Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 30
30 fólk - viðtal 16. febrúar 2018 Hollywood inn á sjálfa Óskarsverð- launahátíðina. Hún segir það hafa verið ótrúlega reynslu og allt ann- að andrúmsloft en á Grammy-há- tíðinni. „Það var allt svo fínt og svo mikill klassi yfir öllu. Allir voru líka í góðu skapi, stórstjörnur og aðr- ir. Þetta var eins og að fara í brúð- kaupsveislu hjá góðum vini. Ég var svo spennt þegar ég gekk rauða dregilinn að ég þurfti að passa upp á andardráttinn og að halda fótun- um á jörðinni.“ Fyrir hátíðina var farið með þau á „leynistað“ þar sem þau völdu sér klæðnað fyrir hátíðina. „Þarna var hægt að fá alls konar kjóla og skartgripi úr demöntum sem við hefðum aldrei getað keypt. Við skrifuðum bara undir skjal um að fá þetta lánað og litum svo út eins og konungborið fólk þegar við gengum í salinn.“ Kölluð aftur á svið Lag Marketu og Glens keppti við fjögur önnur lög, þar á meðal þrjú úr Disney-myndinni Enchanted. Það var John Travolta sem opnað umslagið og las upp „And the Osc- ar goes to …“ Hvernig var tilfinningin að heyra nöfn ykkar? „Eins og flugeldasýning. Það voru alls konar tilfinningar sem hrísluðust um mann. Líkaminn býr til seratónín og allt þetta góða fer af stað. Svo fer maður að anda grunnt, titra og getur varla talað.“ Marketa og Glen gengu á sviðið og tóku við styttunum sínum og Glen flutti stutt ávarp. Þegar Marketa fór að hljóðnemanum og byrjaði að tala hófst tónlistin og þau gengu af sviðinu. Seinna í út- sendingunni kallaði Jon Stewart kynnir Marketu eina á svið til að ljúka ræðunni. Hvað gerðist eiginlega? „Áður en við fórum á hátíðina fengum við undirbúnings DVD- disk þar sem Tom Hanks segir: Til hamingju, þú hefur verið tilnefnd- ur … og hvað nú? Þar kom fram að ef þú vinnur hefur þú aðeins eina mínútu frá því að nafnið þitt er lesið upp þar til tónlistin byrjar og þú verður að koma þér af sviðinu. Þegar við komum á sviðið voru um 30 sekúndur eftir. Við Glen vorum búin að ræða að ef við myndum vinna myndi hann halda ræðuna þar sem hann syngur meira á tón- leikum okkar. Ég ætlaði aðeins að segja takk kærlega.“ Þegar af sviðinu var komið fengu þau freyðivín og svo farið beint í myndatöku. En þá kom maður með hljóðnema á höfðinu og sagði við Marketu að Jon Stewart vildi ræða við hana stuttlega. „Mér fannst þetta skrítið en var eiginlega ekki í ástandi til að hugsa mikið um þetta. Svo var mér sagt að ég myndi fara aftur á svið en ég skyldi ekki alveg hvað var í gangi. Svo var ýtt á bakið á mér og ég gekk inn á sviðið en var ekki með neitt undirbúið. En ég lét vaða og talaði frá hjartanu um að allt mannfólk væri eitt og að lagið okkar byggði brýr milli fólks.“ Ágengni ljósmyndara og aðdáenda „Ég er löngu hætt að hugsa um hvort þetta hafi verið draumur eða ævintýri. Þetta gerðist bara. Ég trúi á galdra og að hlutir gerist fyrir einhverja krafta sem við skilj- um ekki. Ég trúi líka á engla, álfa og guð í alls konar myndum. Ein- hvern æðri mátt sem stýrir.“ Fékkstu tilboð um að leika í Hollywood eftir þetta? „Já, en það voru aðeins smá- hlutverk og ekkert sem ég tengdi neitt sérstaklega við. Svo er það heldur ekki þannig að hlut- verkin komi á silfurfati. Jafnvel þekktir leikarar þurfa að fara í áheyrnarprufur og taka upp kynn- ingarmyndbönd. Mér fannst ég ekki vera það góður leikari. En ég gat leikið þetta hlutverk sem ég tengdi mjög vel við.“ Marketa segir að þessu hafi einnig fylgt skuggahliðar, þá sér- staklega varðandi ágenga blaða- menn í heimalandi hennar og paparazzi -ljósmyndara sem eltu hana og seldu myndir í slúður- blöð. Allt í einu var hún orðin stórstjarna í Tékklandi og það gat reynst lýjandi að sinna öllum að- dáendunum. „Mér fannst allir vilja eitthvað frá mér. Ég var farin að missa röddina vegna þess að ég var talandi allan daginn. Ég reyndi að sinna fólki eins vel og ég gat en ég var orðin dauðþreytt.