Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Page 71
Betri pitsur 7Helgarblað 1. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ
Eldsmiðjan
Jólapizzan vinsæla er komin aftur
Um þetta leyti í fyrra bauð eldsmiðjan upp á jólapizzuna Babbo
natale sem sló rækilega í
gegn. Á þessari pizzu er afar
skemmtileg samsetning af
girnilegu áleggi: kalkúnn,
beikonkurl, villisveppaostur,
pekanhnetur, rifsberjahlaup
og kremaður camembert-
ostur. margir hafa beðið í
ofvæni eftir því að fá þessa
gómsætu pizzu aftur á mat-
seðilinn og þeir sem hafa ekki
smakkað hana eiga gott í
vændum.
eldsmiðjan er fyrirtæki
sem hvert mannsbarn þekkir
og hefur verið starfandi frá
árinu 1986. einar Dagur
Jónsson var um árabil einn
þekktasti pizzusendill landsins
en er núna veitingastjóri hjá
eldsmiðjunni. einar Dagur
segir að starfsreynsla eldri
starfsmanna fyrirtækisins
sé ómetanleg, sérstaklega
þar sem eldbökun sú sem
eldsmiðjan viðhefur krefst
mikillar þekkingar og alúðar
en um leið þarf að afkasta á
hraða skyndibitastaðarins:
„við búum til mjög margar
pizzur á stuttum tíma og
önnum mikilli eftirspurn í
eldbökun. Það tekur tíma
að læra að eldbaka pizzur í
stórum, hlöðnum steinofnum
þar sem okkar kyndingarefni
er viður úr Hallormsstaðar-
skógi – birki. Það tekur marga
mánuði og jafnvel nokkur ár
að fullkomna þessa þekkingu,
þannig að þetta líti fallega
út um
leið og
miklu
er
afka-
stað
á
stutt-
um
tíma.
Þetta
krefst þess að
reynsluboltar stýri stöðun-
um og leiði okkar yngra og
ágæta starfsfólk og sjái um
þjálfun á nýju starfsfólki.“
eldsmiðjan leggur mikla
áherslu á ferskt og vand-
að hráefni. „til dæmis er
pepperóníið okkar sérlagað
fyrir okkur og þú finnur það
hvergi annars staðar. við
fáum fyrsta flokks deig og
osturinn kemur frá mjólk-
ursamsölunni. eldsmiðjan
pantar afar ört inn hráefni
sitt og situr því aldrei uppi
með stóran lager. sífelldar
pantanir valda því að við-
skiptavinirnir eru alltaf að fá
nýtt og ferskt hráefni í mat-
inn sinn, sem veitingastjóri
þarf ég að panta hráefni alla
daga,“ segir einar.
eldsmiðjan rekur í dag
fimm staði; hjá n1 á Ár-
túnshöfða, við Bragagötu,
við laugaveg, við suður-
landsbraut og að Dalvegi 4.
allir staðirnir bjóða upp á að
veitinga sé notið á staðnum,
heimsendingu eða að matur-
inn sé sóttur. nú er eldsmiðj-
an komin með nýuppfært
smáforrit sem einfaldar
viðskiptavinum til muna að
panta þegar heimsent er eða
sótt.
Bæjarréttur
Mosfellinga er
á Hvíta riddaranum
Kryddbrauðið er bæjar-réttur mosfellinga. pizzabær byrjaði
með hann fyrir löngu og
svo fengum við uppskriftina
þegar pizzabær hætti. Það er
vissulega komið eitthvað sem
heitir kryddbrauð á öðrum
stöðum en ekkert jafnast
á við þetta upprunalega
kryddbrauð og ekkert líkist
því,“ segir Hákon Örn Berg-
mann, eigandi Hvíta riddar-
ans, stærsta veitingastaðar í
mosfellsbæ, sem einnig telst
klárlega vera eitt af helstu
táknum bæjarins.
„kryddbrauðið er hægt að
fá 12 tommu eða 16 tommu.
innihaldið er pizzadeig, olía,
kryddbomba og pizzasósa.
Þeir sem eru lengra komnir fá
sér eitthvað meira á þetta en
margir fá sér kryddbrauðið
sem heila máltíð en ekki bara
sem meðlæti.“
pizzur skipa veglegan sess
á matseðli Hvíta riddar-
ans og áherslan er á gæði
umfram allt: „við erum ekki
skyndibitastaður heldur
veitingastaður, þannig að
pizzurnar hér eru steinbak-
aðar en ekki færibanda-
framleiðsla. Hráefnið er gott
og ég eyddi mjög miklum
tíma og peningum í að finna
rétta hráefnið eftir að ég
tók við staðnum í desember
árið 2015. sem dæmi þá er
pepperóní hjá okkur vönduð
spægipylsa sem við kaupum
frá stjörnugrís. Þetta bragð-
ast allt öðruvísi en eitthvert
venjulegt pepperóní úti í búð.
að öðru leyti þá eru þetta
gæði alla leið og við leggjum
meira upp úr góðum pizzu-
botni en að allt sé löðrandi í
olíu. Þetta eru gæði alla leið,“
segir Hákon.
Hvíti riddarinn tekur 120
manns í sæti og svona stór
staður hefur margar hliðar.
Hann er þó fyrst og fremst
fjölskylduvænn veitinga-
staður og um helgar eru oft
ýmsar uppákomur fyrir fjöl-
skylduna, til dæmis bingó.
Í annan stað er Hvíti
riddarinn góður pöbb og
sportbar. enn fremur er
oft lifandi tónlist í boði og á
kvöldin um helgar breytist
Hvíti riddarinn í vinsælan
skemmtistað sem opinn er til
kl. 3 á nóttunni.
Sjá nánar á hvitiriddarinn.is.