Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 60
KYNNING Sveitarfélagið Fjalla-byggð varð til við sameiningu Ólafs- fjarðar og Siglufarðar árið 2006. Í Fjallabyggð búa um 2.100 manns sem taka ætíð einstaklega vel á móti ferða- mönnum og útivistarfólki. Í Fjallabyggð er fjölbreytt menningarlíf og upplífgandi andrúmsloft. Það skiptir ekki máli á hvaða árstíma ferðast er til Fjallabyggðar, þar er alltaf margt skemmtilegt að skoða og gera. Fagurt umhverfi allt árið Fjallabyggð býr að stórbrot- inni náttúrufegurð í „faðmi fjalla blárra“, eins og skáldið sagði, þar sem möguleikar á sviði útivistar og tómstunda eru hreint óþrjótandi. Nátt- úran er ávallt innan seil- ingar, hvort heldur haldið er í gönguferðir, skellt sér á skíði eða veitt í vötnum, ám eða sjó, ásamt fjölþættum gönguleið- um um fjöll og dali. Við slíkar aðstæður hefur nær ósnortið og friðsælt náttúrufar Héð- insfjarðarins notið mikillar hylli hjá ferðafólki. Gönguleiðakort eru fyrirliggjandi á heimasíð- unni; fjallabyggd.is. Fallega Fjallabyggð að vetri Í Fjallabyggð er nægur snjór í fjöllunum og allsstaðar hægt að finna tækifæri og að- stöðu til útiveru. Á veturna er staðurinn skíðaparadís og draumur útivistar- mannsins. Hægt er að fara á svigskíði, gönguskíði, skauta, þeytast um á snjó- sleða eða á vélsleða og hinir friðsælu geta dorgað í Ólafsfjarðarvatni. Svo er ætíð tilvalið að skella sér í sund í rómuðum sund- laugum Fjallabyggðar. Um páskana verður svo fjölbreytt menningar- og afþreyingardagskrá á boðstólnum í Fjallabyggð. Skíðasvæðin Í Fjallabyggð eru tvö skíðasvæði: Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði og Skíðasvæðið í Tindaöxl í Ólafsfirði. Heimamenn hafa verið töluvert heppnari með skíðaveður en borgarbúar og hafa því getað mundað skíðin sín og brettin síðan í desember. Það er allaf gleði í fjöllunum í Fjallabyggð. Skíðasvæðið í Skarðsdal Skíðasvæðið í Skarðsdal má tvímælalaust telja með bestu skíðasvæðum landsins. Þar er oftast svo mikill snjór að hægt er að skíða langt fram á vor. Á svæðinu eru nú þrjár lyftur, tvær samfelldar: diskalyfta og T-lyfta, sam- tals um það bil 1.500 metrar að lengd. Þriðja og efsta lyftan er 530 metra löng með um 180 metra fallhæð og afkastar hún um 550 manns á klukkustund. Efri endi lyftunnar er í rúmlega 650 metra hæð yfir sjó. Í Skarðsdal er að finna ein- hverjar bestu alhliða brekkur landsins. Nýlega var reistur glæsilegur skíðaskáli þar sem aðstaða fyrir gesti er öll til fyrirmyndar. Hópum eru gerð hagstæð tilboð um lyftukort og þess háttar. Góð flóðlýs- ing er einnig á skíðasvæðinu svo skammdegið ætti ekki að aftra för skíðamannsins. Vetraríþróttir í Ólafsfirði Í Ólafsfirði eru kjöraðstæð- ur til vetraríþrótta. Hægt er að fara í vélsleðaferðir um fjöll og dali í nágrenninu og er aðstaða til skíðaiðkunar óvíða betri. Göngubrautir eru troðnar alla daga þegar veður leyfir. Á skíðasvæðinu í Tindaöxl eru skíðalyfta og góðar svigbrautir. Bretta- menn fá stór ótroðin svæði og nota gjarnan hryggina í brekkunni til að sýna list- ir sínar. Í glæsilegum skála Skíðafélagsins er boðið upp á ýmiss konar veitingar. Í skálanum er svefnloft þar sem um 25 manns geta gist í svefnpokum. Hópum eru gerð hagstæð tilboð um lyftukort og þess háttar. Vélsleðaferðir Svæðið í kringum Fjallabyggð er einstaklega hentugt til vélsleðaferða. Dalir með snjó langt fram eftir vori gera svæðið að einstakri útivistar- paradís fyrir vélsleðafólk. Gönguleiðir og fjallgöngur Fátt jafnast á við góðan dag á fjöllum og að skíða niður ósnortnar brekkur í stórfenglegu umhverfi. Tröllaskagi er án efa besta fjallaskíðasvæði landsins, með sín háu fjöll og mikla snjó. Fjöllin á Tröllaskaga eru á heimsmælikvarða og bjóða uppá brekkur við allra hæfi hvort sem þú ert að byrja eða í leit að verulegum áskonunum. Hér er hægt að ganga á fjöll og skíða niður frá mars og fram í júní. Þegar daginn fer að lengja verður snjórinn enn betri og þegar kemur fram í júní er hægt að skíða í miðnætur sólinni eins og um miðjan dag. Fjöllin á Tröllaskaga geyma hæstu fjöll Norðurlands. Á utanverðum Tröllaskaga má nefna Dýjafjallshnjúk 1445 m, Kvarnárdalshnjúk 1424m og Heiðingja 1402m. Meðal- hæð fjalla er um 930m eða 3000ft. Svæðið er því kjörlendi fyrir göngufólk og má finna gönguleiðir fyrir alla, hvort sem menn vilja ganga á láglendi um Friðland Svarf- dæla, klífa fjöll eða fornar þjóðleiðir á milli byggðarlaga. Í Fjallabyggð eru tvö ferða- félög sem bjóða upp á ýmis konar gönguferðir: Ferða- félagið Trölli, Ólafsvegi 42 í Ólafsfirði og Top Mountaineer- ing, Hverfisgötu 18 á Siglu- firði, standa fyrir nokkrum skipulögðum gönguferðum á hverju ári, jafnt um sumar sem vetur. Átak hefur verið gert í merkingum gönguleiða á Tröllaskaga og eru margar skemmtilegar merktar og stikaðar gönguleiðir í Fjalla- byggð. Þær eru mislangar og misjafnlega krefjandi, svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hægt er að hafa sam- band við Top Mountaineering Hin fallega byggð, Fjallabyggð Við TöKUM allTaF VEl Á MÓTi FErðaFÓlKi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.