“ Hún seg- ir þó að heilt yfir hafi þessi reynsla verið jákvæð og með tíð og tíma lærði hún að takast á við frægðina. Leitaði að guði Samstarf Marketu og Glens var ekki bundið við kvikmyndina Once. Þau spiluðu saman í hljómsveitinni The Swell Season ásamt öðrum hljóm- sveitarmeðlimum úr The Frames. Marketa flutti til Dublin þar sem sveitin hafði bækistöð en annars voru þau á stöðugu tónleikaferða- lagi um heiminn. Óskarinn opnaði ýmsar dyr fyrir þau. Þau komu fram í The Simpsons og áttu lög í ýmsum kvikmyndum og þáttum. Einnig var settur upp Broadway-söngleik- ur byggður á Once. Eftir tvö ár var vildi Glen taka árs hlé frá The Swell Season og Marketa vissi þá að hljómsveitin myndi ekki koma saman aftur. Hún varð þá að ákveða hvort hún ætlaði að halda áfram í tónlistar- geiranum. Hún flutti til New York og ákvað að skapa sína eigin tón- list en í samvinnu við Aida Shah- ghasemi, slagverksleikara frá Íran, og úr varð platan Anar. Tónlist þín er svolítið trúarleg. „Foreldrar mínir eru ekki trúaðir og ég fékk ekki trúarlegt uppeldi. Þegar ég var lítil fann ég samt þörf fyrir eitthvað slíkt. Ég sá söngleikinn Jesus Christ Superstar í sjónvarpinu og varð algerlega hugfangin af honum. Mér fannst þessi hippi sem lék Jesú svo fal- legur og ég þóttist oft vera Mar- ía Magðalena. Ég vissi ekkert um kristna trú en ég heyrði trúfestuna í tónlistinni. Þegar ég flutti til Ír- lands var ég mjög leitandi í trú- málum og las mikið um þessi mál. Ég fann að ég trúði á guð en ekki þann guð sem aðrir voru að tala um. Ég hef gaman af því að skilja þetta ekki allt saman en held alltaf áfram að leita. Þessi leit hefur mikil áhrif á textana mína.“ Mætti ekki í flugið heim The Swell Season lauk sínu hinsta tónleikaferðalagi með tónleikum á NASA í október árið 2010. Marketa segir að landið hafi strax haft ein- hver áhrif á sig, að það væri öðruvísi en aðrir staðir á tónleikaferðalaginu. Hún hugsaði strax um að reyna að komast aftur til Íslands og taka upp plötu. Þegar þýskur vinur hennar stakk upp á upptökuverinu Gróður- húsinu til að taka upp sá hún þetta sem merki og stökk á tækifærið. Hér tók hún upp plötuna Muna með upptökustjóranum Sturlu Míó Þór- issyni, verðandi eiginmanni hennar. Neistaði strax á milli ykkar? „Já, en ég hef fundið það áður, að slík tilfinning getur komið upp þegar maður er að skapa eitthvað með öðrum. Það er eins og sálirnar geti eitthvað af sér í einhvers kon- ar dansi sköpunar og þær tilfinn- ingar eru mjög líkar ást. Þegar ég og Míó vorum að búa til plötuna hélt ég að þær tilfinningar sem ég fann væru aðeins þetta.“ En þegar upptökum var lokið vildi hún ekki fara aftur heim til New York. Sturla Míó bauð henni að vera lengur, kynnast landinu aðeins betur og syngja inn á aðra plötu sem hann var að taka upp. „Mér fannst frábært að hafa ástæðu til að vera lengur og mætti ekki í flugið mitt. Eftir viku sá ég að ég var pottþétt orðin ástfangin af honum.“ Líður ekki eins og útlendingi Marketa er nú með sitt þriðja barn undir belti og er einnig að vinna að nýrri plötu með Sturlu Míó. Hún segir að sú plata fjalli um ástina en ekki í hefðbundnum skilningi þess orðs. „Þegar söngvarar syngja um ástina fara þeir ekki nógu djúpt ofan í hugtakið fyrir mig. Þegar ég hef upplifað ást hefur hún breytt mér sem persónu og eflt. Ég kemst innan í kjarnann og verð betri út- gáfa af sjálfri mér.“ Er aldrei erfitt að vinna svo náið með maka sínum? „Nei, ekki með honum. Hann er ekki bara tæknilega mjög góður upptökustjóri heldur hefur hann mikla næmni á hvað mig vantar og er oft búinn að laga hluti áður en ég næ að biðja um þá. Hann er alltaf að fylgjast með. En við þurf- um að hugsa um að gefa hvort öðru pláss líka.“ Marketa og Míó opnuðu upp- tökuver sitt, Masterkey Studios, 6. janúar 2018. Þau höfðu þá unnið hörðum höndum að byggingu þess í yfir tvö ár en á sama tíma unnið saman að tónlist fyrir hljóm- plötur annarra tónlistarmanna, kvikmyndir og stutt myndir. Þau höfðu stefnt að því að eign- ast sitt eigið upptökuver í þrjú ár áður en þau fundu loks hið full- komna hús á Seltjarnarnesi. „Þetta gefur okkur mikið frelsi til að skapa í afslöppuðu umhverfi. Ef ég fæ allt í einu hugmynd um miðja nótt sem mig langar að útfæra get ég komið strax hingað.“ Auk þess að vinna að plötunni er Marketa að vinna að tónlist fyrir leikrit í Þjóð- leikhúsinu og í New York. „Það er nóg að gera og svo gaman að mæta í vinnuna.“ Er íslenska fjölskyldulífið ekki mikil viðbrigði frá Hollywood og tónleikaferðalögum um heiminn? „Jú, en ég er mjög ánægð með líf mitt núna. Í Hollywood þarf maður sífellt að berjast við að halda sér sýnilegum og álagið er mikið. Ég er búin að festa rætur og er á þeim stað sem ég vil vera. Ég hef einhverja tengingu við Ísland og líður ekki eins og ég sé útlendingur. Kannski bjó ég hér í fyrra lífi.“ n „Ég var svo spennt þegar ég gekk rauða dregilinn að ég þurfti að passa upp á andardráttinn. Opnuðu upptökuver „Ef ég fæ allt í einu hugmynd um miðja nótt sem mig langar að útfæra get ég komið strax hingað.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.