Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 22
22 16. febrúar 2018fréttir
Opið á konudaginn
frá kl. 9-18
Borgartún 23, Reykjavík / Sími: 561 1300 / Opið: mán.-fös. 10-18, lau. 11-18
Þú getur líka pantað á netinu - www.reykjavikurblom.is
Gleddu ástina
þína með blómum
og konfekti frá okkur
Lukku-pottur
Þeir sem versla hjá okkur á konudaginn detta í lukkupottinn.
F
jórir ungir menn sitja í
gæsluvarðhaldi á Akur-
eyri grunaðir um aðild að
alvarlegri líkamsárás og
frelsissviptingu í síðustu viku.
Samkvæmt heimildum DV var
fórnarlambið meðal annars lamið
með hamri í andlitið auk þess
sem viðkomandi var með slæma
áverka á fingrum eftir ótilgreint
áhald. Alls voru sex einstaklingar
handteknir og yfirheyrðir vegna
málsins en aðeins fjórir voru úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald sam-
kvæmt heimildum DV. Lögreglan
á Akureyri verst frétta af málinu
en svaraði fyrirspurn blaðsins á þá
leið að yfirheyrslur og gagnaöflun
stæði yfir.
Málið er einkennilegt fyrir þær
sakir að þeir sem eru grunaðir
um aðild að því hafa einnig tek-
ist á innbyrðis með blóðugum
hætti. Þannig býður meðferðar
óhugnan leg hnífstunga í Kjarna-
skógi í fyrra þar sem einn þeirra
sem situr í gæsluvarðhaldi er
grunaður um að hafa stungið ann-
an, sem var einnig handtekinn, í
lærið með „rambóhníf“.
Tveir nítján ára piltar í haldi
DV hefur aðeins upplýsingar um
þrjá af þeim fjórum sem sitja í
gæsluvarðhaldi. Það eru þeir Dan-
íel Christensen, Ísak Logi Bjarna-
son og Sindri Snær Pálsson.
Daníel, sem gengur undir nafn-
inu Danni danski, er á fertugs-
aldri en Ísak Logi og Sindri Snær
eru á nítjánda aldursári. Þrátt
fyrir ungan aldur hafa þeir gert
þónokkurn usla í undirheimum
Akureyrar undanfarið ár. Meðal
annars tengist Ísak Logi tveimur
hættulegum hnífaárásum á síð-
asta ári en Sindri Snær að minnsta
kosti einni.
Eins og áður segir var líkams-
árásin í síðustu viku sérstak-
lega hrottaleg. Fórnarlambið var
svipt frelsi sínu og hlaut alvarlega
áverka á meðan það var fast í prís-
undinni. Lögreglan réðst inn í hús
við Strandgötu 17 en það er heim-
ili Marvins Haukdals Einarssonar
sem var handtekinn á vettvangi
Hnífstungur og frelsis-
svipting á Akureyri
n Efasemdir um bókhald Danna danska n Illa farið með Bigga bangsa n Lögreglan verst allra frétta
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Daníel Christensen
Daníel gengur undir
nafninu Danni danski í
undirheimum Akureyrar.
Samkvæmt heimildum
DV tengist frelsissvipt-
ingarmálið meintri
skuld fórnarlambsins
við Danna. Fórnarlamb-
ið hefur áður lent í
hremmingum í tengslum
við téða skuld en telur
sig hafa greitt hana fyrir
löngu. Efasemdir eru því
uppi um bókhald Danna
danska.
Sindri Snær Pálsson
Er nítján ára eins og Ísak
Logi. Auk þess að sitja í
gæsluvarðhaldi vegna
frelsissviptingarinnar
er hann talinn tengjast
alvarlegri hnífstunguárás
við Glerárkirkju í fyrra,
ásamt Ísaki Loga.