Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.2006, Qupperneq 10

Freyr - 01.05.2006, Qupperneq 10
VIÐURKENNINGAR Landbúnaðarverðlaun í áratug „Mjög víða er verið að gera góða hluti í sveitum landsins sem ég tel nauðsynlegt að vakin sé athygli á. Ekki síst á þetta við á umbrotatím- um eins og nú þegar sverfur þar að, því þrátt fyrir hvers konar ráðgjöf og leiðbeiningar er það nú svo, að oft felst besta hvatningin í því að sjá með berum augum verk þeirra sem forystu og frumkvæði sýna. Ég hef velt því fyrir mér hvort ekki sé ástæða til að verðlauna á einhvern máta fólk sem þannig skarar fram úr. í framhaldi af því ákvað ég að veita viðurkenningu aðilum sem á einn eða annan máta tengjast land- búnaði og hafa sýnt með verkum sínum áræðni og dugnað og eru til fyrirmyndar." Með þessum orðum hóf Guðmundur Bjarnason, þáverandi landbúnaðarráðherra, ræðu sfna við veitingu Landbúnaðarverð- launanna ( fyrsta sinn. Hafa verðlaunin æ síðan verið veitt við setningu Búnaðarþings, nú í tíunda skipti. Alls hafa tæplega þrjátíu bú eða fyrirtæki hlotið verðlaunin og tæp- lega sjötíu ábúendum eða einstaklingum sem að þeim standa hefur hlotnast þessi viðurkenning. 1997 1998 • Efri-Brunná í Saurbæ í Dölum • Reyðará í Lóni • Vatn á Höfðaströnd í Skagafirði • Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum Félagsbúið Gunnarsstöðum í Þistilfirði • Félagsbúið Vigur í ísafjarðardjúpi • 1999 2000 • Hríshóll í Eyjafirði • Reykir í Mosfellssveit Flúðasveppir á Flúðum • Húsafell í Borgarfirði • Ytra-Kálfsskinn á Árskógsströnd í Eyjafirði • 2001 2002 • Keldudalur í Hegranesi í Skagafirði • Félagsbúið Oddgeirshólum í Flóa Egilsstaðabúið á Völlum á Héraði • Fjárræktarbúið á Hesti í Borgarfirði • Félagsbúið Skáleyjum á Breiðafirði • 2003 2004 • Haukadalur/ Geysir í Biskupstungum • Höfðabrekka I Mýrdal • Félagsbúið Laxamýri I Aðaldal Lambeyrar í Laxárdal í Dölum • Stóra-Hildisey II I Landeyjum • Vallanes á Völlum á Héraði • 2005 2006 • Melar við Flúðir • Félagsbúið Helgavatni í Þverárhlíð í Borgarfirði • Sveinungsvík I Þistilfirði Hestheimar I Holtum • Miðhús - Eik listiðja í Eiðaþinghá á Héraði • Syðri-Bægisá i Öxnadal I Eyjafirði • Bergsstaðir á Vatnsnesi • Árið 1998 veitti landbúnaðarráðherra fólkinu í Vigur í ísafjarðardjúpi verðlaunin fyrir að varðveita menningararf býlis síns og færa hann til nútímalífs og -búhátta 10 FREYR 05 2006

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.