Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Side 28
28 sakamál Helgarblað 1. desember 2017
draumurinn
varð martröð
n Jessica gat ekki hugsað sér lífið án Bens n Ben gat ekki hugsað sér lífið með Jessicu
B
en og Jessica Edens voru
gift og bjuggu í Greenville
í Greenville-sýslu í Banda-
ríkjunum og ekki ástæða til
að orðlengja um þá staðreynd. Þau
áttu tvö börn saman, Harper, 4 ára,
og Hayden, 9 ára. Jessica átti þá
ósk heitasta að halda fjölskyldunni
saman, vera heimavinnandi
húsmóðir og einbeita sér að upp-
eldi barna þeirra hjóna.
Sú ósk átti ekki eftir að rætast og
afleiðingarnar urðu hræðilegar. Í
apríl 2017 skildi leiðir er Ben skipti
um klár í miðri á og leitaði í faðm
Meredith Rahme. Jessica sat eftir
með sárt ennið og börnin tvö.
Í öngum sínum
Jessica var í öngum sínum og
hugsaði Ben þegjandi þörfina, sá
skyldi sko finna til tevatnsins fyrir
að kasta henni, hjónabandinu og
börnunum fyrir róða og hreiðra
um sig í dyngju Meredith.
Af orðsendingu sem Jessica
skrifaði Ben að morgni 13. júlí
mátti ráða að því færi fjarri að hún
væri að jafna sig: „Þetta er það erf-
iðasta sem ég hef gert. En þú hefur
brotið mig niður. Þú munt halda
því áfram. Þú munt ekki fá að særa
mig eða börnin mín framar.“
Hvort Ben var með böggum
hildar vegna orðsendingarinn-
ar fylgir ekki sögunni, en í ljósi
niðurlags þessarar orðsendingar
er slíkt ekki fráleitt: „Eftir daginn í
dag mun það engu máli skipta, þá
verður enginn sársauki.“
Jessica fær forræði
Þann 11. júní sendi Ben frá sér
eiðsvarna yfirlýsingu þess efnis að
Jessica beitti börnunum gegn hon-
um, honum hefði verið meinað að
tala við dóttur sína og hann sæi sér
því ekki annað fært en að krefjast
forræðis yfir börnunum.
Daginn eftir var úrskurðað, til
bráðabirgða, í forræðisdeilunni
og niðurstaðan var sú að börnin
skyldu vera í umsjá móður sinnar
en Ben veittur umgengnisréttur.
Skóinn kreppti víða í Edens-
ranni og varð það deginum
ljósara 13. júlí í áframhaldandi
orðsendingum milli Bens og
Jessicu, því Jessicu lá ýmislegt
fleira á hjarta.
Áframhaldandi orðsendingar
Í áframhaldandi skilaboðum
þennan dag var Jessica ómyrk í
máli. Korter yfir ellefu þennan
morgun fékk Ben eftirfarandi
orðsendingu: „Þú munt fá ná-
kvæmlega það sem þú vilt. Enga
konu. Engin börn.“
Jessica hélt áfram: „Það eina
sem þú þurftir að gera var að slíta
tengsl þín við Meredith. En nei.
Þú tókst þá ákvörðun að eiga enga
fjölskyldu og verður að lifa með
þeirri ákvörðun.“
Af svari Bens í þetta sinn má
ætla að honum hafi ekki litist á
blikuna: „Hvað meinarðu „engin
börn“? Ætlarðu að gera þeim
mein? Eða taka þau og stinga af?“
Jessica angrar Meredith
Ben hafði ástæðu til að vera
áhyggjufullur enda reynt að fá nálg-
unarbann á Jessicu sem var þegar
þarna var komið sögu farin að venja
komur sínar að heimili Meredith.
Auk þess hafði eiginkonan for-
smáða sett sig í samband við 35
ættingja og vini Meredith og farið
um hana ófögrum orðum og lagt
á það áherslu að hún væri í sam-
bandi við kvæntan mann.
Ben fékk ekki svar við síðustu
spurningu sinni og ítrekaði hana:
„Svaraðu spurningunni eða ég læt
taka börnin af þér með valdi … ég
meina það, Jessica.“
Svar Jessicu var, í ljósi þess sem
á undan var gengið, uggvekjandi:
„Lífið verður brátt betra.“ Án efa
rann Ben kalt vatn milli skinns og
hörunds þegar hann las svarið.
Síðustu skilaboðin
Rétt fyrir klukkan þrjú þennan
eftirmiðdag spurði Jessica hvort
Ben vildi hitta hana og svara
nokkrum spurningum, en Ben
hugnaðist slíkt ekki. Jessica skrif-
aði þá: „Ég ætti ekki að reikna
með neinu frá þér. Ég er búin að
sætta mig við þá staðreynd að ég
var þér aldrei nokkurs virði. Ég er
bara orðin svo þreytt á þessum
sársauka.“
Klukkan 16.41 þennan dag,
13. júlí, lauk þessum samskiptum
Bens og Jessicu. Í skilaboðum
sagði Jessica: „Þú þarft ekki að
hafa áhyggjur lengur … brátt heyrir
stress þitt sögunni til. Engar áhyggj-
ur. Verði þér að góðu. Njóttu lífsins
Ben.“
Hörmuleg málalok
Um tuttugu mínútum síðar steig
Meredith Rahme út úr bifreið
sinni bílastæðahúsi Main and
Stone í miðbæ Greenville. Þar
skaut Jessica Meredith í höfuðið
með Glock 27-skammbyssu og
lauk þar jarðvist hennar.
Síðar notaði Jessica sömu
byssu til að bana börnum sín-
um tveimur, Harper og Hayden.
Að lokum bar hún byssuna upp
að eigin höfði og hleypti af. Lík
þeirra þriggja fundust í jeppabif-
reið Jessicu sem fannst við Green-
ville-Pickens-þjóðbrautina með
vélina enn í gangi. n
„Þú munt fá
nákvæmlega
það sem þú vilt. Enga
konu. Engin börn.
Meredith Rahme Var send yfir móðuna miklu.
Jessica Edens
Var í öngum sínum
í kjölfar skilnað-
arins.
Hayden og
Harper
Guldu ósætti
foreldranna dýru
verði.