Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 38
Konudagurinn 16. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ
„Íslenskar konur eru
skvísur fram eftir öllum aldri“
Stíll, Síðumúla 34
Við erum með föt fyrir konur frá aldrinum um 25 ára og alveg upp úr. Það er nefnilega
svo merkilegt að íslenskar konur eru
skvísur fram eftir öllum aldri, þær
verða mjög seint gamlar. Hingað
kemur ein reglulega, sem er áttræð,
og fatar sig upp,“ segir Guðný Kristín
Erlingsdóttir, eigandi kvenfata-
verslunarinnar Stíll, sem hún hefur
rekið í 17 ár. Ákveðin þáttaskil urðu í
rekstrinum þegar Guðný flutti versl-
unina af laugavegi og upp í Síðu-
múla:
„Við erum í vissum skilningi frum-
byggjar í þessari bylgju nýrra versl-
ana hér síðustu misserin, við komum
hingað með þeim fyrstu og margar
hafa fylgt í kjölfarið. Okkur líkar
rosalega vel hérna og mér finnst
þetta vera orðinn nýi miðbærinn. Hér
rölta oft um vinkvennahópar, ganga
Síðumúlann og Ármúlann og kíkja í
verslanir. Eftir að við fluttum hingað
gátum við líka stækkað verslunina og
aukið úrvalið, sem var mjög jákvætt,“
segir Guðný.
Stíll leggur áherslu á gæðavörur á
hagstæðu verði. „Við svona rétt löfum
í meðalverði, erum ekki með ódýrustu
fötin í bænum en erum langt fyrir
neðan þau dýrustu. Við leggjum mikla
áherslu á gæðin og ég vil fullyrða að
hér fá konur mjög góð föt á sann-
gjörnu verði. Það hefur líka hjálpað
okkur að föt hafa almennt lækkað í
verði, líka í innkaupum, og 15% tolla-
niðurfelling á innfluttum fatnaði sem
átti sér stað fyrir tveimur árum hefur
skilað sér beint inn í verðlagið hjá
okkur.“
Stíll býður
upp á klassísk
föt sem henta
konum á öllum
aldri, í bland við
tískusveiflur:
„Við erum mikið
úrval af bux-
um og kjólum
í klassískum
sniðum en síðan
líka flíkur á borð
við leggings-
buxur og rifnar
gallabuxur. Við
erum líka með
vítt stærðaval,
frá 36 upp í 46,
en ekki beinlínis
yfirstærðir.“
Stíll leggur áherslu á góða þjón-
ustu og ráðgjöf, léttan anda og að
viðskiptavinum líði vel í versluninni. að
sögn Guðnýjar er mikil vinna að reka
góða fataverslun og þetta sé bara
starf fyrir þá sem vilja vera í því af lífi
og sál: „Þó að ég hafi verið í þessum
rekstri í 17 ár er ég alltaf jafnt spennt
þegar það koma nýjar vörusendingar.
Þetta er svo skemmtilegt.“
Gjafabréf í Stíl er klárlega góð
konudagsgjöf en Guðný bendir eigin-
mönnum líka á að skoða Facebook-
síðuna www.facebook.com/stillfas-
hion.is/ því þar birta konur oft góðar
ábendingar til eiginmanna sinnar um
gjafir. Stíll er til húsa að Síðumúla 34
og er opin virka daga frá kl. 11 til 18
og laugardaga frá kl 11 til 16.
Símanúmer er 551-4884.
Hundurinn Hódor (eftir persónu úr Game of thrones) er einstakur karakter og setur
skemmtilegan svip á verslunina. mynd Einar Ragnar