Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Side 70

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Side 70
6 Betri pizzur Helgarblað 1. desember 2017KYNNINGARBLAÐ Súrdeig upp á gamla mátann The Coocoo's nest var með þeim fyrstu hér á svæðinu,“ segir Íris ann Sigurðardóttir hjá veitinga- staðnum the Coocoo's nest að grandagarði 23, en staðurinn var opnaður í september árið 2013. Síðan þá hefur orðið mikil gróska á hafnarsvæðinu og stór hópur viðskiptavina heldur mikilli tryggð við the Coocoo's nest. „Við eigum dásamlega fastakúnna sem koma aftur og aftur og okkur þykir mjög vænt um,“ segir Íris. Íris rekur staðinn ásamt eiginmanni sínum, lucas Keller, sem er frá Kaliforníu en af ítölskum ættum. lucas sér um matreiðsluna á staðnum og þar blandast mikið saman ítölsk og amerísk áhrif. mikil fjölbreytni einkennir matseð- ilinn auk áherslu á hollustu. Hjónin bæði hafa tileinkað sér heilsusamlegan lífsstíl og leggja áherslu á að bjóða viðskiptavinum sínum upp á mat sem sameinar það að vera gómsætur og heilsu- samlegur. á meðan fjölbreytni ein- kennir matseðilinn þá ræður einfaldleikinn ríkjum í einu helsta trompi staðarins, súr- deiginu. „pizzurnar okkar eru súrdeigspizzur og við gerum brauð úr þessu súrdeigi sem við bökum hér á staðnum alla daga og brauðin seljum við frá okkur. Súrdeigið er lagað alveg upp á gamla mátann, 100 prósent gerlaust, við förum gömlu leiðina í þessu. Fegurðin er fólgin í einfald- leikanum eins og í allri ítalskri matargerð og í súrdeiginu er það bara salt, vatn og hveiti – alveg gerlaust.“ Íris og lucas kapp- kosta að hafa alltaf nýtt og ferskt hrá- efni í matnum á the Coocoo's nest. „Hér er allt búið til samdægurs hjá okkur og við fryst- um ekki eða hlöðum upp birgðum á nokkurn hátt. Hráefnið er alltaf nýtt,“ segir Íris. mikið úrval af pizzum er í boði en ein vinsælasta pizzan er með gráðaosti, eplum og hunangi – og hefur sú pizza slegið rækilega í gegn. á miðvikudags- og fimmtudagskvöld- um eru svokölluð pizzakvöld á the Coocoo's nest og þá er alltaf boðið upp á nýjar tegundir af pizz- um, gestir fá því að prófa eitthvað nýtt og spennandi í hverri viku. nýjung á pizza- kvöldunum núna eru mjög gómsætir og frumlegir for- réttir. Opið er á The Coocoo's Nest þriðjudaga–laugardaga frá klukkan 11–22 og sunnu- daga frá 11–16. Lokað er á mánudögum. Nánari upplýs- ingar og matseðla má sjá á vefsíðunni coocoosnest.is. Fegurðin er fólgin í einfaldleikanum tHe CooCoo'S neSt, grandagarði 23

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.