Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Qupperneq 32
32 fólk - viðtal Helgarblað 1. desember 2017
Athafnamaðurinn Axel Axelsson fluttist aftur
norður á Akureyri fyrir örfáum árum. Föstudaginn
1. desember, mun Axel opna útvarpsstöðina
Útvarp Akureyri. Í einlægu viðtali við Indíönu Ásu
Hreinsdóttur ræðir Axel um æskuna, áhrif fjarveru
föður síns á sig sem föður, veikindi föður síns,
hrifninguna á Bandaríkjunum, ástina og litla barnið
sem heldur honum ungum.
S
um ár eru viðburðaríkari
en önnur og þótt það sé
aldrei nein lognmolla í
kringum okkur þá hefur
þetta ár toppað allt,“ segir Akur
eyringurinn og athafnamaðurinn
Axel Axelsson sem hefur stað
ið í stórræðum síðustu mánuði.
Axel, sem flutti aftur norður fyrir
nokkrum árum og rekur stórt
hótel í miðbæ Akureyrar, gekk
í það heilaga á árinu, útskrifaði
dóttur sína frá Menntaskólanum
á Akureyri, varð sjálfur 25 ára
stúdent og er nú að leggja loka
hönd á opnun útvarpsstöðvar
innar Útvarp Akureyri, að Gránu
félagsgötu 4 við hlið Borgarbíós.
Hann segir notalegt að vera í húsi
beint á móti RÚV. „Það er fínt að
geta horft út um gluggann á eitt
hvað sem maður getur mögulega
kallað samkeppnisaðilann,“ seg
ir hann brosandi en eiginkona
hans, Bergrún Ósk Ólafsdóttir, er
að opna tískuvöruverslun í sama
húsnæði.
Greindist með flogaveiki
Axel ólst upp á Brekkunni hjá
móður sinni og eldri systur.
„Mamma var kennari og ég fékk
alveg að finna fyrir því að vera
sonur kennarans, en mamma
var hörkugóður kennari. Annars
var ég hefðbundið akureyrskt
barn sem lék sér úti frá morgni til
kvölds,“ segir Axel sem greindist
ungur með flogaveiki, þá tegund
sem eldist af fólki, og þurfti að
eiga við hana upp undir unglings
aldur. „Til tólf ára aldurs þurfti ég
að taka töflu til að halda köstun
um niðri en með tímanum fór
ég að þekkja inn á sjúkdóminn
og stalst til þess að hætta að taka
lyfin. Ég var farinn að læra inn
á hvenær von var á kasti og gat
þá farið afsíðis. Þetta snerist um
svefn og næringu en sem betur fer
eltist flogaveikin af mér.“
Póstkort frá pabba
Hann segir að þar sem foreldrar
hans hafi ekki verið saman
hafi faðir hans lítið verið inni í
myndinni. „Þetta voru allt aðrir
tímar. Pabbahelgar þekktust ekki
en við héldum samt sambandi.
Hann var mest fyrir sunnan eða
í Bandaríkjunum en sendi mér
reglulega póstkort auk þess sem
hann mætti stundum, óboðinn,
og renndi þá í hlaðið á stórum
amerískum kagga. Það var alltaf
spennandi að heyra drunurnar
í kagganum nálgast,“ segir hann
en faðir hans lést rúmu ári eftir að
Axel varð stúdent frá Menntaskól
anum á Akureyri.
Útvarpið ástríðan
Axel er reyndur útvarpsmaður og
starfaði meðal annars um tíma
á FM957, Hljóðbylgjunni, Létt
Bylgjunni, RÚV, Matthildi og Ís
lensku stöðinni þar sem hann
stjórnaði einnig sjónvarpsþætti.
Síðasta áratuginn var hann hins
vegar í fasteignabransanum en
hefur nú snúið sér aftur að áhuga
máli sínu og ástríðu, útvarpinu.
„Við fluttum ekki norður árið 2014
með það að markmiði að opna
útvarpsstöð. Planið var að halda
áfram fasteignaviðskiptum en svo
keyptum við Hótel Apotek Guest
house sem ótrúlegur fjöldi túrista
hefur sótt heim. Það hafði samt
blundað lengi í mér að opna stöð
og svo fór að ég sótti um útvarps
leyfi 2015, sama ár og Bergrún
varð ófrísk. Við vorum því í þeirri
stöðu að vera í útvarps pælingum,
á kafi í ferðaþjónustunni, sem
er 24/7 bransi og með lítið barn.
Forsjónin sagði mér að nú væri
ekki rétti tíminn til að ráðast í
þetta verkefni – að útvarpsstöð
þyrfti lengri fæðingu. Nú er hins
vegar komið að þessu og vænt
anlega munum við setja hótelið í
söluferli. Maður getur ekki verið
alls staðar.“
Þrír tímar í bíl
Þau Bergrún kynntust árið 2009
en tóku sér tíma til að stilla saman
sína strengi. „Hún er níu árum
yngri en ég. Við vorum bæði
„Ég er
kominn heim“
Indíana Ása Hreinsdóttir
skrifar
„Þetta var
mjög erfitt
tímabil fyrir okkur
öll en hún var í
dái svo vikum
skipti og fór í
endurhæfingu í
nokkur ár
Axel Axelsson „Þótt það
sé aldrei nein lognmolla í
kringum okkur þá hefur þetta
ár toppað allt.“ mynd GuðrÚn Þórs