Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 58
58 16. febrúar 2018 He lgar ma tur inn Frú Helga Fylgist með okkur Elma Backman hjá Mat og drykk deilir uppskriftum að krækiberjakokteil og unaðslegum eftirrétti úr hvítu súkkulaði frá Omnom og íslensku skyri. Fyrir þremur árum var opnað-ur þjóðlegur veitingastaður í gamla Aliance-húsinu við Grandagarð 2, þar sem verslunin Ellingsen var rekin í gamla daga. Staðurinn heitir því einfalda og skemmtilega nafni Matur og drykkur eftir samnefndri bók Helgu Sigurðardóttur sem allar íslenskar húsmæður, með snefil af sjálfsvirðingu, höfðu í öndvegi í eldhúsum landsins áratugum saman. „Þegar húsmæður voru að ræða hvernig átti að gera hlutina og voru ekki sammála þá var viðkvæðið alltaf; Sjáum bara hvað Helga segir! og svo var flett í bókinni enda hafði frú Helga lög að mæla,“ segir Elma sem stofnaði veitingastaðinn ásamt spænskum eiginmanni sínum, Alberti Munoz. „Hann ólst upp í lítilli salt- fiskverslun sem amma hans og mamma ráku til fjölda ára í Barcelona en þær seldu einmitt saltfisk sem kom úr þessu húsi því hér var saltfisksverkun í gamla daga. Saltfiskurinn frá Íslandi þótti sá allra besti sem völ var á og nú hefur hann Albert lokað hringnum með því að opna veitingastað í ná- kvæmlega sama húsi,“ segir Elma glöð í bragði. Frú Helga fylgist með að handan „Við gerum út á íslenskan mat og íslenskar hefðir og vinnum mikið með bókina hennar Helgu. Tökum uppskriftir þaðan og gerum tilraunir með þær undir ákveðnum formerkjum og þeirri hugsun að frú Helga sé að fylgjast vel með okkur að handan, enda megum við ekki fara of langt út fyrir rammann í tilraunamennskunni,“ segir Elma. Matur og drykkur hlaut viður- kenningu frá matgæðingunum hjá Michelin í fyrra en hún kallast Bib Gourmand sem gæti útlagst sælkerasmekkurinn á íslensku. „Þetta er ekki sami flokkur og „fine dining“ hjá Michelin og við erum ekki þess háttar staður en engu að síður er þetta mjög mikil upphefð enda aðeins örfáir staðir sem hafa fengið þennan stimpil. Við erum eini staðurinn á Íslandi sem hefur hlotið þessa viðurkenningu. Í fyrra vorum við einnig tilnefnd til Nordic Price- verðlaunanna en það eru sérstök veitingahúsaverðlaun sem veitt eru á Norðurlöndum.“ UPPSKRIFTIR: KRæKIbeRjaKoKTeIll og omnom hvíTSúKKUlaðI-SKyR eFTIRRéTTUR Eftirrétturinn er á matseðlinum hjá Mat og drykk en Elma og kokkarnir útfærðu þessa uppskrift með það í huga að auðvelt væri að skella í eftirréttinn heima. Krækiberjakokteillinn er gerður úr íslenskum hráefnum og þótt það sé ekki berjatíð núna þá er alltaf hægt að nálgast þetta ljúffenga kræki- berjasíróp frá Íslenskri hollustu: „Þau tína hráefnin úti í náttúrunni og selja svo afurðirnar og vörurnar sínar bæði veitingahúsum og einstaklingum. Íslensk hollusta er algjörlega einstakt fyrirtæki sem ég hef mikið dálæti á,“ segir Elma. „Okkur finnst svo gaman að vinna með minni aðilum sem eru að gera aðdáunarverða hluti með íslensk hráefni og okkur finnst gaman að státa okkur af því að við verslum við þau, – og önnur sambærileg fyrirtæki.“ KRáKan Fyrir 1 InnIhalD: n 4 cl einiberjagin frá Reykjavík Distillery n 1,5 cl eggjahvíta n 2 cl krækiberjasíróp frá Íslenskri hollustu n 3 cl lime-safi aðFeRð: Blandið og hristið allt saman í kokteilhristara í 10 sekúndur. Hristið svo aftur með klökum. Ef þú átt ekki hristara er gott að nota bara krukku með vel föstu loki. Sigtið í kokteilglas. Skreitt með þurrkuðu garðablóð- bergi. hvíTSúKKUlaðI-SKyR með KRæKIbeRjaKRaPI Fyrir 4–6 InnIhalD: n 250 g rjómi n 250 g hvítt súkkulaði frá Ommnomm n 250 g hreint skyr aðFeRð: hITIð Rjómann og PaSSIð að láTa hann eKKI Sjóða. TaKIð aF hellUnnI og hRæRIð SúKKUlaðInU Saman vIð. bæTIð Svo SKyRInU úT í og hRæRIð með TöFRaSPRoTa. KRæKIbeRjaKRaP InnIhalD: n 375 g vatn n 125 g sykur n 250 g bláber (frosin eða fersk) n Sítrónusafi kreistur úr 2 sítrónum n Rifinn sítrónubörkur af hálfri sítrónu aðFeRð: Setjið bláber í matvinnsluvél og blandið vel. Sjóðið saman vatn og sykur. Bætið svo bláberjamaukinu og rifnum sítrónu- berkinum út í sykurvatnið. Takið af hellunni og leyfið að kólna í 5 mín. Bætið svo sítrónusafanum út í og hrærið. Sett í plastílát og frystið. „Við gerum út á íslenskan mat og íslenskar hefðir og vinnum mikið með bókina hennar Helgu. matur og drykkur Sími: 571- 8877 Grandagarði 2, 101 Reykjavík elma og KoKKaRnIR F.v. Johnny Winsten, Elma Backman og Samuel Watson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.