Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Síða 70
6 Betri pizzur Helgarblað 1. desember 2017KYNNINGARBLAÐ
Súrdeig upp á gamla mátann
The Coocoo's nest var með þeim fyrstu hér á svæðinu,“ segir Íris ann
Sigurðardóttir hjá veitinga-
staðnum the Coocoo's
nest að grandagarði 23,
en staðurinn var opnaður í
september árið 2013. Síðan
þá hefur orðið mikil gróska
á hafnarsvæðinu og stór
hópur viðskiptavina heldur
mikilli tryggð við the Coocoo's
nest. „Við eigum dásamlega
fastakúnna sem koma aftur
og aftur og okkur þykir mjög
vænt um,“ segir Íris.
Íris rekur staðinn ásamt
eiginmanni sínum, lucas
Keller, sem er frá Kaliforníu en
af ítölskum ættum. lucas sér
um matreiðsluna á staðnum
og þar blandast mikið saman
ítölsk og amerísk áhrif. mikil
fjölbreytni einkennir matseð-
ilinn auk áherslu á hollustu.
Hjónin bæði hafa tileinkað
sér heilsusamlegan lífsstíl
og leggja áherslu á að bjóða
viðskiptavinum sínum upp á
mat sem sameinar það að
vera gómsætur og heilsu-
samlegur.
á meðan fjölbreytni ein-
kennir matseðilinn þá ræður
einfaldleikinn ríkjum í einu
helsta trompi staðarins, súr-
deiginu. „pizzurnar okkar eru
súrdeigspizzur og við gerum
brauð úr þessu súrdeigi sem
við bökum hér á staðnum alla
daga og brauðin seljum við
frá okkur. Súrdeigið er lagað
alveg upp á gamla mátann,
100 prósent gerlaust, við
förum gömlu leiðina í þessu.
Fegurðin er fólgin í einfald-
leikanum eins og í allri ítalskri
matargerð og í súrdeiginu er
það bara salt, vatn og hveiti –
alveg gerlaust.“
Íris og lucas kapp-
kosta að hafa alltaf
nýtt og ferskt hrá-
efni í matnum á the
Coocoo's nest. „Hér er
allt búið til samdægurs
hjá okkur og við fryst-
um ekki eða hlöðum
upp birgðum á nokkurn
hátt. Hráefnið er alltaf
nýtt,“ segir Íris. mikið úrval
af pizzum er í boði en ein
vinsælasta pizzan er
með gráðaosti, eplum
og hunangi – og
hefur sú pizza slegið
rækilega í gegn. á
miðvikudags- og
fimmtudagskvöld-
um eru svokölluð
pizzakvöld á the
Coocoo's nest og þá
er alltaf boðið upp á
nýjar tegundir af pizz-
um, gestir fá því að prófa
eitthvað nýtt og spennandi
í hverri viku. nýjung á pizza-
kvöldunum núna eru mjög
gómsætir og frumlegir for-
réttir.
Opið er á The Coocoo's
Nest þriðjudaga–laugardaga
frá klukkan 11–22 og sunnu-
daga frá 11–16. Lokað er á
mánudögum. Nánari upplýs-
ingar og matseðla má sjá á
vefsíðunni coocoosnest.is.
Fegurðin er fólgin
í einfaldleikanum
tHe CooCoo'S neSt, grandagarði 23