Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
Rauði krossinn á Suðurnesjum fær
stuðning Lionessu klúbbs Keflavíkur
Rauði krossinn á Suðurnesjum fékk á dögunum styrk frá Lionessuklúbbi
Keflavíkur upp á 250 þúsund krónur. Lionessur hafa undanfarin ár haft
aðstöðu hjá Rauða krossinum á Suðurnesjum í aðdraganda jóla til að útbúa
jólakransa sem seldir eru til fjáröflunar.
Á myndinni eru þær Gunnþórunn
Gunnarsdóttir og Elín Guðnadóttir
frá Lionessum að afhenda Eyþóri
Rúnari Þórarinssyni styrkinn.
Fjármunirnir munu ekki stoppa lengi
hjá Rauða krossinum því deildin af-
henti í þessari viku stuðning sinn til
Velferðarsjóðs Suðurnesja en Rauði
krossinn á Suðurnesjum er einn af
máttarstólpum velferðarsjóðsins.
NFS SAFNAÐI 200 ÞÚSUND
KRÓNUM FYRIR STÍGAMÓT
Góðgerðanefnd Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja afhenti Stíga-
mótum tæplega tvö hundruð þúsund króna styrk á dögunum, en peningnum
safnaði nefndin og aðrir nemendur skólans í svokallaðri „Góðgerðaviku“
sem haldin var fyrr á önninni.
Nefndin seldi happdrættismiða og
brjóstamöffins og nemendur skólans
tóku einnig þátt í ýmis konar gjörn-
ingum til að safna pening. Nemendur
fóru meðal annars í aflitun, fengu sér
nafn nemendafélagsins húðflúrað á
sig og hoppuðu í sjóinn þegar ákveð-
inni upphæð var náð.
NFS leggur mikið upp úr því að
halda fyrirlestra og að fræða nem-
endur, en fyrr á önninni var einnig
svokölluð „Kærleiksvika“ haldin þar
sem Stígamót fræddu nemendur um
kynferðislegt ofbeldi og Sigga Dögg
og Blush.is fræddu ungmennin um
kynlíf. Segir nefndin að Stígamót hafi
orðið fyrir valinu í kjölfar þeirrar
viku sem haldin var í skólanum, en
Stígamót eru grasrótarsamtök sem
berjast gegn kynferðisofbeldi og veita
aðstoð fyrir fólk sem hefur verið beitt
kynferðisofbeldi.
Velferðarsjóður stofnaður í Vogum
Nýverið tóku höndum saman Kven-
félagið Fjóla, Lionsklúbburinn
Keilir og Kálfatjarnarkirkja og
stofnuðu líknarsjóð sem hlaut
nafnið Velferðarsjóður Sveitar-
félagsins Voga.
Sjóðurinn auglýsti eftir umsóknum
um jólastyrki, en umsækjendur
þurfa að vera búsettir í sveitar-
félaginu og hafa þar lögheimili.
Umsóknir áttu að berast fyrir 10.
desember 2017.
RAUÐAKROSSBÚÐIN
Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ
Rauði krossinn
á Suðurnesjum
Það er opið miðviku- og fimmtudag frá 13 – 17
50% AFSLÁTTUR AF ÖLLU
svo jólafrí til 10. janúar
Gleðileg jól
Ávinningur af Lions happdrætti
skilar sér aftur til samfélagsins
Árleg afhending styrkja frá Lions-
klúbbi Njarðvíkur fór fram sunnu-
daginn 3. desember sl. þegar Jóla-
happdrættið í Nettó var kynnt.
Jólahappdrættið er aðalfjáröflun
klúbbsins en tekjur þess renna
óskiptar til verkefna- og líknamála.
Í afhendingunni nú í ár voru styrkir,
að upphæð 2,2 milljón króna, afhentir.
