Freyr - 01.06.2006, Blaðsíða 3
I
EFNISYFIRLIT
■ VIÐ MUNUM ALLA TÍÐ BÚA
VIÐ ÞESSA STÓRKOSTLEGU
NÁTTÚRU
- Seinni hluti viðtals sem
Matthías Eggertsson tók
við Svein Runólfsson
landgræðslustjóra.
19-21
■ AFURÐAHÆSTU KÝRNAR
í NAUTGRIPARÆKTAR-
FÉLÖGUNUM ÁRIÐ 2005
OG EFSTU KÝRNAR í
KYNBÓTAMATI
- Jón Viðar Jónmundsson
tók saman niðurstöður úr
skýrsluhaldinu.
14-15
■ HEILRÆÐI ( BYRJUN
HEYSKAPAR
- Bjarni Guðmundsson
prófessor við Landbúnaðar-
háskóla Islands veitir nokkur
heilræði.
24-26
■ FRÁ KENNSLU- OG
RANNSÓKNAFJÁRBÚINU
Á HESTI 2004-2005
- Niðurstöður síðasta árs
teknar saman af starfsfólki
kennslu- og rannsóknafjár-
búsins.
Við munum alla tíð búa við þessa stórkostlegu náttúru
- viðtal við Svein Runólfsson landgræðslustjóra, seinni hluti
- eftir Matthías Eggertsson B(.....................................4
Sauðfjárrækt - upplýsingar um ræktunarstarf, sölu, verðlag og
afkomu greinarinnar - samantekt unnin af starfsfólki Félagssviðs B(.8
Endurmat á dætrum nautsfeðranna sem fæddir voru árið 1997
- eftir Jón Viðar Jónmundsson BÍ..................................10
Nýju útihúsin - nýtt fjós í Hrunamannahreppi......................12
Heilræði í byrjun heyskapar
— eftir Bjarna Guðmundsson prófessor við Landbúnaðarháskóla Islands.14
Kvótakerfið frá sjónarhóli hagfræðinnar
- eftir Daða Má Kristófersson BÍ.................................16
Afurðahæstu kýrnar í nautgriparæktarfélögunum árið 2005
og efstu kýrnar í kynbótamati -eftir Jón Viðar Jónmundsson B(....19
Dagur með bónda
- Freyr tekur þátttakendur í verkefninu og stjórnanda þess tali..22
Frá kennslu- og rannsóknafjárbúinu á Hesti 2004-2005
- eftir Eyjólf Kristin Örnólfsson, Sigvalda Jónsson og
Sigurð Þór Guðmundsson, Landbúnaðarháskóla íslands...............24
Hestamiðstöð (slands - alþjóðleg miðstöð þekkingar og fræðslu
- Freyr tók Örnu Björgu Bjarnadóttur nýráðinn forstöðumann
Sögusetursins tali...............................................27
Sjö snefilefni í íslensku heyi - eftir Tryggva Eiríksson, Landbúnaðar-
háskóla Islands, Kristínu Björgu Guðmundsdóttur, Rannsóknadeild
yfirdýralæknis í dýrasjúkdómum, Sigurð Sigurðarson, Landbúnaðarstofnun,
Þorkel Jóhannesson og Jakob Kristinsson, Rannsóknastofu í
lyfja- og eiturefnafræði...........................................28
Nautgripasæðingar 2005 - eftir Sveinbjörn Eyjólfsson,
framkvæmdastjóra Nautastöðvar Bændasamtaka (slands, Hvanneyri......32
Afkvæmarannsóknir á Hesti haustið 2005 - eftir Eyjólf Kristin Örnólfs-
son, Emmu Eyþórsdóttur, Sigvalda Jónsson og Sigurð Þór Guðmundsson,
Landbúnaðarháskóla (slands.........................................34
Tala búfjár og jarðargróði 2005 - samantekt úr forðagæsluskýrslum
fyrir árið 2005 unnin af starfsfólki B(............................36
Markaðurinn - verð á greiðslumarki og yfirlit yfir sölu ýmissa búvara
og kjötmarkað......................................................38
FORMÁLI
Um árabil hefur það tíðkast að birta niðurstöður rannsókna í Frey.
