Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 6
6 16. febrúar 2018fréttir
Spákona á SjötugSaldri Selur
contalgin og rítalín í Breiðholti
n Tugir dáið úr eitrun n Alma var 15 ára þegar hún lést n Spádómar og dóp í boði
S
ölumaður dauðans var
hvorki lifaður, leðurklædd-
ur maður í dimmu húsa-
sundi né ungur dreng-
ur með vöðvana fulla af sterum
klæddur í græna Adidas-peysu.
Fíkniefnasalinn var spákona á sjö-
tugsaldri sem selur dauðadópið
contalgin og býður einnig upp á
rítalín. Blaðamenn DV hringdu
í spákonuna sem bauð öðrum
þeirra að hún myndi rýna í fram-
tíð hans og þá gat hann einnig
keypt bæði contalgin og rítalín af
spákonunni. Hefur DV bæði hljóð
og myndbandsupptökur þar sem
dópið var keypt í Breiðholti.
Dauðadópið contalgin hefur
verið vinsælt á íslenskum fíkni-
efnamarkaði og hefur verið kall-
að hið íslenska heróín. Contalgin
er morfín og skylt heróíni og ætlað
til að lina þjáningar krabbameins-
sjúklinga.
Contalgin hefur tekið tugi ís-
lenskra fíkla. Í nóvember síðast-
liðnum opnaði Hildur Hólmfríður
Pálsdóttir sig um dauða dóttur
sinnar. Almu Maureen Vinson lést
í október 2014 aðeins 15 ára gömul
af of stórum skammti af contalgin.
„Aldrei í lífinu hélt ég að ég ætti
eftir að gera þetta, að sitja heima
með tárin í augunum að skrifa
minningargrein um dóttur mína.
Elsku litli fallegi engill, það eru
engin orð sem fá því lýst hversu
mikið við söknum þín. Núna er allt
svo hljótt, enginn söngur úr her-
berginu þínu, enginn gítarleikur,
og ekkert verið að kalla á mömmu
sína til að biðja hana um að koma
með eitthvað,“ skrifaði Hildur í
minningargrein um dóttur sína.
Í umfjöllun RÚV í lok árs 2017
kom fram að árið á undan hefðu
25 látist vegna lyfja eða fíkniefna.
17 dauðsföll voru vegna ópíóða
og höfðu þá aldrei verið fleiri. Ári
2007 og 2008 voru dauðsföll 32
og 34. Hlutfall þeirra sem látast
úr lyfja notkun er hér næsthæst í
heimi á eftir Bandaríkjunum.
DV hefur öruggar heimildir
fyrir því að karlmaður sem hef-
ur áður gerst sekur um refsi-
verða háttsemi sé nokkuð einráð-
ur þegar kemur að innflutningi af
dauðadópinu til landsins. Dópið
er keypt á Spáni og kostar um þús-
und krónur taflan og er svo selt á
átta þúsund krónur hér á landi.
Contalgin er mest notað af langt
leiddum fíklum og tekur eins og
áður segir mörg líf á ári.
Dauðadópið
Contalgin hefur verið eitt það vin-
sælasta á íslenskum læknadóps-
markaði lengi og greindi Kompás
frá því árið 2005 að sex manns létu
lífið á hverju ári vegna ofneyslu
morfínlyfja.
Eftir að þátturinn var sýndur
hvarf lyfið af götunum um
nokkurn tíma og sagt var að
margir fíklar hafi liðið vítiskvalir
á þeim tíma. En þegar storminn
lægði byrjaði contalgin aftur að
flæða inn á markaðinn og er enn
mikið vandamál í dag
þrátt fyrir að önnur lyf,
samanber fentanýl og
oxycontin séu einnig
útbreidd.
Í nóvember síðast-
liðnum ræddi Rás 1
við Hildi, móður Ölmu
Maureen sem lést eins
og áður segir 15 ára
gömul úr of stórum
skammti af contalgin.
Þar greindi Hildur frá
því að dóttir hennar,
sem hóf 12 ára göm-
ul að neyta fíkniefna,
hefði sagst vita hversu
mikið af lyfinu hún
þyldi.
„Ég sagði við hana
að þetta virkaði ekki svoleiðis.
Þetta er bara rússnesk rúlletta. Þú
tapar alltaf.“ Í Kastljósi sagði Hild-
ur: „Þeim er örugglega talin trú
um að þetta sé allt hættulaust og
þetta sé bara gott. Þegar þau byrja
að reykja gras og eitthvað svoleið-
is, að þetta sé bara náttúrulegt lyf
og þetta geri bara gott, þau trúa
þessu, dílerinn er náttúrulega
besti vinur þeirra og þau trúa öllu
sem hann segir, en þetta er bara
kjaftæði. Þetta er bara eitur og
leiðir í eitthvað meira og sterkara
og endar yfirleitt bara á einn veg
… Að koma að barninu sínu látnu
í rúminu sínu er ekki það sem
nokkur getur hugsað sér að eiga
von á, við stóðum hérna agndofa,
ég og bróðir hennar, skelfingin var
svakaleg.“
Ólaf ur B. Ein ars son, verkefnis-
stjóri lyfja mála hjá Land lækn i
sagði í samtali við Morgunblaðið í
ágúst 2017.
„Á Íslandi má rekja ein hver
dauðsföll til eitr ana af völd um
fentanýl en al geng ara er að oxýkó-
dón finn ist í sýn um. Okk ar til finn-
ing er sú að þeir sem mis nota þessi
efni geri sér ekki grein fyr ir því
hversu hættu leg þau eru eða eru
ekki í ástandi til þess. Það sama
á sér stað hér á landi og í Banda-
ríkj un um, að þeir sem eru verst
stadd ir í fíkn sinni fái ekki mikið
ávísað sjálf ir held ur fái lyf sem
lækn ar ávísa á aðra.“
Contalgin og rítalin í boði
DV hafði spurnir af því að spákon-
an væri að selja sitthvað fleira en
Ein tafla kostar 8.000 Tók blaðamenn DV
nokkrar mínútur að fá að læknadópið. Lyfið er
keypt á Spáni fyrir 1.000 krónur hver tafla.
„Aldrei í lífinu hélt
ég að ég ætti
eftir að gera þetta, að
sitja heima með tárin
í augunum að skrifa
minningargrein um dóttur
mína.
Alma lést aðeins 15 ára.