Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 35
Konudagurinn 16. febrúar 2018 KYNNINGARBLAÐ Heilyndi.is Gjöf handa þeim sem þér þykir vænt um Ég hef velt fyrir mér lífinu og til-verunni lengi og alveg frá barns-aldri var ég að nudda foreldra mína og þess háttar. Ungur varð ég slæmur í baki og ekki hjálpaði til að ég hóf snemma störf sem bifvéla- virki og hef starfað lengi í því fagi. Ég man fyrst eftir verulegum verkjum 18 ára gamall. Ég prófaði margt en fékk aldrei bót meina minna nema bara tímabundið – allt þar til ég kynntist meðferðinni KCR (Kinetic Chain Rel- ease), sem er eins og rauður þráður í gegnum starf mitt núna. skotinn Hugh Gilbert setti þetta saman og þetta er afrakstur af hans ævistarfi hingað til. skurðlæknar í skotlandi eru farnir að segja fólki að fara í KCR áður en það tekur ákvörðun um að fara í aðgerð.“ Þetta segir skúli sigurðsson, mað- urinn á bak við meðferðarstöðina Heilyndi.is. skúli býður upp á verkja- meðferð, fyrirbyggjandi verkjameð- ferð og andlegt viðnám við streitu. „KCR er hannað til að koma líkaman- um í jafnvægi og laga líkamsstöðuna. Meiðsli eða röng líkamsstaða til langs tíma skapar vana í því hvernig vöðva- rnir halda líkamsstöðunni sem veldur því að háls, hryggur og mjaðmagrind fara úr jafnvægi. Ákveðin röð af teygjum og hreyfingum vinnur gegn þessu og stuðlar að því að líkaminn komist aftur í sitt náttúrulega jafn- vægi. CTR (Connective Tissue Release) er síðan framhald af KCR. „Þá erum við að fara dýpra inn í bandvefinn. ef þú hefur lent í áfalli – það getur verið andlegt áfall eða slys – þá er bandvefurinn það fyrsta sem mætir á staðinn og læsir líkamanum. Það geta verið 20 ár síðan áfallið átti sér stað en bandvefurinn er ekki enn búinn að fatta að hættan er liðin hjá. spennan viðhelst í líkamanum en við leysum úr flækjunni með einföld- um hætti,“ segir skúli. Ekki hægt að aðskilja hið líkamlega og hið andlega KCR og CTR eru líkamlegar með- ferðir, nokkuð sem skúli kallar því skemmtilega nafni „mannréttingar“. en oft verða líkamlegar og andlegar meinsemdir ekki aðskildar og skúli býður líka upp á meðferðir þar sem unnið er gegn streitu með því að rjúfa viðgang vanahugsunar: „Því sem við getum lagað líkamlega getur hug- urinn breytt á hálfri mínútu. ef þú ferð í ræktina, búinn að vera stress- aður allan daginn, nærð svo úr þér stressinu og allt í þessu fína lagi, þá færðu kannski óvænt símtal sem setur allt á hvolf og þú uppgötvar að þú ert orðinn alveg jafn stressaður og fyrir ræktina. spennan orðin alveg jafn mikil í líkamanum. Það sem ég reyni að kenna fólki er hvernig við getum talað við líkamann, það er það sem ég kalla „ friðarumleitanir“. Hitt, KCR og CTR, er það sem ég kalla mannréttingar, það er líkamlegi þátturinn. Hið verklega. Allt sem fram fer í huganum reynir líkaminn að vera tilbúinn undir. ef þú ert stressaður, reiður og hræddur, þá skynjar líkaminn bara að þú andar grunnt og mikið er um að vera, hann setur líkamann á viðbúnaðarstig. Bandvefurinn strekkist til að hækka blóðþrýstinginn. Ónæmiskerfið og þau kerfi sem viðhalda okkur, eru sett til hliðar á meðan við erum að undir- búa okkur fyrir hugsanlega baráttu. Viðbúnaðarstigið er auðvitað mishátt eftir aðstæðum en mörg okkar búum stöðugt á þessu viðbúnaðarstigi. Þess vegna verðum við útbrunnin og þreytt.“ Hægt að ná miklum árangri á stutt- um tíma „Til að ná góðum árangri þarf fólk ekki að koma mjög oft. eftir því sem þú lærir betur á sjálfan þig og lærir að láta lífið ekki yfirtaka þig, því sjaldn- ar þarftu að koma. Ég leiði fólki fyrir sjónir að það er sinn eigin læknir,“ segir skúli. Hann nefnir til sögunnar tvær meðferðir í viðbót sem eru í boði hjá honum: „Jóga þerapía – þú sest eða liggur en ég hreyfi útlimina, sveigi og teigi, þar vinnum við mjög djúpt. Allar tilfinningar eru í líkamanum, ef þú ert kvíðinn þá er tilfinningin einhvers staðar í líkamanum. Jóga nidra, djúpslökun, þar sem hægt er að beita ásetningi. Við förum með þér í bilið milli svefns og vöku en þar er hægt að breyta auðveldlega vana sem þú ert fastur í.“ Ljósmyndari á nuddbekkinn ljósmyndarinn einar Ragnar Har- aldsson, sem tekur myndirnar við þessa grein, lagðist á bekkinn hjá skúla og lætur vel af. „Það vakti athygli mína að hann fer beint í meinið. Ég er slæmur í mjóbakinu eftir gömul meiðsli og hann fór beint á veika staðinn. Þetta var dálítið eins og vera bæði hjá sjúkraþjálfara og nuddara. Hann nuddar mann bara í gegnum fötin og mér fannst þetta mjög markvisst og leið vel á eftir,“ segir einar. Gjöf fyrir þá sem þér þykir vænt um Á vefsíðunni heilyndi.is eru gagnlegar og skýrar upplýsingar um þjónustuna. Þar er líka hægt að bóka tíma og kaupa gjafabréf. skúli telur þetta vera góða gjöf á konudaginn og við önnur tækifæri: „Þetta er gjöf handa þeim sem þér þykir vænt um – tækifærisgjöf sem endist lengi. einn tími í KCR og nudd, tekur aðeins 80 mínútur, en áhrifin eru langvarandi. Ég fæ fólk sem hefur verið með verki í mörg ár, það kemur bara einu sinni og þarf ekki að koma aftur fyrr en eftir tvö ár. en nauðsyn- leg forsenda árangurs er að fólk sé móttækilegt og jákvætt gagnvart meðferðinni – vilji breytingu,“ segir skúli að lokum. Sjá umsagnir um starf Skúla á Facebook-síðunni www.facebook. com/heilyndi/.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.