Með breyttum Frey var ákveðið að leggja af hin svokölluðu búgreina-
blöð en jafnan skyldi efnisvalið í hverju tölublaði vera fjölbreytt. Hug-
myndin að baki Frey í nýjum búningi erskýr: Fjölbreytt blað sem er les-
endum bæði til gagns og gamans.
Að þessu sinni eru rannsóknarniðurstöður úr sauðfjárrækt fyrirferð-
armiklar í blaðinu. Upplýsingum um ræktunarstarf, verðlag, sölu og
afkomu sauðfjárræktarinnar á stðasta ári eru gerð skil eins og gert var
í Búnaðarritinu gamla. Þá eru birtar niðurstöður rannsókna frá
kennslu- og rannsóknafjárbúinu á Hesti i Borgarfirði, bæði í heild sinni
og sérstaklega hvað afkvæmarannsóknir snertir. Yfirlit yfir sæðinga-
starfið í nautgriparæktinni á árinu 2005 er tekið saman ásamt því að
birtur er listi yfir afurðahæstu kýrnar í nautgriparæktarfélögunum á
liðnu ári í samantekt Jóns Viðars Jónmundssonar, landsráðunautar í
búfjárrækt hjá Bændasamtökum íslands. Hann fjallar jafnframt um
ræktunarstarfið í heild sinni.
Bændur og búalið tekur nú til við heyskap af miklum þrótti og hef-
ur Bjarni Guðmundsson prófessor við Landbúnaðarháskóla íslands því
tekið saman heilræði í byrjun heyskapar. Þá er að finna í blaðinu at-
hyglisverðar rannsóknarniðurstöður um snefilefni í íslensku heyi og
tengsl þeirra við riðu. Hefur hluti niðurstaðna þessara rannsókna ekki
birst áður.
Seint verða allir sáttir við fyrirkomulag þess kvótakerfis sem við lýði
er ( mjólkurframleiðslu. Daði Már Kristófersson hagfræðingur leitast
við að skýra þá gagnrýni sem hagfræðingar hafa sett fram um kvóta-
kerfi. Hann ræðir einnig afleiðingar galla kerfisins á mjólkurframleiðsl-
una í grein í þessu tölublaði.
Dagur með bónda kallast eitt af svokölluðum skólaverkefnum
Bændasamtaka (slands og er því gerð skil í þessu tölublaði. Hugmynd-
in að baki verkefninu er að gefa elstu nemendum á miðstigi grunn-
skólans færi á að kynnast lífi og starfi bóndans með persónulegri við-
kynningu. Það er án efa mikilvægt fyrir bændur og alla þá sem koma
að landbúnaði að skilningur landans fyrir starfinu sé sem mestur og
bestur. Verkefnið Dagur með bónda hefur tvímælalaust gert sitt til
þess að viðhalda og skapa jákvæða vitneskju um líf og starf bóndans.
Og ritstjóri tekur heilshugar undir orð eins viðmælandans „að verk-
efnið auki víðsýni og skilning barna og unglinga á störfum til sveita".
Hér er því á fljúgandi ferð verðugt verkefni sem ber að hlúa að.
FREYR - Búnaðarblað-102. árgangur- nr. 3,2006 • Útgefandi: Bændasamtök Islands • Ritstjóri: Orri Páll Jóhannsson (ábm.) • Auglýsingar: Orri Páll Jóhannsson • Prófarkalestur: Oddbergur
Eirlksson og Álfheiður Ingimarsdóttir • Umbrot: Prentsnið - Ingvi Magnússon • Útlitshönnun: Blær Guðmundsdóttir • Aðsetur: Bændahöllinni v. Hagatorg - Póstfang: Bændahöllinni
v. Hagatorg, 107 Reykjavík • Ritstjórn, innheimta, afgreiðsla og auglýsingar: Bændahöllinni, Reykjavík, sími: 563-0300, bréfsími: 562-3058 • Netfang FREYS: freyr@bondi.ís • Netfang
auglýsinga: freyr@bondi.is • Prentun: Isafoldarprentsmiðja, 2006 • Upplag: 1.600 eintök • Forslða: Svanur Steinarsson við æðardúntekju á Mýrum á hvítasunnu. Ljósm. Theresa Vilstrup Olesen.
Freyr 06 2006
3