Víkurfréttir - 13.12.2017, Síða 64
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Af hverju er nafnið mitt ekki
á síðu 33 í blaðinu í dag?
GRIPGÆÐI Á ÖLLUM,
ALLT ÁRIÐ Frábær dekk
á frábæru verði
Útvegum flestar gerðir hjólbarða
Smur- og hjólbarðaþjónustan ehf., Vatnsnesvegi 16, 230 Reykjanesbæ, sími 421 4546
Bitin
af stórlaxi
Við erum öll kjaftstopp vegna opin-
berana kynsystra minna í mismun-
andi geirum þjóðfélagsins. Opin-
berana á því sem konur hafi ávallt
látið yfir sig ganga á vinnustöðum
og ekki sagt frá. #metoo-herferðin
markar vonandi upphaf af einhverju
stórkostlegu sem byrjaði með því að
leikkonur í Hollywood sögðu frá.
Eflaust eru einhver ykkar komin
með nóg af þessari umræðu og ég
hef heyrt karlmenn og einnig kon-
ur nota þetta í gríni, veit ekki hvort
það sé endilega slæmt, örugglega í
sumum tilvikum en það ýtir kannski
enn frekar við umræðunni. Hvað
sem því líður þá get ég ekki sleppt
því að nota tækifærið og segja ykkur
frá minni reynslu.
Fyrstu árin mín af tuttugu ára
stjórnendaferli var ég yfirleitt kölluð
„vinan“. Auðvitað sætti ég mig við
það í upphafi. Var jú bara 25 ára og
„strákarnir“ sem ég fundaði með
eða vann með hlytu að vera gáfaðri,
reyndari og bara á allan hátt betri en
ég. Ég var svo ung og saklaus. Þetta
þróaðist og eftir því sem ég sannaði
mig meira því sjaldnar var ég kölluð
vinan. Þrátt fyrir það kom það ennþá
fyrir að á mig var ekki hlustað og þótti
það skrýtið að ég skyldi hafa skoðanir
á hlutunum. Það eina sem er í raun
skrýtið við þetta er að skoðanir skulu
vera bundnar við kyn í hugum sumra.
Kynbundið ofbeldi virðist þrífast í
stórum sem smáum fyrirtækjum.
Ég man þegar ég byrjaði að vinna hjá
stóru fyrirtæki og var kynnt til leiks,
þá kom til mín samstarfsmaður og tók
í höndina á mér. Hann hélt lengi og
vildi ekki sleppa strax. Sagðist vera að
setja mig í runkminnið. Já þetta var
„grínisti“ fyrirtækisins og allir hlógu.
Aldrei fyndið og aldrei gleymt. Það eru
nefnilega ekki eingöngu yfirmenn sem
hafa völdin. Vinsæli starfsmaðurinn
eða sá fyndni hafa mikið að segja. Ég
er ekki að alhæfa og setja alla karl-
kyns samstarfsfélaga eða aðila sem ég
hef unnið með í gegnum tíðina undir
sama hatt. Þeir eru jafn mismunandi
og þeir eru margir.
Árin liðu og ábyrgð í starfi jókst. Auk-
inni ábyrgð fylgdu auknar skyldur
sem sumir skilgreina sem fríðindi.
Skyldur eins og vinnuferðir erlendis,
golfmót, boðsferðir í veiði og svo
mætti lengi telja. Í einni slíkri skyldu
á undursamlegum stað í laxveiði var
ég svo bitin af stórlaxi. Sjokk. Skömm.
Margra ára vanlíðan. Ég þagði og þegi
og hef aldrei sagt frá. Stórlaxinn ætti
að bera þessa skömm, ekki ég, sem hef
borið hana og hugsað um þetta síðan.
Ég er þakklát fyrir þessa byltingu, það
gefur mér von um að dætur mínar
þurfi ekki að upplifa það sama og ég.
LOKAORÐ
INGU BIRNU RAGNARSDÓTTUR
FRÉTTAVAKT
ALLAN SÓLARHRINGINN
898 2222
Desembersólin súnkar í hafið við Reykjanes og býður góða nótt...
VÍKURFRÉTTAMYND: HILMAR BRAGI BÁRÐARSON