þakkaði
ágæta setningarathöfn og Erni
Bergssyni fyrir að gera grein fyrir stöðu
Lífeyrissjóðs bænda. Hann ræddi síðan til-
lögu Jóns Gíslasonar og taldi eðlilegt að
einhvers staðar væru settar fram nýjar
hugmyndir. Hann benti á líkt og Egill að
búnaðarsamböndin, sem eiga sína full-
trúa á þinginu, rækju þessa starfsemi.
Hann vék síðan að fréttum um að hluti af
fjármunum Lánasjóðsins stæði eftir og
ætti síðan að verja I annað en allir höfðu
talið til þessa. Óánægja væri með þetta
meðal margra bænda. Hann ræddi slðan
umræðuna um matvælaverð og hvernig
hún hefði beinst að landbúnaði eins og
oft áður. Óumflýjanlegt er að stefna að
lækkun framleiðslukostnaðar og leit hann
þar m.a. til skattalegs umhverfis landbún-
aðar sem væri öðru vlsi hér en í ná-
grannalöndunum. Fara þarf rækilega í
saumana á löggjöf nágrannalanda okkar
á þessu sviði. Hann taldi einnig að leggj-
ast mætti á sveif með prófessor Stefáni
Ólafssyni I því að fá stjórnvöld til að haga
skattlöggjöf þannig að þeim tekjulægstu
verði hllft I meira mæli.
Fundarstjóri tók síðan fyrir tillögu Jóns
Gíslasonar og leitaði eftir samþykki fund-
arins til að taka hana á dagskrá.
Samþykkir: 20
Andvígir: 9
Kristín Linda Jónsdóttir, Miðhvammi í
Aðaldal, velti því fyrir sér í umræðum á
eldhúsdegi hvert atvinnugreinin
landbúnaður stefndi
Samþykkt með 20 atkvæðum gegn 9 að
taka tillöguna til þinglegrar meðferðar. Til-
lögunni var síðan vísað til framleiðslu-, kjara
og markaðsnefndar án umræðu.
BIRNA ÞORSTEINSDÓTTIR þakkaði
glæsilega setningu Búnaðarþings.
Hún sagði Ijóst að útilokað væri að reka Líf-
eyrissjóðinn áfram í óbreyttu horfi. Um leið
og samið verður um mótframlag í sjóðinn
þarf að leita eftir að hýsa hann annars stað-
ar. Hún lýsti áhuga á að skoða hugmyndir
Ara. Einnig þarf að gera vandaða úttekt á
starfssemi Bændasamtaka íslands og að far-
ið verði með sem mest af starfseminni út á
leiðbeiningastöðvarnar, hagkvæmni verði
þar höfð að leiðarljósi. Hún hvatti til þess að
hugað verði að endurmenntun bænda, það
er lífsspursmál fyrir greinina að vera vel
menntuð. Mikilvægt er að B( skoði hvernig
hvetja má og auðvelda bændum að leita sér
menntunar. Hún lýsti einnig undrun á ráð-
stöfun fjár Lánasjóðsins. Einnig undraðist
hún að starfshópur um Nautastöðina hefði
ekki verið kallaður saman. Enn fremur þyrfti
að taka til endurskoðunar verkaskiptasamn-
ing BÍ og LK. Hún taldi hér vera um sér mál
kúabænda að ræða þó vissulega eigi
Bændasamtök íslands Nautastöðina.
KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR lýsti
sig sammála Jóni Gíslasyni um sæð-
ingamálin og fagnaði því að þetta mál
kæmist á dagskrá Búnaðarþings. Hún gerði
stðan að umtalsefni þátt Spaugstofunnar
um „bolluvandabændur" og bændur sem
stunduðu „öskupokaeldi". Hún telur þá af-
stöðu sem þarna kemur fram umhugsunar-
verða og því ættu bændur að velta fyrir sér
hvaða stefnu eigi að taka varðandi atvinnu-
greinina landbúnað, hvort hún eigi að
byggja á búsetu, nánast óháð því hver verk-
efnin eru, eða hvort hún eigi að vera verð-
mætaskapandi framleiðslugrein.
HAUKUR HALLDÓRSSON rifjaði
upp að lágmark 17 fulltrúar þurfa
að samþykkja að vísa máli til nefndar. Hann
Sigurður Loftsson, búnaðarþingsfulltrúi fyrir Landssamband kúabænda,
nýtir stund milli stríða
Gunnar Jónsson, Arnar Bjarni Eiríksson, Birna Þorsteinsdóttir
og Bjarni Stefánsson blaða í þinggögnum
FREYR 05 2006
19