Freyr - 01.05.2006, Qupperneq 26
BÚNAÐARÞING
Búnaðarþing 2006 felur stjórn BÍ að hraða vinnu við undirbúning endurnýjunar á aðstöðu
Nautastöðvar Bændasamtaka Islands
Réttindi bænda til aksturs véia til
landbúnaðarnota
Búnaðarþing 2006 leggur áherslu á að
stjórn B( fylgist náið með réttarstöðu
bænda og starfsmanna þeirra til aksturs
og notkunar dráttarvéla og annarra hefð-
bundinna tækja við vinnu fyrir eigið bú. í
þessu efni verði hvergi vikið frá núverandi
réttindum.
Samþykkt samhljóða.
Nautastöð BÍ
Búnaðarþing 2006 felur stjórn Bl að
hraða vinnu við undirbúning endurnýjun-
ar á aðstöðu Nautastöðvar Bændasam-
taka fslands. Unnið verði út frá áliti fag-
hóps BÍ um málið, kannaðir til hlítar þeir
kostir sem fyrir liggja með tilliti til kostn-
aðar, rekstraröryggis og staðsetningar.
Málið verði lagt fyrir næsta aðalfund
Landssambands kúabænda til umsagnar
áður en endanleg ákvörðun verði tekin.
Greinargerð:
[ áliti faghóps BÍ um hönnun nýrrar nauta-
stöðvar koma fram veruleg rekstrarleg
hagkvæmnisáhrif af því að reka stöðina á
einum stað. Eins segir í fylgiskjali með
málinu að áhætta með tilliti til smitvarna
sé ásættanleg við þær aðstæður. Því kem-
ur tæpast annað til greina en byggja í
einu lagi yfir alla starfsemina á einum
stað, ef gera á breytingu á staðsetningu
hennar. Nauðsynlegt er að skoða til hlítar
þær staðsetningar sem til greina koma út
frá öryggi, fagumhverfi og nálægð við
notendur.
Þingið leggur þunga áherslu á að mál-
inu verði hraðað og það unnið í sem allra
bestri sátt við notendur þjónustunnar.
Samþykkt samhljóða.
Tryggingar á óskráningarskyldum
smávélum til nota í landbúnaði
Búnaðarþing 2006 felur stjórn Bl að leita
eftir samningum f.h. bænda við trygging-
arfélögin í landinu um lækkun trygginga
á þeim landbúnaðartækjum sem ekki eru
skráningarskyld en ganga fyrir eigin vélar-
afli.
Greinargerð:
Tryggingar á þessum tækjum eru dýrar
þar sem þær hafa miðast við verktöku-
notkun. Á undanförnum árum hefur orð-
ið mikil aukning á notkun vélknúinna
tækja f gripahúsum, t.d. gjafavéla eða lið-
léttinga. Þessi tæki eru ekki skráningar-
skyld en þurfa þó sértryggingu þar sem
hægt er að keyra þau fyrir eigin vélarafli.
Samþykkt samhljóða.
FÉLAGSMÁLANEFND
Endurskoðun á reglum Orlofssjóðs BÍ
Búnaðarþing 2006 beinir því til orlofs-
nefndar Bændasamtaka íslands að styrkir
verði veittir til orlofsdvalar erlendis jafnt
sem innanlands.
Greinargerð:
Bændum þurfa að vera Ijósar þær reglur
sem gilda um úthlutun þessara styrkja.
Nauðsynlegt er að þær verði kynntar í
Bændablaðinu eða á öðrum sambærileg-
um vettvangi.
Samþykkt samhljóða.
Endurskoðun á fyrirkomulagi Búnað-
arþings
2. grein
Stjórn Baendasamtakanna skal skipa
þriggja manna kjörbréfanefnd áður
en Búnaðarþing kemur saman. Hún
skal Ijúka störfum áður en þing hefst.
(I stað: i upphafi þingsins skal kjósa kjör-
bréfanefnd, skipaða þremur mönnum.)
Hún leggur fram tillögur sínar áður en
fyrsta fundi þingsins líkur og skal á þeim
fundi úrskurða um kosningu þingfulltrúa,
eftir því sem við á.
Að loknum kosningum til Búnaðarþings
skal kæra út af kosningu þingfulltrúa ber-
ast stjórn Bændasamtakanna að minnsta
kosti tveimur vikum áður en þingið er
sett. Skilyrði er þó að kæra hafi áður bor-
ist yfirkjörstjórn svo sem fyrir er mælt í
samþykktum samtakanna. Að öðrum
kosti skal henni vísað frá.
9. grein
Stjórn Bændasamtakanna tilnefnir einn af
starfsmönnum þeirra til þess að færa
fundargerð þingsins undir stjórn forseta.
([ stað: Fundargerð síðasta fundar liggi
frammi áður en nýr fundur er settur. Skal
hún í fundarbyrjun borin upp til sam-
þykktar og síðan undirrituð af forseta.
Fieimilt er þó, sé þess óskað, að fresta
samþykkt fundargerðar til næsta fundar,
telji forseti það réttmæta ósk.) Fundar-
gerðir skulu frágengnar svo fljótt sem
verða má. Þær skulu bornar upp og
samþykktar og síðan undirritaðar af
forseta. Jafnframt er forseta heimilt að
leita samþykkis é því að fundargerð sé
send þingfulltrúum til staðfestingar.
10. grein
Málum, sem lögð eru fram á þinginu, skal
vísað til nefndar umræðulaust. Forseta er
heimilt að leyfa flutningsmanni að reifa
málið með stuttri ræðu.
Heimilt er að hafa Búnaðarþing lok-
að þegar fjallað er um einstök mál.
Slíkt skal á valdi þingsins hverju sinni.
Eftir að nefndir hafa skilað áliti skulu
fara fram tvær umræður um hvert mál.
Heimilt er forseta að ákveða eina um-
ræðu um einstök mál ef enginn mælir því
gegn. Komi fram fyrirspurnir til stjórnar
eða starfsmanna Bændasamtakanna má
forseti ákveða eina umræðu um þær. Sá
sem fyrirspurninni er beint til hefur sama
rétt til ræðutíma og framsögumenn
nefnda.
13. grein
Forseti stýrir atkvæðagreiðslu og kveður
menn sér til aðstoðar eftir þörfum til að
telja saman atkvæði. Atkvæðagreiðsla fer
að jafnaði fram með handauppréttingu.
Heimilt er að viðhafa leynilega at-
kvæðagreiðslu um einstök mál ef sér-
stakar aðstæður kalla á slíkt.
Ef þingfulltrúi óskar þess skal atkvæða-
greiðsla þó fara fram með nafnakalli.
Ennfremur er forseta heimilt að endur-
taka atkvæðagreiðslu með nafnakalli ef
hann telur þess þörf. Kjör stjórnar skal
fara fram með leynilegri atkvæða-
greiðslu.
Samþykkt samhljóða.
26
FREYR 05 2006