Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Qupperneq 58
58 16. febrúar 2018
He
lgar
ma
tur
inn
Frú Helga Fylgist með okkur
Elma Backman hjá Mat og drykk deilir uppskriftum að krækiberjakokteil
og unaðslegum eftirrétti úr hvítu súkkulaði frá Omnom og íslensku skyri.
Fyrir þremur árum var opnað-ur þjóðlegur veitingastaður í gamla Aliance-húsinu við
Grandagarð 2, þar sem verslunin
Ellingsen var rekin í gamla daga.
Staðurinn heitir því einfalda og
skemmtilega nafni Matur og
drykkur eftir samnefndri bók
Helgu Sigurðardóttur sem allar
íslenskar húsmæður, með snefil
af sjálfsvirðingu, höfðu í öndvegi
í eldhúsum landsins áratugum
saman.
„Þegar húsmæður voru að ræða
hvernig átti að gera hlutina og voru
ekki sammála þá var viðkvæðið
alltaf; Sjáum bara hvað Helga segir!
og svo var flett í bókinni enda hafði
frú Helga lög að mæla,“ segir Elma
sem stofnaði veitingastaðinn ásamt
spænskum eiginmanni sínum,
Alberti Munoz.
„Hann ólst upp í lítilli salt-
fiskverslun sem amma hans
og mamma ráku til fjölda ára í
Barcelona en þær seldu einmitt
saltfisk sem kom úr þessu húsi því
hér var saltfisksverkun í gamla
daga. Saltfiskurinn frá Íslandi þótti
sá allra besti sem völ var á og nú
hefur hann Albert lokað hringnum
með því að opna veitingastað í ná-
kvæmlega sama húsi,“ segir Elma
glöð í bragði.
Frú Helga fylgist með að handan
„Við gerum út á íslenskan mat
og íslenskar hefðir og vinnum
mikið með bókina hennar Helgu.
Tökum uppskriftir þaðan og gerum
tilraunir með þær undir ákveðnum
formerkjum og þeirri hugsun að
frú Helga sé að fylgjast vel með
okkur að handan, enda megum við
ekki fara of langt út fyrir rammann
í tilraunamennskunni,“ segir Elma.
Matur og drykkur hlaut viður-
kenningu frá matgæðingunum
hjá Michelin í fyrra en hún kallast
Bib Gourmand sem gæti útlagst
sælkerasmekkurinn á íslensku.
„Þetta er ekki sami flokkur
og „fine dining“ hjá Michelin og
við erum ekki þess háttar staður
en engu að síður er þetta mjög
mikil upphefð enda aðeins örfáir
staðir sem hafa fengið þennan
stimpil. Við erum eini staðurinn
á Íslandi sem hefur hlotið þessa
viðurkenningu. Í fyrra vorum við
einnig tilnefnd til Nordic Price-
verðlaunanna en það eru sérstök
veitingahúsaverðlaun sem veitt
eru á Norðurlöndum.“
UPPSKRIFTIR:
KRæKIbeRjaKoKTeIll og omnom
hvíTSúKKUlaðI-SKyR eFTIRRéTTUR
Eftirrétturinn er á matseðlinum hjá Mat og drykk en Elma og
kokkarnir útfærðu þessa uppskrift með það í huga að auðvelt
væri að skella í eftirréttinn heima. Krækiberjakokteillinn er
gerður úr íslenskum hráefnum og þótt það sé ekki berjatíð
núna þá er alltaf hægt að nálgast þetta ljúffenga kræki-
berjasíróp frá Íslenskri hollustu:
„Þau tína hráefnin úti í náttúrunni og selja svo afurðirnar og
vörurnar sínar bæði veitingahúsum og einstaklingum. Íslensk
hollusta er algjörlega einstakt fyrirtæki sem ég hef mikið
dálæti á,“ segir Elma.
„Okkur finnst svo gaman að vinna með minni aðilum sem eru
að gera aðdáunarverða hluti með íslensk hráefni og okkur
finnst gaman að státa okkur af því að við verslum við þau, –
og önnur sambærileg fyrirtæki.“
KRáKan
Fyrir 1
InnIhalD:
n 4 cl einiberjagin frá
Reykjavík Distillery
n 1,5 cl eggjahvíta
n 2 cl krækiberjasíróp
frá Íslenskri hollustu
n 3 cl lime-safi
aðFeRð:
Blandið og hristið allt
saman í kokteilhristara í
10 sekúndur. Hristið svo
aftur með klökum. Ef þú
átt ekki hristara er gott
að nota bara krukku
með vel föstu loki. Sigtið
í kokteilglas. Skreitt með
þurrkuðu garðablóð-
bergi.
hvíTSúKKUlaðI-SKyR með
KRæKIbeRjaKRaPI
Fyrir 4–6
InnIhalD:
n 250 g rjómi
n 250 g hvítt súkkulaði frá Ommnomm
n 250 g hreint skyr
aðFeRð:
hITIð Rjómann og PaSSIð að láTa hann
eKKI Sjóða. TaKIð aF hellUnnI og hRæRIð
SúKKUlaðInU Saman vIð. bæTIð Svo SKyRInU
úT í og hRæRIð með TöFRaSPRoTa.
KRæKIbeRjaKRaP
InnIhalD:
n 375 g vatn
n 125 g sykur
n 250 g bláber (frosin eða fersk)
n Sítrónusafi kreistur úr 2 sítrónum
n Rifinn sítrónubörkur af hálfri sítrónu
aðFeRð:
Setjið bláber í matvinnsluvél og blandið vel. Sjóðið saman
vatn og sykur. Bætið svo bláberjamaukinu og rifnum sítrónu-
berkinum út í sykurvatnið. Takið af hellunni og leyfið að
kólna í 5 mín. Bætið svo sítrónusafanum út í og hrærið. Sett í
plastílát og frystið.
„Við gerum út
á íslenskan
mat og íslenskar
hefðir og vinnum
mikið með bókina
hennar Helgu.
matur og drykkur
Sími: 571- 8877
Grandagarði 2,
101 Reykjavík
elma og KoKKaRnIR
F.v. Johnny Winsten, Elma
Backman og Samuel Watson.