Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
Styrktarsjóðurinn Team Auður styrkti
líknardeild Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja með tækjum og búnaði
fyrir deildina að verðmæti 150 þúsund
króna. Deildin fékk meðal annars
sjónvarp, kaffikönnu og nuddtæki,
með stuðningi Heimilistækja og
Tölvulistans, frá styrktarsjóðnum.
„Sjóðurinn var stofnaður í minningu
mömmu, Auðar Jónu Árnadóttur,
sem lést þann 9. desember 2012 eftir
að hafa háð hetjulega baráttu við
krabbamein. Þegar maður upplifir
þetta sjálfur, þá finnur maður hvað
allt svona skiptir máli. Það er mikið
álag á aðstandendum,“ segja dætur
Auðar heitinnar, Kristín Anna, Íris
Dögg og Lilja Dröfn Sæmundsdætur.
Þær ásamt fimmtíu öðrum konum frá
Suðurnesjum mynda Team Auður, en
hópurinn hefur áður styrkt Ljósið,
sem er endurhæfing og stuðningur
fyrir krabbameinsgreinda og aðstand-
endur þeirra, og líknardeild 11E á
Landspítalanum þar sem móðir þeirra
dvaldi síðasta hálfa mánuðinn.
„Mamma var rosalega virk í Ljósinu
og við sáum hvað það gerði vel. Við
hefðum viljað vera í Keflavík með
mömmu en líknardeildin hér er svo
ný. Við athuguðum hvað vantaði á
deildina hér heima og fengum æðis-
legan lista sendan.“
Bryndís Sævarsdóttir, deildarstjóri,
segir styrkinn einnig hjálpa starfs-
fólkinu á deildinni gífurlega. „Starfs-
fólkinu finnst það oft ekki geta gert
jafn mikið og það vill gera. Það skiptir
svo miklu máli að geta hlúið að að-
standendum.“
Það er ósk Team Auðar að styrkurinn
komi að góðum notum. „Megi rekstur
líknardeildar Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja ganga sem best um
ókomin ár.“
Fimmtíu konur frá Suðurnesjum láta gott af sér leiða í minningu Auðar Jónu Árnadóttur
Bryndís Sævarsdóttir deildarstjóri, Hjördís Baldursdóttir, Íris Sigurðardóttir, systurnar Íris Dögg, Kristín Anna og Lilja Dröfn Sæmundsdætur, Margrét Knútsdóttir
og Helga Signý Hannesdóttir aðstoðardeildarstjóri við afhendingu styrkjanna á HSS.
TEAM AUÐUR STYRKIR LÍKNARDEILD HSS
Erlendur ökumaður, sem keyrði á 128 km hraða á Reykjanesbraut þar sem
hámarkshraði er 90 km á klukkustund, var einn þeirra sem lögreglan á
Suðurnesjum kærði fyrir of hraðan akstur í vikunni. Ferðamaðurinn fékk
52 þúsund króna sekt sem hann greiddi á staðnum.
Þá voru höfð afskipti af ökumanni sem grunaður var um ölvun við akstur og
öðrum sem grunaður var um fíkniefnaakstur. Sá síðarnefndi reyndist hafa
amfetamín í vörslum sínum.
Á l a u g a r d a g i n n
kemur, 16. desember,
fer fram Twitter-
maraþon lögregl-
unnar, svokallað
“Löggutíst”. Í löggut-
ístinu mun Lögreglan
á Suðurnesjum nota
samfélagsmiðilinn
Twitter til að segja frá öllum
verkefnum sem koma á borð lög-
reglunnar frá því kl. 16 til kl. 04 á
sunnudagsmorgninum. Tilgangur
viðburðarins er að gefa almenningi
innsýn í störf lögreglu með því að
fylgjast með útköllum sem henni
berast, fjölda þeirra og hversu
margvísleg þau eru.
Á meðan viðburð-
inum stendur munu
e m b æ t t i n n o t a
#-merkið #löggutíst
til að merkja skila-
boðin.
Lögreglan á Suður-
nesjum mun tísta frá
sínum notendaaðgangi: @sudur-
nespolice – eða á https://twitter.
com/sudurnespolice
Lögreglan á Norðurlandi eystra og
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
munu tísta frá sínum notendaað-
gangi.
Frístundastyrkur Sveitarfélagsins
Voga verður nú hækkaður úr 15
þúsund krónum í 25 þúsund krónur
á hvert barn, en það kemur fram
í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins
fyrir árið 2018.
Fyrir árið 2017 var styrkurinn hækk-
aður úr 10 þúsund krónum í 15 þús-
und krónur á hvert barn, en þá hafði
styrkurinn haldist óbreyttur í sex ár.
Frístundastyrkinn geta fjölskyldur
notað upp í greiðslur fyrir skipulagt
starf sem stundað er undir leiðsögn
viðurkenndra þjálfara eða leiðbein-
anda, eins og íþróttir og æskulýðs-
störf.
Frístundastyrkur Voga
nú 25 þúsund krónur
Ferðamaður á fleygiferð
Löggan tístir
á laugardaginn
Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári!
Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!