Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 23
16. febrúar 2018 fréttir 23
Hnífstungur og frelsis-
svipting á Akureyri
en sleppt sólarhring síðar. Þar
býr Marvin ásamt kærustu sinni,
Móniku Atladóttur, en hún var ný-
lega í viðtali við DV vegna fang-
elsisdóms sem hún hlaut fyrir að
stela nærbuxum úr Lindex.
Marvin var í viðtali hjá DV í
ágúst 2011, þá 27 ára gamall. Þar
talaði hann á opinskáan hátt um
fíknina sem hann hafði barist við
frá unga aldri. Þegar viðtalið var
tekið hafði hann verið edrú í þrjú
ár en sagði drauga fortíðar reglu-
lega minna á sig í formi innbrota,
hótana og árása. Þeir draugar virð-
ast nú hafa náð yfirhöndinni að
nýju.
Vafasamt bókhald Danna danska
Samkvæmt heimildum DV er
ástæða frelsissviptingarinnar og
líkamsmeiðinganna sögð vera
skuld fórnarlambsins við áður-
nefndan Danna danska. Hefur
fórnarlambið áður lent í hremm-
ingum vegna téðrar skuldar sem
er einkennilegt í ljósi þess að það
telur sig hafa greitt skuldina fyr-
ir lifandis löngu. Bókhald Dan-
ans virðist því, ef tekið er mið af
orðrómi úr undirheimum Akur-
eyrar, ekki upp á marga fiska.
Athygli vekur ungur ald-
ur tveggja piltanna sem nú sitja
í gæsluvarðhaldi. Ísak Logi og
Sindri Snær eru báðir fædd-
ir árið 1999 en hafa gert talsverð-
an usla norðan heiða undanfarna
mánuði. Þetta er þriðja alvarlega
árásin á innan við ári sem þeir
tengjast með einhverjum hætti.
Marvin stunginn í Kjarnaskógi
Þannig greindu fjölmiðlar frá
alvarlegri hnífstunguárás í Kjarna-
skógi þann 14. apríl í fyrra. Þar var
Ísak Logi handtekinn sem meintur
árásarmaður ásamt pari, tvítugri
konu og 27 ára karlmanni. Síð-
ar voru tveir aðrir menn hand-
teknir og yfirheyrðir vegna máls-
ins. Fórnarlamb þeirrar árásar
var Marvin Haukdal, sem eins og
áður segir var handtekinn ásamt
Ísaki Loga í frelsissviptingarmál-
inu nú. Andrúmsloftið í fangels-
inu á Akur eyri hlýtur að hafa verið
nokkuð þrúgandi en þó aðeins í
tæpan sólarhring því Marvin var
fljótlega látinn laus.
Vitni lýstu árásinni í Kjarna-
skógi þannig að tveimur mönn-
um hafi orðið sundurorða.
Eftir langt rifrildi var Marvin
stunginn tvívegis í lærið með
„rambóhníf“. Slagæð rofnaði við
árásina og því blæddi gríðarlega
mikið úr honum. Þurfti Marvin
að undirgangast sex klukku-
stunda langa aðgerð á Sjúkra-
húsinu á Akureyri. Haft var eftir
rannsóknarlögreglumanni að
Marvini hefði að öllum líkind-
um blætt út ef hann hefði ekki
komist undir læknishendur
með hraði.
DV óskaði eftir upplýsing-
um frá lögreglu um hvar þetta
mál væri statt í réttarkerfinu.
Bergur Jónsson lögreglufull-
trúi sagði í skriflegu svari að
lögreglan myndi ekki tjá sig
frekar um málið að sinni.
Ekki stunginn í fyrsta sinn
Þessi lífshættulega árás var
ekki sú fyrsta sem Marvin
verður fyrir. Hann hefur tals-
verða reynslu af ýmiss konar
hremmingum. Visir.is greindi
frá því í apríl 2016 að Marvin
hefði orðið fyrir alvarlegri lík-
amsárás á laugardagsmorgni
við heimahús í Akureyri.
„Ég var bara í heitum potti
á sólpalli á Akureyri þegar ég
er laminn í hnakkann og svo er ég
stunginn í tvígang og höndin á mér
brotin,“ sagði Marvin í samtali við
blaðamann Vísis. Hann rankaði
við sér á leiðinni upp í Fálkafell,
ofan við Akureyri, en þar fannst
hann síðar rænulítill með mikla
áverka, meðal annars hafði hann
misst á annan lítra af blóði. Ekki
hefði þurft að spyrja að leikslokum
ef göngumenn hefðu ekki komið
auga á hann. Rétt er að geta þess að
þeir sem voru grunaðir um þá árás
tengjast ekki frelsissviptingarmál-
inu nú.
Illa farið með Bigga bangsa
En Marvin er ekki bara fórnar-
lamb. Þann 10. mars 2017 var
hann dæmdur í tveggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir lík-
amsárás. Fórnarlamb hans er
maður á þrítugsaldri sem geng-
ur undir nafninu Biggi bangsi
í undirheimum Akureyrar. Var
Marvin dæmdur fyrir að skvetta
hættulegum vökva, sem reyndist
vera sterkur basi, í andlit Bigga.
Hluti af vökvanum lenti í vinstra
auga hans með þeim afleiðingum
að hann hlaut „fleiður á glæru,
sár á sjónhimnu og sjón hans var
móðukennd um tíma“, eins og
segir í dómsorði. Þá var Marvin
einnig dæmdur fyrir vopnalaga-
brot vegna vasahnífs sem hann
var tekinn með á almannafæri
nokkru síðar.
Undirheimar Akureyrar eru
ekki stórir þótt þeir geti verið
hrottalegir. Þann 31. október átti
sér stað alvarleg árás við Glerár-
kirkju sem ekki var fjallað um í
fjölmiðlum. Enn einu sinni kom
hnífur við sögu. Atburðarásin er
nokkuð á reiki samkvæmt heim-
ildarmönnum DV en leikar
fóru þannig að Biggi bangsi var
stunginn en tókst að forða sér af
vettvangi. Í tengslum við rann-
sókn málsins voru títtnefndir Ísak
Logi og Sindri Snær handteknir.
DV óskaði eftir frekari upplýs-
ingum frá lögreglu á Akureyri um
rannsókn málsins og hvort ákærur
hefðu verið gefnar út en fékk sama
svarið. Lögreglan ætlar ekki að tjá
sig um málið að sinni. n
n Efasemdir um bókhald Danna danska n Illa farið með Bigga bangsa n Lögreglan verst allra frétta
Marvin Haukdal Var fórnarlamb hnífstunguárásar í Kjarnaskógi í fyrra sem Ísak Logi er talinn tengjast. Þeir sitja engu að síður saman í gæsluvarðahaldi vegna frelsissviptingarmálsins.
Láttu þér ekki vera kalt
Sími 555 3100 www.donna.is
hitarar og ofnar
Olíufylltir ofnar 7 og 9
þilja 1500W og 2000 W
Keramik hitarar
með hringdreifingu
á hita
Hitablásarar
í úrvali
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Ísak Logi Bjarnason Aðeins 19
ára að aldri er Ísak Logi grunaður
um aðild að tveimur alvarlegum
hnífstunguárásum á síðasta ári.
Kjarnaskógur
Vettvangur hnífstunguárásar í fyrra.
Glerárkirkja
Vettvangur líkamsárásar í október.