Víkurfréttir - 13.12.2017, Síða 46
46 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
Heiti sýningarinnar Við girðinguna vísar til
eiginlegrar staðsetningar hennar, nálægt gömlu
flugvallargirðingunni þar sem fyrrum mættust
íslensk og bandarísk menning: Íslendingasögur
og teiknimyndasögur, rímnastemmur og rokk-
tónlist, sviðakjammar og Hershey’s-súkkulaði. En
sýningin er líka um girðingar í óeiginlegri merkingu,
mörkin milli hins smáa og hins stóra, eyjaskeggja
og meginlandsbúa, hins heimatilbúna og aðfengna,
hins þekkta og óþekkta. Og sýning Úlfs staðfestir
með sínum hætti, og af sérstökum ástríðukrafti
að girðingin er ekki lengur held. Fiðrildi austur í
Asíu blakar vængjum og kemur af stað hvirfilbyl
hinum megin á hnettinum. Ofbeldi og óáran utan
landsteina eru á augabragði orðin hluti af heims-
mynd okkar, þökk sé snjallsímanum.
Verk Úlfs eru litríkur vettvangur óútkljáðra átaka,
skyndilegra hugljómana og ókláraðra frásagna.
Mörkin milli veruleika og óraunveruleika eru yfir-
leitt óljós og á endanum skilur listamaðurinn eftir
heilmikið fyrir okkur að ígrunda, löngu eftir að
myndir hans eru horfnar okkur sjónum. Svo segir
í umsögn um sýninguna sem er afar áhugaverð en
all nokkur fjöldi leiðsögnina.
Sýningin stendur til 14. janúar nk. og safnið er
opið alla daga frá kl.12.00-17.00.
Áhugavert „Við girðinguna“
Listasafn Reykjanesbæjar
opnaði nýlega sýninguna
Við girðinguna. Þar er
á ferðinni einkasýning
Úlfs Karlssonar sem er
fæddur árið 1988 og er
með eftirtektarverðustu
listmálurum sinnar kyn-
slóðar. Verk hans eru lit-
ríkar og átakamiklar hug-
leiðingar um mannlífið í
abstrakt-expressjónískum
anda. Úlfur hefur sýnt
verk sín víða, bæði á Ís-
landi og erlendis og m.a. í
Hilger, hinu þekkta gallerí
í Austurríki. Úlfur og
sýningarstjórinn Aðal-
steinn Ingólfsson ræddu
við gesti sem sóttu leið-
sögn um sýninguna eitt
sunnudagssíðdegi nýlega.
Mörkin milli veruleika og óraunveruleika eru yfirleitt óljós
og á endanum skilur listamaðurinn eftir heilmikið fyrir
okkur að ígrunda, löngu eftir að myndir hans eru horfnar
okkur sjónum.
Gestir spurðu listamanninn
út í myndirnar á leiðsögn um
sýninguna.
Í ár selur Kiwanisklúbburinn Keilir jólatré
í porti Húsasmiðjunnar á Fitjum.
Jólatré - norðmannsþinur - fura - greni
- leiðiskrossar - skreyttar greinar
Allur ágóði af sölunni rennur til líknarmála
Jólatréssala
Opið virka daga kl. 17–20
og um helgar kl. 14–20
Sendum íbúum allra sveitar-
félaga á Reykjanesi okkar
bestu jóla- og nýárskveðjur.
Samband sveitarfélaga á
Suðurnesjum.