Meðal þeirra sem fengu styrki voru
Brunavarnir Suðurnesja, Velferðar-
sjóður Kirkjunnar, Ljósið, Tónlistar-
skóli Reykjanesbæjar, Fjölsmiðjan,
Már Gunnarsson tónlistar- og íþrótta-
maður, ásamt fleirum.
Sala happdrættismiðanna nú í ár
hófst formlega á sunnudaginn og
Lionsklúbburinn hvetur fólk til að
taka vel á móti Lionsmönnum úr
Njarðvíkunum. Það verða einnig
miða til sölu í Nettó, en þar er aðal-
vinningurinn, Toyota Aygo, til sýnis.
Ásamt bifreiðinni eru ellefu aðrir
veglegir vinningar í ár.
Mikið úrval fallegra jólagjafa
snyrtivörur, húðvörur og aukahlutir
Daria.is - Hafnargötu 29
DAGDVÖL ALDRAÐRA FAGNAR 25 ÁRA AFMÆLI
Dagdvöl aldraðra í Reykjanesbæ fagnaði 25 ára afmæli
nú á dögunum en boðið var til veislu á Nesvöllum í til-
efni þess síðasta dag nóvembermánaðar.
Inga Lóa Guðmundsdóttir, fyrrum for-
stöðumaður Bjargarinnar, fór þar yfir
söguna, velunnarar Dagdvalarinnar
tóku til máls og Vox Felix kórinn söng
við mikinn fögnuð. Eins og góðri af-
mælisveislu sæmir var boðið upp á
kræsingar.
Í sögu Dagdvalar aldraðra í flutningi
Ingu Lóu kom fram að félagsþjón-
ustan í Keflavík hefði ákveðið að opna
dagvist fyrir eldri borgara árið 1992
eftir könnun þar sem fram kom þörfin
fyrir slíka þjónustu, en dagdvöl er
stuðningsúrræði fyrir aldraða sem
búa í heimahúsum.
Dagdvölin var til húsa að Suður-
götu 12–14 en þann 23. september
1992 komu fyrstu dvalargestirnir í
dagdvölina. Þá hafði leyfi fengist frá
heilbrigðis- og tryggingarmálaráðu-
neytinu fyrir tíu einstaklinga á dag.
Starfsemin er fjármögnuð með dag-
gjöldum frá ríkinu en bærinn leggur
til húsnæði og rekstur þess.
Það var fljótlega ljóst að þetta væri
úrræði sem hentaði öldruðum bæjar-
búum vel og að húsnæðið væri ekki
nógu stórt og því var reynt að fá fleiri
leyfi frá ráðuneytinu. Árið 2008 var
starfsseminni skipt upp í almenna
dagdvöl og dagdvöl fyrir minnissjúka.
Almenn dagdvöl fluttist í þjónustu-
miðstöðina að Nesvöllum, Njarðar-
völlum 4, í apríl 2008 og þar eru nú
leyfi fyrir fimmtán einstaklinga.
Dagdvöl fyrir minnissjúka flutti síðan
í Selið, Vallarbraut 4, í maí 2008 og í
dag eru leyfi fyrir ellefu minnissjúka
einstaklinga.
Forstöðumaður öldrunarþjónustu á
Nesvöllum er María Rós Skúladóttir.
SAMÞYKKTU STOFNFRAMLAG VEGNA NÁMSÍBÚÐA
Samþykkt var 12% stofnframlag
af áætluðum byggingarkostnaði
vegna bygginga námsíbúða á fundi
bæjarráðs Reykjanesbæjar þann 7.
desember síðastliðinn.
Samtals er upphæðin 136 millj-
ónir sem mun greiðast á tveimur
árum. Stofnframlagið skal endur-
greiðast í samræmi við 5. mgr. 14.
laga nr. 52/2016 um almennar
íbúðir og reglur bæjarins um
stofnframlög sem samþykktar
voru á bæjarstjórnarfundi þann
15. nóvember sl. Greiðsla stofn-
framlagsins verður í samræmi við
10. gr. sömu reglna.