Víkurfréttir - 13.12.2017, Síða 18
18 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
„Það er fátt sem kemur mér í meira
jólaskap heldur en skautasvellið og
þegar ég byrja að stússast í þessu
á hverju ári fæ ég einmitt þessa
tilhlökkunar tilfinningu fyrir jól-
unum,“ segir Keflvíkingurinn Arnar
Már Eyfells, en hann starfar sem
verkefnastjóri í markaðsdeild Nova
og sér um skautasvellið á Ingólfs-
torgi í miðborginni sem hefur verið
sett upp í desember síðastliðin tvö
ár.
„Þetta er ótrúlega skemmtilegt, en
á sama tíma krefjandi. Fyrstu fjóra
dagana tókum við á móti fleiri en
1.500 manns og ég vona að þetta haldi
áfram svoleiðis. Draumurinn væri
að fá 20.000 manns á torgið í ár, en
ég fagna öllum sama hversu margir
enda á því að koma.“
Að sögn Arnars er ekkert sem kemur
honum í betra skap heldur en kakó,
vöfflur, jólaglögg og skautasvell í
desember, en hugmyndin að svellinu
kviknaði árið 2015 í kjölfar þess að
markaðsdeildin vann með Reykja-
víkurborg að uppsetningu á svoköll-
uðu „HM torgi“. „Okkur fannst því
tilvalið að athuga hvort við ættum
ekki að reyna gera eitthvað þarna í
desember mánuði og þá kom einhver
snillingur með þá hugmynd að þruma
upp skautasvelli, sem er ekkert sér-
lega einföld framkvæmd, en það var
ákveðið að kýla á þetta og í dag er
þetta orðið töluvert stærri og flottari
framkvæmd sem mun vonandi halda
áfram á næstu árum.“
Opið verður á Novasvellinu á Ingólfs-
torgi frá hádegi til 22 á kvöldin alla
daga fram að jólum og milli jóla og
nýárs. Það kostar 990 krónur að leigja
skauta, en þeir sem eiga sjálfir skauta
frá frítt á svellið.
Arnar Már Eyfells er verkefnastjóri
skautasvellsins á Ingólfstorgi
Draumurinn væri að fá
20.000 manns á torgið í
ár, en ég fagna öllum sama
hversu margir enda á því
að koma.
Skautar inn í jólin
í miðborginni
Hafnargötu 40 - Sími 422 2200
ÞÚ FÆRÐ ALLT
Í JÓLAPAKKANN Í OMN!S
Hvort sem það eru tölvur, spjaldtölvur, tölvufylgihlutir, prentarar, Bluetooth hátalalar og heyrnatól,
myndavélar eða sjónvörp þá er nokkuð víst að við erum með skemmtilegu jólagjöfina fyrir þig og þína!
Svo erum við auðvitað með rekstrarvörurnar líka.
ER UMBOÐSAÐILI
SMITH & NORLAND
Í REYKJANESBÆ
REYKJANESBÆVörumerki/framleiðendur:HP - DELL - Lenovo - Canon - Sony - Samsung - Apple - Bose - Siemens - BOSCH - NOKIA