Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Blaðsíða 10
10 16. febrúar 2018fréttir Í kjölfar umræðu DV um með- ferðarheimilið Krýsuvík þá vil ég sem fyrrverandi meðferðar- fulltrúi á Krýsuvík taka undir orð Svandísar Svavarsdóttur, Hall- dóru Mogensen og fyrrverandi stjórnarmanns Krýsuvíkursam- takanna um að það þurfi að gera rækilega úttekt á allri starfsemi meðferðarheimilis og áfanga- heimilis Krýsuvíkursamtakanna núna frekar en síðar þegar hugs- anlegar kærur á samtökin og ríkið koma fram.“ Þetta segir Berglind Ólafsdóttir sem starfaði sem ráðgjafi í Krýsuvík en hún lét af störfum seint á síðasta ári. Hún segir að allt sem hafi kom- ið fram í umfjöllun DV komi heim og saman við hennar upplifun af rekstri meðferðarheimilisins. DV hefur greint frá óeðlilegum sam- skiptum forstöðumanns við kven- kyns skjólstæðinga, starfsmenn hafa átt í kynlífs- og ástarsam- böndum við sjúklinga og þá hefur fyrrverandi ráðgjafi verið kærður fyrir kynferðisbrot. Krýsuvík hefur fengið falleinkunn frá Landlækni og ábendingar hans verið virtar að vettugi. Þá hefur verið harðlega gagnrýnt að enginn starfsmaður er að störfum eftir klukkan fjögur á daginn og til næsta morguns. Eins og DV hefur greint frá hefur fjár- munum frá ríkinu verið eytt í glæsi- kerrur fyrir yfirmenn staðarins á meðan samtökin bera sig aumlega opinberlega og bera við fjárskorti. Hafa óneitanlega bjargað mannslífum Ekki er hægt að álykta annað en að eftirliti hins opinbera með rekstrinum virðist vera ábótavant auk þess sem stjórn samtakanna skiptir sér lítið sem ekkert af dag- legum rekstri meðferðarheimil- isins. Þar ráða mæðginin Lovísa Christiansen framkvæmdastjóri og forstöðumaðurinn Þorgeir Óla- son öllu sem þau vilja. Berglind Ólafsdóttir, fyrrverandi ráðgjafi hjá samtökunum, segir: „Það er mikilvægt að til sé stofn- un sem annast þennan hóp sjúk- linga sem veikastur er og þarf því sérstakt lang- tímaúrræði ef árang- ur á að nást. Krýsu- víkursamtökin hafa óneitanlega bjargað mörgum mannslífum en það er ófært að einstaklingar í sínum verstu aðstæðum geti ekki treyst því að verða ekki fyrir kynferðislegri áreitni og þvingunum auk andlegs ofbeldis innan stofnunarinnar,“ segir Berglind. Þakkar fyrir umfjöllunina Að hennar sögn er sorglegt að heyra að samtökin séu að eyða dýrmætum fjármunum frá ríkinu í al- mannatengla til að bregðast við fréttaflutningi og verja óafsakanlegan rekstur meðferðarheim- ilisins í stað þess að nota pen- ingana í að hjálpa skjólstæðingum meðferðarheimilisins. Til þess fái samtökin peninga frá ríkinu. „Ég vil þakka DV fyrir faglega umfjöllun um Krýsuvík og get staðfest að mín upplifun er sú að allt það sem hefur komið fram í blaðinu er satt og rétt.“ Þá hefur DV einnig undir hönd- um bréf frá fyrrverandi stjórnar- manni í Krýsuvíkursamtökunum, sem átti sæti í stjórn um árabil. Stjórnarmaðurinn fyrrverandi sendi skeyti á stjórn Krýsuvíkur- samtakanna í byrjun janúar, áður en umfjöllun DV hófst. Hafði stjórnarmanninum borist til eyrna að alvarlegur mis- brestur væri á meðferðarstarf- inu og sendi stjórninni bréf. Fljót- lega eftir bréfið barst sagði sitjandi stjórnarmaður af sér, eins og DV hefur greint frá. Í bréfinu hrósar stjórnarmaðurinn Sigurlínu Dav- íðsdóttur, stjórnarformanni sam- takanna, og þakkar henni fyrir að honum hafi tek- ist með hennar hjálp að ljúka háskóla- námi. Segir hann einnig að Krýsuvík hafi bjargað mörg- um mannslífum. Alvarlegt brot Þorgeirs Í bréfinu minn- ist stjórnarmað- urinn á Björn Ragnarsson, fyrrverandi