Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 41
Konudagurinn 16. febrúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Gefðu þeim sem þú
elskar hágæðanudd
MíMos nuddstofa, suðurlandsbraut 16
Claudia Cecilla ortiz er nuddari frá bólivíu sem hefur búið á íslandi í sjö ár. Claudia rekur
nuddstofuna Mímos, að suðurlands-
braut 16, en þar eru veittar margar
tegundir af hágæðanuddi. allir
nuddarar sem starfa á stofunni hafa
mikla reynslu á sínu sviði.
Meðal nuddmeðferða er paranudd
þar sem tveir fá nudd í sama her-
berginu frá tveimur nuddurum. Við
steinanudd eru notaðir upphitaðir,
mjúkir steinar sem er nuddað mjúk-
lega um líkamann á meðan olía er
borin á. Við þetta örvast blóðrásin og
efnaskiptin ásamt því að dregið er úr
bólgumyndun, verkjum og spennu.
djúpvefjanudd er meðferð sem
beitt er á sérstaka vöðva hjá fólki sem
á til að hafa samanherpta vöðva eða
vöðvaverki. Þrýstingurinn fer beint inn
í innri byggingu vöðvans og kallar á
sérstaka meðferð. Markmiðið er losa
um spennu, hnúta og verki í líkaman-
um.
sígilt nudd sameinar djúpnudd
og slökunarnudd. Viðskiptavinur-
inn stýrir því hvaða hlutar líkamans
þurfa meðferð til að leyfa vöðvunum
að slaka á. síðan er minni þrýstingi
beitt á aðra hluta líkamans til að
örva blóðrásina og draga úr streitu.
Meðal annarra nuddmeðferða sem í
boði eru hjá Mímos eru íþróttanudd,
slakandi meðferð, fiðrildanudd, Yoga
thai-nudd og meðgöngunudd.
Velgengnin byggð á fagmennsku
sem fyrr segir hefur Claudia búið
hér á landi í sjö ár og líkar vel. Óneit-
anlega saknar hún veðurfarsins í
heimalandinu en segist hafa vanist
köldum vetrum á íslandi. Eitt það
erfiðasta við ísland segir hún vera
tungumálið en hún er að ná sífellt
betri tökum á því.
aðspurð hvort ekki sé erfitt fyrir
útlending að stofna fyrirtæki á íslandi
segir hún það krefjandi verkefni fyrir
alla að stofna fyrirtæki hvar sem
er. Það hafi hjálpað henni að leggja
sífellt áherslu á gæði og fagmennsku
sem eru rauður þráður í gegnum allt
hennar starf.
nuddmeðferðir hjá Mímos nudd-
stofu eru á hagstæðu verði og
gjafabréf eru í boði. best er að panta
gjafabréf með því að hringja í síma
781-8709 eða senda tölvupóst á
mimos@mimos.is.
Gjafabréf í nudd er frábær gjöf
handa þeim sem þér þykir vænt um.
Sjá nánar á mimos.is.