ráðgjafa, og kæru um kyn- ferðislegt ofbeldi sem hann er sak- aður um að hafa beitt sjúkling á staðnum. „Þegar ég svo heyrði að Þorgeir Ólason hefði hafið samband við unga stúlku sem var ný orðin edrú og var nýliði eins og það er kallað í AA-samtök- unum, þá trúði ég því nú tæplega en fór að forvitnast um það og komst að því að það er raunar staðreynd líka. Þarna var ekki um skjólstæðing Krýsuvíkur- samtakanna að ræða heldur bara stúlku sem sat með honum á AA- fundum og bjó að mér skilst sem leigjandi í húsi sem Þorgeir er sagður eiga á lóðinni hjá mömmu sinni. Þetta var því svo sem eitthvað sem er ekki hægt að kalla brot á samningi ráðgjafa gagnvart skjól- stæðingi sínum, en er kallað þrett- ánda spor í AA-samtökunum.“ Stjórnarmaðurinn tekur fram að ekki sé ætlun hans að skipta sér af lífi starfsmanna utan vinnutíma en minnir starfsfólk á að standa við samning þann sem ráðgjafar skrifa undir í Krýsuvík. „Í þeim samningi sem allir ráð- gjafar þurfa að undirrita er í að- alatriðum reynt að koma í veg fyrir tilfinningasambönd, óeðlileg samskipti eins og til dæmis við- skipti og gjafir og þvílíkt, kynlíf og svo framvegis. Þetta er siðferðilegs eðlis en byggist einnig á þeirri ein- földu staðreynd að fíklar bera svo mikið traust til ráðgjafa sinna og einnig oft til annarra starfsmanna meðferðarstaða að það er bara hrein misnotkun af hálfu starfs- manns og sérlega ráðgjafa að fara út fyrir atvinnuhlutverkið gagn- vart þeim. Brot gegn þessu trausti getur kostað skjólstæðing lífið, að hann fari aftur að drekka og deyi úr alkóhólisma eða fíkn. Því er þessi rammi settur.“ Gæti gengið af meðferðarstarfinu dauðu Bendir stjórnarmaðurinn á að inn- an AA- og 12 spora-samtakanna sé reynt að halda þeirri siðferðislegu reglu í hávegum að þeir sem hafi náð að vera án áfengis í nokkurn tíma séu ekki að hefja sambönd með fólki sem er að byrja sína edrú mennsku. Það varðar auðvit- að ekki við lög, en er siðferðislegt álitamál innan AA-samtakanna. Þá kveðst stjórnarmaðurinn hafa heyrst af misheppnuðum manna- ráðningum á Krýsuvík. „Það sem kom hins vegar í ljós við þessa kannski óþörfu en vel- meintu forvitni mína var að Þor- geir Ólason er sagður hafa átt óeðlileg samskipti við kvenkyns skjólstæðing Krýsuvíkur […] Ég hef heyrt að utanumhald starfs- manna eins og handleiðsla hafi ekki verið til staðar nú um tíma og eins virðist einhver misbrestur hafa verið á því að starfsemin hafi verið fullmönnuð öllum stundum. Ásamt fleiru sem ég tel óþarfi að vera að upplýsa ykkur um þar sem orð mín geta tæplega talist full- nægjandi sönnun á einu né neinu og því síður þar sem ég hef ekki verið vitni að þessu sem mér hefur borist til eyrna. Mér þykir leitt að þessar upp- lýsingar hafi ekki borist ykkur í stjórninni fyrr, en staðan er bara svona og það er ykkar að bregð- ast við henni. Líklega verður starf- ið fyrir höggi sem tekur tíma að ná sér af, en það er algerlega borð- leggjandi að ef eitthvað fleira er á ferðinni þá mun það koma í ljós og það gæti gengið af Krýsuvíkur- samtökunum og meðferðarstarf- inu dauðu.“ Bréfi stjórnarmanns- ins fyrrverandi lýkur svo á þessum orðum. „Að því sögðu er mínum afskiptum lokið af þessu máli og ég óska ykkur og Krýsuvíkursam- tökunum góðs gengis.“ n Bréf fyrrverandi stjórnarmanns skapaði usla Fyrrverandi ráðgjafi stígur fram og staðfestir umfjöllun DV um Krýsuvík Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@dv.is Berglind Ólafsdóttir Fyrrverandi ráðgjafi í Krýsuvík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.